Engihjalli 9, 200
Fjarlægð/Seld - Eignin var 7 daga á skrá
Verð |
Tilboð
|
Stærð |
97
|
Tegund |
Fjölbýli |
Verð per fm |
|
Skráð |
17.5.2017 |
Fjarlægt |
24.5.2017 |
Byggingarár |
1978 |
mbl.is |
|
ÍBÚÐIN ER SELD MEÐ FYRIRVARA UM FJÁRMÖGNUN. Vantar allar gerðir og stærðir íbúða á söluskrá - sanngjörn söluþóknun.
Mjög falleg 97,4 fm fjögurra herbergja íbúð á 7.hæð í 10 hæða lyftuhúsi með útsýni. Íbúðin er merkt A, (01-0704) og skiptist í gang, baðherbergi, þrjú herbergi, stofu og eldhús með borðkrók. Tvennar svalir og við inngang íbúðarinnar er sameiginlegt þvottaherbergi á hæðinni. Í kjallara er geymsla íbúðarinnar merkt 7A (geymsla er ekki inn í 97,4 fm og er eignin því stærri sem nemur geymslunni).
Nánari lýsing: Komið er inn á gang með gólfflísum, parketi og stórum fataskáp. Flísalagt baðherbergi sem er nýlega endurnýjað. Baðinnrétting, baðskápur, vegghengt salerni, handklæðaofn, baðkar og gluggi. Lítið herbergi án gólfefna. Rúmgott parketlagt herbergi með fataskáp. Parketlagt hjónaherbergi með stórum fataskáp og svaldyrum út á suðursvalir. Parketlögð stofa með svaladyrum út á stórar vestur svalir. Eldhús er nýlega endurnýjað með fallegri eldhúsinnréttingu, nýjum tækjum s.s. ofn, helluborði og viftu. Gólfflísar á eldhúsi og borðkrók. Mjög falleg og vel staðsett íbúð. Íbúðin er laus til afhendingar 1. júní n.k.
Nánari upplýsingar veitir: Geir Sigurðsson löggiltur fasteignasali sími 655-9000 geir@husasalan.is;