Efri-Þverá 0, 531
Fjarlægð/Seld - Eignin var 101 dag á skrá
Verð |
73,9
|
Stærð |
345
|
Tegund |
Einbýli |
Verð per fm |
214
|
Skráð |
2.10.2023 |
Fjarlægt |
12.1.2024 |
Byggingarár |
1968 |
mbl.is |
|
HÚS fasteignasala og Jens Magnús Jakobsson löggiltur fasteignasali s: 8931984 kynna í sölu jörðina Efri-Þverá II í Vestur-Húnavatnssýslu. Á jörðinni er íbúðarhús og hesthús ásamt bílskúr/vélaskemmu. Landið er 72 hektarar í séreign og svo er óskipt land, sem talið er að sé um 1600 hektarar, sem deilist með tveimur öðrum nágranna jörðum. Einstaklega skemmtileg staðsetning með tilliti til útsýnis og náttúru. Frábært tækifæri til að kaupa jörð sem hægt er að byggja upp, annaðhvort sem frístunda stað eða til að stunda þarna sína atvinnu.
Eigendur skoða skipti á eign á höfuðborgarsvæðinu og suðurlandi.Íbúðarhús: 187,5 fm á tveimur hæðum.Sjarmerandi steypt hús sem byggt var árið 1968 og viðbygging byggð árið 1994. Húsið er með rúmgóðu eldhúsi (með frábæru útsýni út um eldhúsgluggann), inn af eldhúsi er búr. Stofan er rúmgóð og opin. 5 svefnherbergi eru í húsinu ásamt baðherbergi sem er nýbúið að endurnýja. Í viðbyggingunni er þvottahús og kjallari. Útgengi er úr þvottahúsinu. Í kjallaranum er sánaklefi. Húsið hefur verið mikið endurnýjað, þar á meðal hefur það verið einangrað og klætt að utan og skipt um útidyrahurðar. Járn á þaki hefur verið endurnýjað. Húsið er mikið endurnýjað að innan, meðal annars neysluvatnslagnir, gólf- og loftaefni að stórum hluta og led ljós eru í öllum rýmum. Ljósleiðari er kominn inn í hús og þriggja fasa rafmagn er komið í töflu.
HesthúsHesthúsið er 384,5 fm og byggt árið 1985, haughús er undir hluta þess. Hesthúsið er innréttað með eins- og tveggja hesta stíum. Nokkrar eins hesta stíur eru ætlaðar fyrir stóðhesta. Eik er í innréttingum. Húsið býður upp á mikla möguleika til endurbóta. Gerði er við húsið og einnig er beitarhólf fyrir framan.
Bílskúr/vélaskemmaByggt árið 1988 og er með tveimur innkeyrsluhurðum. Þessi bygging er ekki einangruð.
Við hesthúsið er tengd bygging sem ekki tilheyrir þessari jörð (tilheyrir nágrannajörðinni).
Jörð sem býður upp á mikla möguleika út frá staðsetningu og náttúrufegurð. Töluverð rjúpnaveiði er á svæðinu.
Nánari upplýsingar og bókanir í skoðun eru hjá Jens Magnúsi Jakobssyni lgf s. 8931984 eða magnus@husfasteign.isGjöld sem kaupandi þarf að standa straum að vegna kaupanna.
1. Stimpilgjöld af kaupsamningi - 0,8 % af heildarfasteignamati, 0,4 % fyrir fyrstu kaupendur.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. kr. 2500 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunnar. Nánari upplýsingar t.d. á heimasíðum lánastofnanna.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu
Skoðunarskylda: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill HÚS Fsteignasala því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.