Verð | 22,9 |
Stærð | 66 |
Tegund | Orlofs |
Verð per fm | 350 |
Skráð | 19.10.2016 |
Fjarlægt | 1.1.2020 |
Byggingarár | 2005 |
mbl.is |
LÖGMENN SUÐURLANDI S: 480 2900
Þverlág 18, Hrunamannahreppi.
Um er að ræða mjög snyrtilegan 65,5 fm sumarbústað í landi Ásatúns, Hrunamannahreppi. Stór sólpallur er hringinn í kringum húsið. Glæsilegt útsýni er frá húsinu. Húsið er byggt árið 2005 úr timbri húsið stendur á steyptum þverbitum. Að utan er húsið klætt með liggjandi timburklæðningu og bárujárni á þaki. Húsið telur tvö svefnherbergi og annað með kojum. Baðherbergi með sturtuklefa og lítilli innréttingu. Eldhús og stofa er opið í eitt þar er upptekið loft. Furufulningaeldhúsinnrétting. Að innan er húsið panilklætt á gólfum er plastparket nema baðherbergi þar sem eru flísar. Úr forstofu er stigi upp á svefnloft sem er yfir herbergjum og baði. Útigeymsla þar sem inntök og tengi fyrir þvottavél. Húsið er upphitað með hitaveitu.
Nánari upplýsingar á skrifstofu Lögmanna Suðurlandi.