Verð | 28,8 |
Stærð | 64 |
Tegund | Fjölbýli |
Verð per fm | 446 |
Skráð | 27.5.2016 |
Fjarlægt | 14.6.2016 |
Byggingarár | 1987 |
mbl.is |
*MIKIÐ ENDURNÝJUÐ OG FALLEG ÍBÚÐ FYRIR 60 ÁRA OG ELDRI*
Eignatorg kynnir fallega 2ja herb., 64,5 fm. íbúð, á 2. hæð, í lyftuhúsi fyrir 60 ára og eldri, auk ca. 6,2 fm. geymslu í kjallara. Yfirbyggðar suðursvalir með svalaparketi snúa út í gróðursælan garð. Tvær geymslur. Íbúðin getur verið laus fljótlega. Sameiginleg setustofa er á hæðinni. Snyrtileg sameign. Boðið er upp á þjónustu á vegum félags- og þjónustumiðstöðvar Reykjavíkur. Í tengihúsi á jarðhæð er hárgreiðslustofa, setustofa, mötuneyti með verönd, föndur- og spilaherbergi. Fallegur garður og púttvöllur fyrir framan veröndina. Frábær staðsetning, þar sem stutt er í Laugardalinn, laugina, verslun og þjónustu.
Allar nánari upplýsingar veitir:
Eggert Ólafsson, löggiltur fasteignasali, í síma 893 1819, eggert@eignatorg.is
Viltu frítt verðmat fyrir sölu? Get ég aðstoðað þig við sölu eða leigu íbúðar þinnar?
Eftirfarandi hefur m.a. verið endurnýjað frá árinu 2013:
Gólfefni: Fallegt planka plastparket.
Svalagólf: Svalaparket
Gluggar: Þrír PVC gluggar á austurhlið.
Hurð: Brunatefjandi hurð fram á gang.
Harmonikuhurð: Aðskilur forstofu og geymsluherbergi frá öðrum vistarverum.
Baðherbergi: Sturtuklefi, flísar á veggjum, dúkur á gólfi, handklæðaofn, neðri skápur, borðplata, vaskur og blöndunartæki.
Eldhús: Borðplata, höldur, vifta, hillur, blöndunartæki og vaskur.
Innrétting: Á gangi/holi er innrétting með skápum og vinnuborði.
Rúllugardínur og kappar: Í öllum gluggum.
Nánari lýsing: Komið er inn í forstofu með fataskáp. Á gangi/holi er innrétting með vinnuborði. Stofa er með útgengt á yfirbyggðar suðursvalir með svalaparket á gólfi. Eldhús með ljósri innréttingu, viftu og Electrolux eldavél. Svefnherbergi er með stórum fataskáp. Baðherbergi er með innréttingu, sturtuklefa, tengi fyrir þvottavél, handklæðaofn, flísum á veggjum og dúk á gólfi. Geymsluherbergi er í íbúð, með hillum. Rúmgóð sérgeymsla er í kjallara. Nýlegt og fallegt planka plastparket er á gólfum, nema á baðherbergi þar sem er dúkur. Sameiginlegt þvottahús með þvottavél og þurrkara er í kjallara. Lyfta er í húsinu og einnig húsvörður. Sameign og lóð er vel viðhaldið.
Annað: Íbúðin er á vegum samtaka aldraðra. Kaupandi greiðir að auki 1% af kaupverði til Samtaka aldraðra og félagsgjald skv. gjaldskrá. Þjónustuselið í húsinu á og rekur Reykjavíkurborg.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% hjá einstaklingum og 1,6% hjá lögaðilum af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.000 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 1,0% af höfuðstól skuldabréfs. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu, sbr. kauptilboð