Völuteigur 31, 270

Fjarlægð/Seld - Eignin var 154 daga á skrá

Verð Tilboð
Stærð 4.701
Tegund Atv.
Verð per fm
Skráð 16.5.2019
Fjarlægt 17.10.2019
Byggingarár 2007
mbl.is

Miklaborg kynnir: tvö sjálfstæð atvinnuhúsnæði við Völuteig í Mosfellsbæ. Húsin eru samtals 4.701 fm og standa sameiginlega á 15.048 fm afgirtri og malbikaðri lóð. Völuteigur 31 er 1.965 fm límtréshús byggt árið 1985. Völuteigur 31A er 2.736 fm hús byggt úr forsteyptum einingum árið 2007.

Um er að ræða tvö sjálfstæð atvinnuhúsnæði á tveimur fastanúmerum, samtals 4.701 fm. Húsin standa á sameiginlegri 15.048 fm afgirtri og malbikaðri lóð. Fullkomið eldvarnarkerfi og loftræstikerfi er í húsunum.

Völuteigur 31 (fastanúmer 208-4546) - 1.965 fm Límtréshús á steyptum grunni byggt árið 1985. Húsið skiptist í 1492 fm verksmiðjusal með góðri lofthæð, 378 fm skrifstofu / starfsmannaaðstöðu og 95 fm ketilhús með tveimur iðnaðarhurðum sem getur nýst sem sjálfstætt iðanaðar eða geymslubil. Öflugar brunavarnir eru í húsinu með brunaúðunarkerfi. Fasteignamat 2019 er kr. 308.450.000 og brunabótamat kr. 339.800.000. Möguleiki er fyrir réttan aðila að leigja húsið.

Völuteigur 31A (fastanúmer 230-4834) - 2.737 fm einingahús á steyptum grunni, byggt árið 2007 úr forsteyptum einingum. Húsnæðið er iðnaðarhúsnæði með skrifstofuaðstöðu á millilofti ásamt sýningar- og söluaðstöðu á jarðhæð. Í húsinu er góð starfsmannaaðstaða með skápum, sturtum og salernum fyrir bæði kyn. Öflugar brunavarnir eru í húsinu, bæði vatnsúðarakerfi og brunahólfun. Einnig er öflugt loftræstikerfi í húsinu. Fasteignamat 2019 er kr. 391.200.000 og brunabótamat 651.500.000.

Lóð og athafnasvæði er malbikað og upphitað, samtals 15.048 fm að stærð. Athafnasvæði er vestan við húsin og á milli þeirra, vel girt með vinnugirðingum og rafstýrðu stálhliði. Stór hluti girðingar vestan megin við húsið er 5 metra há ógagnsæ girðing úr timburverki og veitir því gott skjól fyrir veðri og vindum. Bílastæði eru að austanverðu meðfram Völuteigi 31 og 31A og norðan megin við Völuteig 31. Nýtingarhlutfall er í dag um 0,31 sem er nokkru lægra en nýtingarhlutfall nærliggjandi lóða.

 

Nánari upplýsingar veita: 
Ásgrímur Ásmundsson hdl. og löggiltur fasteignasali, sími 865-4120 eða asi@miklaborg.is
Þröstur Þórhallsson löggiltur fasteignasali, sími 897-0634 eða throstur@miklaborg.is

Myndir

Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
Mynd 4
Mynd 5
Mynd 6
Mynd 7