Háholt 21, 230
Fjarlægð/Seld - Eignin var 19 daga á skrá
Verð |
69,0
|
Stærð |
228
|
Tegund |
Einbýli |
Verð per fm |
303
|
Skráð |
22.8.2017 |
Fjarlægt |
10.9.2017 |
Byggingarár |
1958 |
mbl.is |
|
Eignamiðlun Suðurnesja kynnir eignina Háholt 21, 230 Reykjanesbæ.
Um er að ræða einstaklega glæsilegt hús á frábærum stað í Keflavík, örstutt frá skóla og allri þjónustu.
Húsið er á tveimur hæðum, alls 190 fm, auk 50 fm bílskúrs, alls um 240 fm.
Efri hæðin:
Efri hæðin skiptist í stórt eldhús, sjónvarpshol, stofu, borðstofu, hol og gestasalerni.
Aukin lofthæð er á þessari hæð, mikið af gluggum og frábært útsýni yfir Keflavík og nágrenni.
Loft eru nýlega gifsklædd og er ný led lýsing í loftunum.
Arinn er í stofu, og er hann nýlega standsettur. Á gólfum er parket sem er nýlega slípað og lakkað.
Eldhúsinnrétting er hvít sprautuð og nýjar borðplötur.
Neðri hæð:
Neðri hæðin skiptist í geymslu, 4 svefnherbergi, rúmgott þvottaherbergi með innréttingu, epoxy er á gólfi.
Baðherbergi með flísum, innréttingu og stórri sturtu. Parket er á gólfum í svefnherbergjum, nýlega slípað og lakkað.
Bílskúr:
Bílskúr er 50 fm, allur nýlega standsettur, m.a. epoxý á glólfi, nýleg klæðning og lýsing í loftum,
nýr ofn og ofnalögn og bílskúrinn allur nýmálaður.
Lóð:
Lóðin er girt og ræktuð, á baklóð er rúmgóður sólpallur með yfirbyggðum heitum potti.
Innkeyrsla :
Innkeyrslan er steypt úr bomanite (stimpluð stétt) með snjóbræðslukerfi.
Húsið:
Húsið hefur verið allt meira og minna endurnýjað síðustu 10 ár, m.a. allir ofnar og ofnalagnir,
allar raflagnir og rafmagnstöflur, gluggar, gler, lausafög og hurðir.
Öll gólfefni m.a. parket, flísar og innihurðir. Öll loft á efri hæð, allt í eldhúsi og baðherbergjum.
Húsið er allt nýlega málað að innan.
Einstaklega vandað og eigulegt hús.
Allar nánari upplýsingar á skrifstofu okkar að Hafnargötu 50, Reykjanesbæ, og í síma 420-4050.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupa á fasteign:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% af heildarfasteignamati fyrir einstaklinga (0,4% ef um er að ræða fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.000 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar – mismunandi á milli lánastofnana. Nánari upplýsingar á heimasíðum lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu, kr. 40.000 með vsk, sbr. kauptilboð.