Ásakór 13, 203
Fjarlægð/Seld - Eignin var 10 daga á skrá
Verð |
63,0
|
Stærð |
158
|
Tegund |
Fjölbýli |
Verð per fm |
398
|
Skráð |
2.6.2018 |
Fjarlægt |
12.6.2018 |
Byggingarár |
2007 |
mbl.is |
|
LANDMARK fasteignamiðlun ehf. og Andri Sigurðsson löggiltur fasteignasali og félagsmaður í Félagi fasteignasali kynna í einkasölu
: Mjög falleg, björt og vel skipulögð 5 herbergja endaíbúð á 6. hæð (efstu) í góðu lyftuhúsi ásamt stæði í bílageymslu við Ásakór í Kópavoginum.
FJÖGUR RÚMGÓÐ SVEFNHERBERGI - ÞVOTTAHÚS INNAN ÍBÚÐAR - TVENNAR SVALIR - GLÆSILEGT ÚTSÝNI. Samkvæmt skráningu Þjóðskrár Íslands er birt flatarmál íbúðarinnar 158,3 fm, þar af er íbúðin 149,6 fm, sérgeymsla í sameign 8,7 fm, samtals: 158,3 fm. Eigninni fylgir stæði í bílageymslu. Vinna við málun á húsinu að utan, þéttingu á bílakjallara og laga niðurföll er lokið. Allir íbúar hafa greitt sinn hluta í þessum framkvæmdum.
Allar nánari upplýsingar veitir: Andri Sigurðsson löggiltur fasteignasali í síma
690 3111 eða
andri@landmark.is
Nánari lýsing eignar: Komið er inn í rúmgóða forstofu, fataskápur. Innaf forstofunni er þvottahús með hvítri innréttingu. Frá forstofu tekur við gangur. Fjögur rúmgóð, svefnherbergi, fataskápur í herbergjum. Fallegur horngluggi í hjónaherbergi með fallegu útsýni. Flísalagt baðherbergi í hólf og gólf, hvít innrétting, hornbaðkar og sér sturtuklefi, handklæðaofn. Stofa og eldhús í opnu rými. Falleg innrétting í eldhúsi með flísum á milli efri og neðri skápa, stóra eyja, rúmgóður borðkrókur með útgagni út á svalir. Frá stofu er unnt að ganga út á stórar svalir. Rúmgóð sérgeymsla í sameign ásamt sameiginlegri hjóla- og vagnageymslu. Eigninni fylgir sérmerkt bílastæði í bílageymslu. Rafmagnshurðaopnari er á hurð í bílageymsluna.
Gólfefni: parket og flísar á gólfum.
Þetta er mjög björt og falleg eign þar sem er stutt í Hörðuvallaskóla og leikskólana Kór, Baug og Austurkór. Öll þjónusta í hverfinu t.a.m Krónan, Nettó, íþróttaaðstaða í Kórnum og stutt er í útivistarperlurnar Guðmundarlund, Elliðavatn og Heiðmörk.
Allar nánari upplýsingar veitir: Andri Sigurðsson löggiltur fasteignasali í síma
690 3111 eða
andri@landmark.is
ERTU Í FASTEIGNAHUGLEIÐINGUM? ÞARFTU AÐ SELJA?
Ég hef starfað við sölu fasteigna samfleytt frá árinu 1997 og ég er félagsmaður í Félagi fasteignasala. Ég legg áherslu á vandvirkni, heiðarleika og ábyrgð í fasteignasölu. Sanngjörn söluþóknun, ekki hika við að samband við mig í síma
690 3111 eða
andri@landmark.is
Heimasíða LANDMARK fasteignamiðlunar.
Fáðu frítt sölumat á eignina þína HÉRNA.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupa á fasteign:
- Stimpilgjald af kaupsamningi: 0.8% af fasteignamati eignar fyrir einstaklinga en 1.6% fyrir lögaðila, 0.4% ef um fyrstu íbúðarkaup er að ræða.
- Þinglýsingargjald: kaupsamningi, skuldabréfi, veðleyfi, afsali o.s.frv. er kr. 2.000 af hverju skjali.
- Umsýslugjald fasteignasölu kr. 69.900.- með vsk.
- Annar kostnaður t.d. skilyrt veðleyfi / skjalagerð kr: 15.000.- auk vsk.
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill LANDMARK fasteignamiðlun því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og eftir atvikum leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.