Ásakór 13, 203

Fjarlægð/Seld - Eignin var 15 daga á skrá

Verð 65,9
Stærð 107
Tegund Fjölbýli
Verð per fm 617
Skráð 16.8.2023
Fjarlægt 1.9.2023
Byggingarár 2007
mbl.is

Fasteignasalan TORG kynnir: Mjög rúmgóð og falleg íbúð á 3ju hæð í góðu lyftuhúsi við Ásakór 13 í Kópavogi. Um er að ræða eign sem er 3ja herbergja og skráð 106,8fm og þar af er geymsla skráð 11,7fm. Íbúðin skiptist í stórt alrými með eldhúsi og stofu, tvö rúmgóð svefnherbergi, rúmgott baðherbergi, þvottaherbergi innan íbúðar og stóra forstofu. Í sameign er sérgeymsla sem fylgir íbúðinni og sameiginleg hjóla og vagnageymsla. Þetta er mjög björt og falleg eign þar sem stutt er í Hörðuvallaskóla og leikskólana Kór, Baug og Austurkór. Öll þjónusta í hverfinu t.a.m Krónan, Nettó, íþróttaaðstaða í Kórnum og stutt er í útivistarperlurnar Guðmundarlund, Elliðavatn og Heiðmörk. Allar nánari upplýsingar veitir Hafdís Rafnsdóttir löggiltur fasteignasali gsm 820-2222 eða hafdis@fstorg.is

Nánari lýsing eignar:
Forstofa: Komið er inn í rúmgóða forstofu með gráum flísum á gólfi. Góður fataskápur með rennihurðum og hurð aðskilur forstofu frá aðalrými.
Alrými: Eldhús, borðstofa og stofa eru í alrými. Stórir gluggar í stofu hleypa góðri birtu inn og óbyggt svæði er við húsið.
Eldhús: Í eldhúsinu er hvít falleg innrétting með dökkri borðplötu og góðu skápaplássi. Plexigler er á milli efri og neðri skápa. Keramikhelluborð með háf yfir og tengi er fyrir uppþvottavél. Dökkar flísar eru á gólfi í eldhúsinu. Opið er yfir í stofurýmið frá eldhúsinu. 
Stofa: stofan er mjög rúmgóð og björt og samliggjandi eldhúsi. Parket er á gólfi og útgengt út á s/a svalir með fallegu útsýni. 
Baðherbergi: Baðherbergið er mjög rúmgott með flísum á gólfi og veggjum. Baðkar er með sturtuaðstöðu og glerskilrúmi. Hvít innrétting með dökkri borðplötu og góðu skápaplássi. Handklæðaofn er á baðherberginu.
Svefnherbergi: Svefnherbergin eru tvö. Bæði herbergin eru rúmgóð með parketi á gólfi og fallegum fataskápum með rennihurðum. 
Þvottaherbergi: Þvottaherbergið er innan íbúðar með hvítri innréttingu með vaski og flísum á gólfi. 
Geymsla: Sérgeymsla er í sameign sem er skráð 11,7fm. einnig er sameiginleg hjóla og vagnageymsla í sameign.  
Niðurlag: þetta er virkilega björt og falleg íbúð í góðu lyftuhúsi með fallegu útsýni yfir Heiðmörkina og að Bláfjöllum. Allar nánari upplýsingar veitir Hafdís Rafnsdóttir löggiltur fasteignasali gsm 820-2222 eða hafdis@fstorg.is

Myndir

Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
Mynd 4
Mynd 5
Mynd 6
Mynd 7
Mynd 8
Mynd 9
Mynd 10
Mynd 11
Mynd 12
Mynd 13
Mynd 14
Mynd 15
Mynd 16
Mynd 17
Mynd 18
Mynd 19