Kleppsvegur 6, 105
Fjarlægð/Seld - Eignin var 13 daga á skrá
Verð |
77,9
|
Stærð |
115
|
Tegund |
Fjölbýli |
Verð per fm |
679
|
Skráð |
22.9.2023 |
Fjarlægt |
6.10.2023 |
Byggingarár |
1959 |
mbl.is |
|
Fasteignamarkaðurinn ehf. s: 570-4500 kynnir til sölu virkilega fallega, bjarta og vel skipulagða 114,8 fermetra 5 herbergja endaíbúð með gluggum í þrjár áttir og suðursvölum í nýviðgerðu og góðu fjölbýlishúsi með lyftu við Kleppsveg í Reykjavík. Útsýni frá eigninni til norðurs, suðurs og vesturs er óviðjafnanlegt. Úr eldhúsi og hjónaherbergi er útsýni út á sundin, að Viðey, Esjunni og til austurs en úr stofum og af suðursvölum er útsýni yfir miðborgina, innsiglinguna í Reykjavíkurhöfn, yfir borgina til suðurs og að Bláfjöllum.
Húsið var allt viðgert og málað að utan árið 2017 auk þess sem skipt hefur verið um allt gler og alla glugga í húsinu auk útidyra- og svalahurða. Þakefni er nýlega endurnýjað. Verið er að endurnýja allan stýribúnað fyrir lyftu og verður sú framkvæmd greidd af seljendum.
Lýsing eignar:Forstofa / hol, parketlagt og rúmgott með fallegri panelklæðningu á veggjum og stóru opnum fataskápum.
Eldhús, dúklagt og rúmgott með góðri borðaðstöðu. Fallegar uppgerðar upprunalegar innréttingar með flísum á milli skápa og glerhurðir að hluta í efri skápum. Frá eldhúsi er fallegt útsýni til norðurs, að Esjunni og út á sundin.
Barnaherbergi I, dúklagt, með fataskápum og fallegu útsýni til austurs.
Hjónaherbergi, dúklagt og stórt með fataskápum á tveimur veggjum og fallegu útsýni til austurs.
Baðherbergi, með glugga, dúklagt gólf og flísalagðir veggir. Í baðherbergi er baðkar með sturtuaðstöðu og nýlegum blöndunartækjum.
Samliggjandi stofur, stórar, bjartar og teppaagðar með útgengi á svalir til suðurs. Frá stofum og af svölum nýtur fallegs útsýnis yfir Laugardalinn, að Bláfjöllum, yfir innsiglinguna í Reykjavíkurhöfn og víðar.
Barnaherbergi II, innaf stofum, teppalagt og með rennihurðum við stofur. Einnig er gengið í þetta herbergi úr holi.
Geymsluskápur, er á stigapalli fyrir framan íbúðina.
Í kjallara hússins eru:Sérgeymsla, 6,6 fermetrar að stærð og með glugga.
Tvö sameiginleg þvottaherbergi með sameiginlegum vélum og glugga.
Tvær sameiginlegar hjólageymslur, með gluggum og útgengi á baklóð.
Þrjár sameiginlegar hleðslustöðvar fyrir rafbíla eru á lóð sunnan við húsið.
Lóðin er fullfrágengin með malbikuðum bílastæðum á framlóð og stórri tyrfðri flöt á baklóð.
Staðsetning eignarinnar er virkilega góð, miðsvæðis í borginni á grónum stað þaðan sem stutt er í leikskóla, skóla, Laugardalslaug, fallegar gönguleiðir í Laugardalnum og á Laugarnestanganum, verslanir og þjónustu.
Allar nánari upplýsingar veittar á skrifstofu Fasteignamarkaðarins ehf. í síma 570-4500 eða á netfanginu fastmark@fastmark.is