Skipholt 50D, 105

Fjarlægð/Seld - Eignin var 1395 daga á skrá

Verð 34,9
Stærð 108
Tegund Atv.
Verð per fm 323
Skráð 7.3.2016
Fjarlægt 1.1.2020
Byggingarár 1993
mbl.is

Fasteignamarkaðurinn ehf. s: 570-4500 kynnir til sölu virkilega vandað og fallegt verslunar/skrifstofuhúsnæði á jarðhæð í nýlegu og vel staðsettu viðhaldslitlu húsi við Skipholt 50d í Reykjavík.

 

Lýsing eignar:

Eignarhlutinn skiptist í alrými með baðherbergi, geymslu, skrifstofu og eldhúskrók innaf.  Steinteppi og flísar eru á gólfum. Aukin lofthæð er í öllum eignarhlutanum, kerfisloft og innfelld lýsing.

Komið er inn í stórt alrými með gluggum til suðurs. Alrýmið er nýtt sem skrifstofur og kynningaraðstaða og er með góðri lofthæð og innfelldri lýsingu í loftum.

Geymsla: er með glugga og hillum.

Baðherbergi: er mjög vandað, flísalagt í gólf og veggi og flísalögð sturta með sturtugleri.

Ræstikompa: er innaf baðherbergi.

Skrifstofa/eldhús: er innst í alrými og afstúkanlegt með glervegg og stórri glerrennihurð. Eldhúsinnrétting er á einum vegg í þessu rými.

Húsið að utan: er í góðu ástandi, álklætt og því viðhaldslítið.

Lóðin: er fullfrágengin og malbikuð með fjölda bílastæða, sameiginleg með öðrum eignarhlutum hússins.

Myndir

Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
Mynd 4
Mynd 5
Mynd 6
Mynd 7
Mynd 8
Mynd 9
Mynd 10
Mynd 11
Mynd 12
Mynd 13
Mynd 14
Mynd 15
Mynd 16
Mynd 17
Mynd 18
Mynd 19
Mynd 20
Mynd 21