Heiðarbyggð 32, 606
Verð |
38,0
|
Stærð |
78
|
Tegund |
Sumarhús |
Verð per fm |
489
|
Skráð |
7.5.2024 |
Fjarlægt |
|
Byggingarár |
2008 |
mbl.is |
1262127
|
Kasa fasteignir 461-2010.
Fallegt 77,7 fm sumarhús í Heiðarbyggð gengt Akureyri ásamt 10 fm. stakstæðum kofa, þar er gufubað.
Húsið er timburhús, reist ofan á steyptan grunn og plötu. Mikið útsýni er úr húsinu.Húsið skiptist í forstofu, þvottahús/geymslu, eldhús og stofu í sama rými, tvö svefnherbergi og baðherbergi. Einnig er geymslu og vinnurými í kjallara. Stakstæður kofi þar sem er gufubað.Forstofa er flísalögð.
Þvottahús/geymsla: Er beint inn af forstofu. Þar er tengi fyrir þvottavél og vaskur á vegg.
Stofa/Eldhús: Eru í opnu rými þar eru stórir gluggar og mikið útsýni frá húsinu, flísar á gólfum, kamína er í stofu. Gengið er út á góðan pall sem snýr í suðvestur.
Eldhúsinnrétting er hvít Ikea innrétting með efri og neðriskápum, sambyggð eldavél, bakaraofn og uppþvottavél er í innréttingu.
Svefnherbergi: Eru tvö með flísum á gólfum, skápur er í öðru þeirra.
Baðherbergi: Flísalagt, lítil innrétting með vaski, upphengt salerni og sturta.
Geymsla : Rúmgott rými. Lakkað gólf og gott vinnupláss. 300L vatnstankur er í kjallara. Sér inngangur er í rýmið á vesturhlið hússins.
Gufubað: Er í kofa við hlið hússins, fyrir framan gufubað er ágætis geymslupláss.
Timburverönd: rúmgóður pallur er suðvestan megin og einnig er smíðaður til að ganga hringinn í kringum húsið.
- Húsið er laust til afhendingar við kaupsamning.- Mikið útsýni er úr húsinu, yfir Akureyri og nágreni.
- Gólfhiti er í húsinu.
- Lóðarleiga er 95.000 kr á ári og lóðin er 3.751 fm ( 2023 )
Nánari upplýsingar veita:Sigurpáll á sigurpall@kasafasteignir.is eða í síma 696-1006.
Helgi Steinar á helgi@kasafasteignir.is eða í síma 666-0999.