Vindás 4, 110

Fjarlægð/Seld - Eignin var 48 daga á skrá

Verð 34,9
Stærð 83
Tegund Fjölbýli
Verð per fm 421
Skráð 22.10.2017
Fjarlægt 9.12.2017
Byggingarár 1984
mbl.is

*** EIGNIN ER SELD OG ER Í FJÁRMÖGNUNARFERLI. EF ÞIG VANTAR AÐ SELJA SVIPAÐA EIGN ER ÉG MEÐ FÓLK Á SKRÁ SEM ER AÐ LEITA***

Bjarni Blöndal löggiltur fasteignasali kynnir bjarta 3ja herbergja íbúð 4. hæð í botnlangagötu við Vindás 4 í Árbæ. GÆLUDÝR LEYFÐ Í HÚSINU.
Gott útsýni í átt að Bláfjöllum.
  Íbúðin er skráð 82,8fm samkv.  Þjóðskrá Íslands.

Lýsing eignar:  Anddyri með góðum fataskáp, flísar á gólfi. Glerveggur skilur að anddyri og eldhús.  Eldhús með nýlegri nnréttingu, gott skápapláss, keramikhelluborð, t.f uppþvottavél, gert ráð fyrir bæði þvottavél og þurrkara, flísar á gólfi. Stofan er parketlögð, rúmgóð og björt, útgengt út á vestur svalir. Svefnherbergin eru tvö, bæði með góðum fataskápum, parket á gólfum. Baðherbergið er endunýjað, flísalagt í hólf og gólf, nett innrétting, handklæðaofn, gluggi, sturta. Geymsla innan íbúðar með hillum, flísar á gólfi. Ljósleiðari.  

Húsið er klætt að utan - endurbætur og viðgerðir standa yfir sem búið er að greiða fyrir af eiganda.  
Mjög stutt er i grunnskóla, leikskóla, íþróttasvæði Fylkis og Árbæjarlaug. Elliðaárdalur, Heiðmörk og fleiri útivistarsvæði í grendinni.

Fasteignamat 2018: 30.750.000  

Allar nánari upplýsingar veitir Bjarni Blöndal, löggiltur fasteignasali í síma: 662-6163 eða á email: bjarni@fastlind.is

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.000 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 0,5 - 1,0% af höfuðstól skuldabréfs. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill fasteignasalan því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.

Myndir

Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
Mynd 4
Mynd 5
Mynd 6
Mynd 7
Mynd 8
Mynd 9
Mynd 10
Mynd 11
Mynd 12
Mynd 13
Mynd 14
Mynd 15
Mynd 16
Mynd 17
Mynd 18
Mynd 19
Mynd 20
Mynd 21
Mynd 22
Mynd 23