Ferjubakki 8, 109
Fjarlægð/Seld - Eignin var 14 daga á skrá
Verð |
63,5
|
Stærð |
102
|
Tegund |
Fjölbýli |
Verð per fm |
626
|
Skráð |
28.3.2024 |
Fjarlægt |
12.4.2024 |
Byggingarár |
1968 |
mbl.is |
|
Lind fasteignasala og Hafþór Örn lgf. kynna í einkasölu fallega 4ra herbergja íbúð á 3. hæð í góðu fjölbýlishúsi við Ferjubakka 8 í 109 Reykjavík.
Mikið uppgerð íbúð,björt og rúmgóð í vel viðhöldnu fjölbýli þar sem nýlega er búið að fara umfangsmiklar framkvæmdir.Nánari upplýsingar veitir Hafþór Örn, löggiltur fasteignasali, S: 699-4040, hafthor@fastlind.isBirt stærð eignar skv. Þjóðskrá Íslands er 101,1 fm. Íbúð 91,1 fm og sér geymsla í sameign 10,4 fm. Eignin skiptist í forstofu, stofu, eldhús, baðherbergi, 3 svefnherbergi og geymslu í sameignNánari lýsing:
Forstofa er rúmgóð með harðparketi á gólfi.
Stofan er rúmgóð og björt, opið er á milli eldhúss og stofu. harðparket á gólfi.
Eldhús er með góðri innréttingu, tengi fyrir uppþvottavél, út frá eldhúsi er gengið er útá svalir með fallegu útsýni.
Baðherbergi er nýlega endurnýjað, skápur með vaski, baðkar, upphengt salerni og handklæðaofn, innrétting með plássi fyrir þvottavél og þurrkara.Flísar á gólfi.
Hjónaherbergi, rúmgott með góðum opnum fataskáp. harðparket á gólfi.
Svefnherbergi I, rúmgott með harðparketi á gólfi
Svefnherbergi II, rúmgott með fataskáp, harðparket á gólfi.
Svalir með fallegu útsýni til suðvesturs
Sér geymsla er á jarðhæð.
Sameign: Sameign er snyrtileg með sameiginlegu þvottahúsi ásamt hjóla og vagnageymslu
Nýlegar framkvæmdir á íbúð2023: Baðherbergi gert upp, sett upp eining fyrir þvottavél og þurrkara og nýr veggur þar fyrir aftan,ný innrétting með vaski og nýr klósettkassi og upphengt salerni, Lagnir fyrir vask og bað endurnýjaðar ásamt öðrum lögnum í vegg. Nýr stammi (WC).
Veggur milli eldhúss og stofu tekinn niður til að stækka rými og gera íbúðina opnari, öll rými máluð og gluggakarmar í svefnherbergjum málaðir.
2022: Skipt um glugga og gler innan íbúðar þar sem þörf var á.
Nýlega var lagt harðparket á alla íbúðina og einnig skipt um miðstöðvarofna, einnig er nýlega búið að skipta um útidyrahurð.
Framkvæmdir á húsi og stigagangi.2023:Bílaplan malbikað og búið er að setja upp 3 staura fyrir rafmagnshleðsu og komast 6 bílar að
2022: Blokk múruð að utan og máluð, Skipt um glugga og gler að mestu leiti, þak yfirfarið og málað ásamt því að skipt var um þakrennur.
2021: Stigagangur málaður og skipt um teppi, settur upp mynddyrasíma,nýjir póstkassar og ofn.
Nýleg er einnig búið að skipta um rafmagnstöflu innan stigagangs.
Um er að ræða frábærlega vel staðsetta eign, stutt er í alla helstu þjónustu, verslun, skóla, leikskóla og samgöngur.
Fyrir nánari upplýsingar hafið samband við: Hafþór Örn, Löggiltur fasteignasali, sími 699-4040, hafthor@fastlind.isGjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila
Fyrstu kaup - 0,4% af heildarfasteignamati
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.