Vindás 4, 110

Fjarlægð/Seld - Eignin var 78 daga á skrá

Verð 34,9
Stærð 83
Tegund Fjölbýli
Verð per fm 421
Skráð 8.9.2017
Fjarlægt 25.11.2017
Byggingarár 1984
mbl.is

Hafsteinn Þorvaldsson löggiltur fasteignasali, ásamt Fasteignasölunni Bæ kynna í sölu snyrtilega og bjarta þriggja herbergja íbúð á 4. hæð í ágætu fjölbýli við Vindás 4, 110 Reykjavík.  Íbúðin er 82,8 fm af stærð og er geymslan innan íbúðar.
Örstutt er i grunnskóla og leikskóla. Náttúrperlur Elliðaárdals og fleiri útivistarsvæða eru skammt undan.


Nánari lýsing:
Anddyri/hol með góðum fataskáp og glervegg sem skilur það frá borðstofu og eldhúsi.  Eldhúsinnrétting er endurnýjuð með góðu skápaplássi, og í henni er gert ráð fyrir þvottavél og þurkara.  Stofa er rúmgóð og björt og úr henni er gengið út á svalir.  Svefnherbergin eru tvö, bæði með góðum fataskápum.  Baðherbergi er endunýjað, flísalagt í hólf og gólf, með innréttingu og sturtu. 

Á gólfum er viðarparket að geymslu, eldhúsi og baðherbergi undanskildu en þar eru flísar.  Ljósleiðari er í húsinu.  Sameign er teppalögð  Húsið er klætt að utan en endurbætur og viðgerðir standa yfir sem þegar hefur verið greitt fyrir af eignanda.  Gæludýr eru leyfð í húsinu.

Þetta er björt, opin og vel skipulögð íbúð á vinsælum stað. Örstutt í leik- og grunnskóla, íþróttir og útivistarsvæði.

Nánari upplýsingar veita Hafsteinn Þorvaldsson viðskiptafræðingur/löggiltur fasteigna,- og skipasali s. 891-8891, hafsteinn@fasteignasalan.is 

"Okkar fagmennska eru þínir hagsmunir"   
    
                                                        
 
 Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum að vegna kaupanna.
1. Stimpilgjöld af kaupsamningi - 0,8 % af heildarfasteignamati.   (0,4% fyrstu kaup, 1,6% lögaðilar)
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. kr. 2000 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunnar, almennt 0.5 - 1.5 % af höfuðstól skuldabréfs, Nánari upplýsingar t.d. á heimasíðum lánastofnanna.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu sbr. Kauptilboð

Myndir

Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
Mynd 4
Mynd 5
Mynd 6
Mynd 7
Mynd 8
Mynd 9
Mynd 10
Mynd 11
Mynd 12
Mynd 13
Mynd 14
Mynd 15
Mynd 16
Mynd 17
Mynd 18
Mynd 19
Mynd 20
Mynd 21
Mynd 22
Mynd 23
Mynd 24
Mynd 25
Mynd 26
Mynd 27
Mynd 28
Mynd 29