Urriðaholtsstræti 36, 210
Fjarlægð/Seld - Eignin var 6 daga á skrá
Verð |
81,9
|
Stærð |
84
|
Tegund |
Fjölbýli |
Verð per fm |
972
|
Skráð |
24.4.2024 |
Fjarlægt |
1.5.2024 |
Byggingarár |
2021 |
mbl.is |
|
Fasteignasalan TORG kynnir:
Fallega, vel skipulagða og bjarta 3ja herbergja íbúð á annarri hæð, með verönd til suðurs og stæði í bílageymslu á frábærum stað í Urriðaholtinu. Eignin er skráð 84,3 fm og skiptist í anddyri/hol, eldhús, stofu, 2 rúmgóð svefnherbergi, baðherbergi og geymslu í kjallara. Góð eign í vönduðu, áklæddu húsi sem telur einungis 10 íbúðir. Þá er aukin lofthæð í íbúðinni, innfelld lýsing, gólfhiti, steinn í eldhúsi og innfelld blöndunartæki á baðherbergi. Allar nánari upplýsingar veitir Elfa Björk, lgfs. í síma 692-0215 eða elfa@fstorg.is NÁNARI LÝSING:
Anddyri/hol: Góðir fataskápar sem ná upp í loft, parket á gólfi.
Stofa: Björt stofa og borðstofa, útgengt úr stofu út á verönd sem snýr til suðurs.
Eldhús: Vönduð innrétting með góðu skápa- og vinnuplássi ásamt eyju. Nýleg tæki, helluborð, bakarofn og innbyggð uppþvottavél. Allir skápar ná upp í loft. Steinn á borðum. Parket á gólfi.
Hjónaherbergi: Rúmgott, góðir fataskápar sem ná upp í loft. Parket á gólfi.
Barnaherbergi: Rúmgott með góðum fataskáp, parket á gólfi.
Baðherbergi: Með innréttingu, upphengdu salerni, handlaug og rúmgóðri walk-in sturtu. Flísar á gólfi. Innrétting fyrir þvottavél og þurrkara.
Geymsla: 7,2 fm, staðsett í kjallara hússins.
Verönd/pallur: Góður pallur sem snýr til suðurs.
Hjóla- og vagnageymsla í sameign hússins.
Allar nánari upplýsingar veitir Elfa Björk, lgfs. í síma 692-0215 eða elfa@fstorg.is Gjöld sem kaupandi þarf að greiða vegna kaupa á fasteign:
1. Stimpilgjald af fasteignamati fasteignar er 0.8%, en 0,4% fyrir fyrstu kaup og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald kr. 2.500.- kr. af hverju skjali.
3. Lántökukostnaður lánastofnunar - mismunandi eftir lánastofnunum.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. samningi.
Skoðunarskylda kaupanda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.