Lækjarbrekka 33, 801
Fjarlægð/Seld - Eignin var 562 daga á skrá
Verð |
47,6
|
Stærð |
127
|
Tegund |
Orlofs |
Verð per fm |
374
|
Skráð |
18.6.2018 |
Fjarlægt |
1.1.2020 |
Byggingarár |
2006 |
mbl.is |
|
Miklaborg kynnir: Rúmgott, vel skipulagt heilsárshús á stóru eignarlandi með miklu útsýni. Steypt plata, hitaveita, gólfhiti, heitur pottur og stórir pallar umhverfis húsið. Umfangsmikil ræktun sem er komin vel af stað.
Húsið er 127 fm á einni hæð og skiptist í stórt alrými með eldhúsi, borðstofu og stofu, þrjú svefnherbergi og tvö baðherbergi auk geymslu með sérinngangi. Gólf eru flísalögð og gólfhiti með sjálfstæðri hitastýringu er í hverju herbergi. Gólfsturtur í báðum baðherbergjum. Rúmgóðir fataskápar í svefnherbergjum. Vegleg eldhúsinnrétting með stórri eyju milli eldhús og borðstofu með miklu skápaplássi. Loft eru klædd með hvítri loftaklæðningu og veggir almennt með hvíttuðum panel. Flísar á öllum gólfum.
Pallar við húsið eru yfir 200 fermetrar og undir þeim er 13 fermetra grófgeymsla sem er ekki inni í uppgefinni stærð hússins. Heitur pottur. Hitakerfi frá Gefli sem tryggir góðan vatnsþrýsting á sturtur og blöndunartæki.
Lóðin er 14.700 fermetrar í vesturhlíðum Búrfells og er húsið staðsett ofarlega á svæðinu. Í björtu veðri er útsýni frá húsinu til suðurs yfir Sog og Álftavatn til Ingólfsfjalls og Selfoss, til vesturs yfir Bíldsfell, Úlfljótsvatn og Hengil og til norðurs yfir á Botnsúlur. Ræktun er komin vel af stað og er búið að planta yfir 1.200 plöntum í landið og þar af yfir 50 stórum plöntum af fjölbreyttum tegundum. Á lóðinni er talsvert af fallegum mosa og berjalyngi. Svæðið er afgirt, rafmagnshlið og vegir uppbyggðir.
Húsið er í landi Syðri Brúar við Írafoss í rúmlega 70 km fjarlægð frá Reykjavík og hægt að velja hvort ekið er um Hellisheiði, Þingvöll eða Nesjavelli. Stutt á Selfoss, Þingvelli, Laugarvatn og í golf í Öndverðanesi og Kiðjabergi, en allir þessir staðir eru í innan við 20 mín akstursfjarlægð.
Nánari upplýsingar veitir Jón Rafn löggiltur fasteignasali í síma 695-5520 eða jon@miklaborg.is.