Selvogsgata 18, 220

Verð 89,9
Stærð 106
Tegund Einbýli
Verð per fm 847
Skráð 2.5.2024
Fjarlægt
Byggingarár 1929
mbl.is 1259588

Eignin er seld með fyrirvara.

Glæsilegt einbýlishús við Selvogsgötu 18 í Hafnarfirði.
Eignin er skráð 123,6 fm skv. HMS en skráning á geymslu er röng. 
Íbúðarhlutinn er 90,1 fm og til viðbótar eru fermetrar á efri hæð sem eru undir súð. Geymsla/þvottahús er ca 16 fm.

Forstofa: 
Gengið er inn í bjart og fallegt forstofuhol með nýlegu harðparketi á gólfi og fatahengi. Fallegur hvítlakkaður stigi er í holinu sem leiðir upp á efri hæð hússins.

Eldhús:. Eldhúsinnrétting og tæki voru endurnýjuð árið 2017 á fallegan hátt. Innréttting er hvít í U með eyju sem snýr yfir í borðstofuna. Fallegt eikarharðparket er á gólfi.

Stofa + borðstofa:  Stofan og borðstofan eru samliggjandi. Fallegt eikarharðparket er á gólfi. Útg. er frá stofunni út á skjólgóða verönd timbur/hellulögð sem liggur sunnan og vestan megin við húsið. Skjólveggir eru allan hringin í kringum garðin sem loka honum alveg og gera hann því mjög barnvænan og öruggan. Nýlegur heitur pottur er á pallinum.

Efri hæð:
Gengið er upp á efri hæðina um fallegan timbur stiga frá forstofuholinu. Fallegt hvítlakkað handrið er upp stigann.

Baðherbergi: Aðalbaðherbergið var allt endurnýjað árið 2016 á glæsilegan hátt. Fallegar gráar flísar eru á gólfi og upp á vatnskassan hjá salerninu og í kringum baðkarið. Hvítar fallegar flísar eru á öðrum veggjum. Spónlögð eikarinnrétting er undir vaski. Handklæðaofn er á vegg. Baðkarið er með sturtuaðstöðu og glerskilrúmi. Góður opnalegur gluggi er á baðherberginu.

Hjónaherbergi + auka herbergi: Hjónaherbergið er rúmgott með spónaparketi á gólfi og gluggum á tvo vegu. Innaf hjónaherberginu er auka herbergi sem nýtist sem barnaherbergi, fataherbergi eða skrifstofuherbergi.

Barnaherbergi: Barnaherbergi er með parketi á gólfi og glugga.

Útihús: Þvottaherbergi/Geymsla: Á lóðinni er upphitað útihús sem nýtist sem góð geymsla og þvottahús. Gluggar eru á húsinu. Húsið er um 16 fm að stærð sirka.   

Nýlegar endurbætur: 
- Nýr bakarofn 2020
- Rafmagnsgardínur settar í allt húsið 2020
- Pallur og heitur pottur 2022
- Helluborð og innbyggð uppþvottavél 2023
- Múrviðgerðir á garðveggjum í kringum hús 2023
- Allir rofar á neðri hæð og hluti rafmagnstengla endurn. 2023


Frábær staðsetning miðsvæðis í Hafnarfirði þar sem stutt er í alla helstu þjónustu og falleg útivistarsvæði.

Nánari upplýsingar veitir Aron Freyr Eiríksson löggiltur fasteignasali í síma 772-7376 / aron@as.is

Ás fasteignasala er rótgróið fyrirtæki sem hefur veitt alla almenna þjónustu í fasteignaviðskiptum frá árinu 1988.
www.facebook.com/asfasteignasala
www.instagram.com/as_fasteignasala
www.as.is

Myndir

Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
Mynd 4
Mynd 5
Mynd 6
Mynd 7
Mynd 8
Mynd 9
Mynd 10
Mynd 11
Mynd 12
Mynd 13
Mynd 14
Mynd 15
Mynd 16
Mynd 17
Mynd 18
Mynd 19
Mynd 20
Mynd 21
Mynd 22
Mynd 23
Mynd 24
Mynd 25
Mynd 26
Mynd 27
Mynd 28
Mynd 29