Vatnsendahlíð 93, 311
Verð |
54,8
|
Stærð |
82
|
Tegund |
Sumarhús |
Verð per fm |
668
|
Skráð |
6.5.2024 |
Fjarlægt |
|
Byggingarár |
2015 |
mbl.is |
1261744
|
Hrönn Ingólfsdóttir lgfs. og Fasteignaland kynna í einkasölu: Einstaklega glæsilegt og vel staðsett heilsárshús í Skorradal. Húsið er allt á einni hæð með stórum og góðum sólpalli og heitum potti. Eignin er skráð alls 82 fm og skiptist þannig: Forstofa, baðherbergi, eldhús, stofa og borðstofa. Þrjú góð svefnherbergi. Loftið í húsinu er klætt með veðraðri austurískri furu sem gefur húsinu mikinn sjarma. Einstakt útsýni er yfir Skorradalsvatn. Húsið er í enda á götunni og er því engin umferð framhjá húsinu. Gólfhiti er í öllu húsinu og stór og góð varmadæla, loft í vatn.
Nánari upplýsingar veitir Hrönn Ingólfsdóttir í síma 692 3344 eða hronn@fasteignaland.is.Nánari lýsing eignar:Forstofa: Flísar á gólfi og gott fatahengi.
Eldhús: Rúmgóð og falleg innrétting, innbyggð uppþvottavél sem fylgir.
Stofa/Borðstofa: Afar bjart og fallegt rými með stórum gluggum á þrjá vegu. Mikil lofhæð.
Svefnherbergin eru þrjú og eru öll afar rúmgóð en aðeins eitt herbergi er með skápum.
Baðherbergi: Flísalagt að hluta. Fín innrétting, rúmgóð sturta, upphengt salerni. Tengi fyrir þvottavél.
Lóðarleiga er 196.000.- á ári. Þetta er eign sem vert er að skoða á frábærum stað í Skorradal. Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupa á fasteign:1. Stimpilgjald af fasteignamati fasteignar er 0.8%, en 0,4% fyrir fyrstu kaup og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald: kaupsamningi, skuldabréfi, veðleyfi, afsali o.s.frv. er kr. 2.500 af hverju skjali.
3. Lántökukostnaður samkvæmt verðskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Skoðunarskylda kaupanda:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits:Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma
í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags.
Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002.
Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir
og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.