HÚSAFELL - Neðstaklif þrjár lóðir, 320

Verð 30,0
Stærð 9.189
Tegund Lóð/Jarðir
Verð per fm 3
Skráð 6.10.2023
Fjarlægt
Byggingarár
mbl.is 1169149

Helgafell fasteignasala ehf. kynnir:

NEÐSTAKLIF 3, 4 og 5 GLÆSILEGAR SUMARHÚSALÓÐIR Á EINSTÖKUM STAÐ Í HÚSAFELLI.

ATH. Um er að ræða þrjár samliggjandi lóðir.
Þeim fylgja samþykktar teikningar, þar sem gert er ráð fyrir tveggja hæða sumarhúsi, sbr. 3D-myndir, á lóð númer 5 með einstöku ÚTSÝNI.
 


ÝTTU HÉR TIL AÐ SÆKJA SÖLUYFIRLIT

Lóðirnar eru EIGNARLÓÐIR, samtals 9.189 fm. að stærð í hinni skipulagðri frístundabyggð í landi Húsafells III.

Lóðunum fylgja réttindi til afhendingar á heitu og köldu vatni úr brunni við götu. Stofngjald fyrir réttindin hefur þegar verið greitt. 
Ljósleiðari komin við brunn í götu. Innifalið er stofngjald fyrir ljósleiðarann.
Gjald fyrir vatnsnotkun og notkun ljósleiðara fer eftir gjaldskrá landeiganda á hverjum tíma. 
Kvöð um greiðslu árgjalds, kr. 90.000,- sem dekka á viðhald á vegum, merkingum, lýsingu, bílastæðum og þrifum á svæðinu.
Grónar og skjólsælar lóðir með malarstíg að lóðarmörkum.

Lóðir á einstökum stað í Húsafelli – Innst í botnlanga, sem tryggir takmörkun á óviðkomandi umferð.  

Almennt um Húsafell:
Húsafell er meðal fjölsóttustu ferðamannastaða hér á landi, enda einstök náttúruperla í stórkostlegu landslagi. Veðursældin,skógurinn, heitar laugar og sú aðstaða og þjónusta fyrir ferðamenn, sem þar hefur verið komið upp á undanförnum árum, laðar til sín fjölda ferðamanna og dvalargesta á hverju ári. Húsafellsskógur er lágvaxinn birkiskógur á hrauni sem hefur myndast fyrir landnám. Vilja kunnugir meina að dalbotninn í Húsafelli sé einn af veðursælustu stöðum landsins. Húsafell er ríkt af auðlindum, bæði heitu og köldu vatni sem gerir staðinn góðan til búsetu og orlofsbyggðar.
Fjarlægð frá Reykjavík er 130 um km. og 65 km. í Borgarnes. Öll helsta þjónusta er á staðnum, veitingastaður, strandblakvöllur, sundlaug og þjónustumiðstöð. Á svæðinu eru sérlega fallegar gönguleiðir og stutt í náttúruperlur eins og Langjökul, Arnarvatnsheiði, Hraunfossa, Barnafossa og einnig er á staðnum 9 holu glæsilegur golfvöllur. Á sumrin eru gjarnan kvöldskemmtanir með varðeldi og lifandi tónlist á laugardagskvöldum. Á svæðinu er glæsilegt tjaldstæði með aðgengi að sturtum, salerni, þvottahúsi og rafmagni.
Húsafell er paradís fyrir sumarbústaðaeigendur jafnt að sumri og vetri. Allt almennt þjónustustig er stöðugt að aukast á svæðinu.

Nánari upplýsingar má sjá á heimasíðunni www.husafell.is og facebook síðu Húsafells.

Nánari upplýsingar veita:
Knútur Bjarnason, löggiltur fasteignasali, s: 775-5800 / knutur@helgafellfasteignasala.is
Kristján Þór Sveinsson, löggiltur fasteignasali s: 898-6822 / kristjan@helgafellfasteignasala.is

----------------------------------------------------------
Heimasíða Helgafells fasteignasölu
Facebook síða Helgafells

- Hafðu samband og við verðmetum eign þína þér að kostnaðarlausu, þó kannski fyrir einn kaffibolla -

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupa á fasteign:

1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% af fasteignamati fyrir einstaklinga (0,4% fyrir fyrstu kaupendur) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - 2.700 kr. af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt í kringum 50þ., oft lægra eða ekkert lántökugjald fyrir fyrstu kaup. Nánari upplýsingar á heimasíðum lánastofnana.
4. Þjónustusamningur milli kaupanda og fasteignasölu - Kr. 74.400,- m/vsk.

Helgafell fasteignasala bendir kaupendum á ríka skoðunarskyldu sem kveðið er á í lögum um fasteignakaup nr.40/2002. Skorað er á kaupendur að kynna sér vandlega ástand fasteigna og nýta til þess aðstoð sérfræðinga.  Sömuleiðis er bent á upplýsingaskyldu seljanda samanber 26.gr. Laga nr.40/2002 um fasteignakaup og 25.gr. laga nr.26/1994 um fjöleignarhús. Seljanda er bent á að kynna sér tilvitnaðar lagagreinar.

Myndir

Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
Mynd 4
Mynd 5
Mynd 6
Mynd 7
Mynd 8
Mynd 9
Mynd 10
Mynd 11
Mynd 12
Mynd 13
Mynd 14
Mynd 15
Mynd 16
Mynd 17
Mynd 18
Mynd 19
Mynd 20
Mynd 21
Mynd 22
Mynd 23
Mynd 24