Suðurbakki 3, 805

Fjarlægð/Seld - Eignin var 9 daga á skrá

Verð Tilboð
Stærð 144
Tegund Sumarhús
Verð per fm
Skráð 21.4.2024
Fjarlægt 1.5.2024
Byggingarár 2023
mbl.is

Tilboð
Pétur Ásgeirsson löggiltur fasteignasali hjá RE/MAX fasteignasölu kynnir :
 Bjart, fallegt og vel skipulagt 148,5 fm heilsárshús við Suðurbakka 3 í landi Ásgarðs– heilsárshús á sumarhúsalóð við sogið í Grímsnesi. 
Húsið er byggt úr CLT krosslímdum timbureiningum.  Samkvæmt skráningu Þjóðskrár Íslands er birt flatarmál eignarinnar 148,5 fm og þar af er 8,8 fm geymslu, 105 fm pallur. Húsið er álklætt með standandi álklæðningu frá IDEX Hágæða ál/treé gluggar futura+ frá IDEX Gólfhiti í plötu. Ljós og lýsing frá LUMEX.
Húsið stendur á 14.034 m2  eignarlóð.  Frábært útsýni í Búrfell, Ingólfsfjall og út í sogið  

Heitavatn er komið á svæðið, en það á eftir að tengja það við húsið.


Stór sólpallur, ca.105 fm með heitum potti (rafmagnspottur), girðingu og skjólgirðingu.  Í þessu húsi er hitatúpa fyrir gólfhita og hitakútur fyrir neysluvatn.  Þetta svæði er hitaveitusvæði.  Lokað svæði með rafmagnshliði (símahlið). 
 
Nánari lýsing:
Forstofa: Er með flísum á gólfi og góðu skápaplássi.
Eldhús: Parketi á gólfi, dökkri viðarinnréttingu, eyju með kranit steini á borðum og vönduðum tækjum.
Sjónvarpsstofa/borðstofa: Er með parketi og útgengi út á suðurverönd.
Hjónaherbergi: Parket á gólfi með fataherbergi með útgengi út á suðurverönd.
Barnaherbergi: Parket á gólfi og með fataskáp.
Barnaherbergi: Parket á gólfi og með fataskáp.
Baðherbergi: Flísalagt í hólf og gólf, upp hengdu WC með fallegri dökkri innréttingu og granit stein á borði. Sturtu og tengi fyrir þvottavél og þurrkara.
Gestabaðherbergi: flísum á gólfi, upp hengdu WC og fallegri innréttingu.
Geymslan: Er á hliðinni, mjög rúmgóð.

Hægt að hafa miklar leigutekjur á ári, áætlað 90-150 þús á nótt en fer eftir árstíma.

Svæðið er lokað með rafmagnshliði (símahlíð).
Þetta er hitaveitusvæði, rafmagn og vatn komið inn á svæðið. Árgjald í félag sumarhúsaeiganda á svæðinu er um kr. 40.000 ári.
Stutt er til þekktra staða á Suðurlandi, Skálholts, Þingvalla, Laugarvatns, Geysis, Gullfoss og Kersins.
Stutt er í veiði, sundlaug, golfvöll, íþróttavöll og fallegar gönguleiðir einnig er í nágrenninu Hótel Grímsborgir, ca. 5 mín ganga.  


Nánari upplýsingar gefur Pétur Ásgeirsson  löggiltur fasteignasali í síma 893-6513 / petur@remax.is.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8%(einstaklingar) 1.6% (lögaðilar) af heildarfasteignamati. 
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.500 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 45-75 þús.kr. Nánari upplýsingar á heimasíðu lánastofnana. 
4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 69.900 mvsk.

Myndir

Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
Mynd 4
Mynd 5
Mynd 6
Mynd 7
Mynd 8
Mynd 9
Mynd 10
Mynd 11
Mynd 12
Mynd 13
Mynd 14
Mynd 15
Mynd 16
Mynd 17
Mynd 18
Mynd 19
Mynd 20
Mynd 21
Mynd 22
Mynd 23
Mynd 24
Mynd 25
Mynd 26
Mynd 27
Mynd 28
Mynd 29
Mynd 30
Mynd 31
Mynd 32