Brautarholt 6, 105

Fjarlægð/Seld - Eignin var 8 daga á skrá

Verð 48,9
Stærð 51
Tegund Fjölbýli
Verð per fm 955
Skráð 21.6.2023
Fjarlægt 30.6.2023
Byggingarár 1958
mbl.is

Eignamiðlun kynnir:

Björt og falleg tveggja herbergja íbúð á 4. hæð í lyftuhúsi með rúmgóðum og sólríkum svölum. Aukin lofthæð og mikið útsýni til bæði suðurs og norðurs. Íbúðir á þessari hæð voru útbúnar og innréttaðar árið 2018. 

**Sækja söluyfirlit**

Nánari lýsing:
Inngangur: Sameiginlegur inngangur inn í snyrtilega sameign með lyftu.
Forstofa: Gengið inn í alrými með hlýlegu harðparketi á gólfum. Myndavélasími  er í íbúð sem og eldvarnarhurð.  
Eldhús: Falleg, grá innrétting með AEG tækjum og innbyggðri uppþvottavél. Eldhús er opið við stofu.
Stofa: Rúmgóð, parketlögð stofa með stórum glugga, útgengi á stórar suðursvalir með miklu útsýni. Aukin lofthæð setur svip á rýmið.
Baðherbergi: Flísalagt í hólf og gólf með walk-in sturtu, upphengdu salerni, handklæðaofni og innréttingu.
Svefnherbergi: Rúmgott og einstaklega bjart, parketlagt herbergi með stórum útsýnisglugga og góðum fataskáp.
Þvottahús/geymsla: Sameiginlegt þvottahús er á hæðinni ásamt geymsluskáp sem tilheyrir íbúð. Útgengi á sameiginlega svalir.
Sameign: Sameign hússins er öll hin snyrtilegasta.  

Framkvæmdir og viðhald að sögn seljanda:
Íbúðir á 4. hæð í húsinu voru útbúnar og innréttaðar árið 2018. Innréttingar, hurðir, gólfefni, gluggar, rafmagn og lagnir innan íbúðar eru því frá þeim tíma. Íbúðir á 3. hæð voru innréttaðar 2022 og unnið er að því að innrétta íbúðir á 2. hæð hússins. Á jarðhæð verður verslunar- og þjónustuhúsnæði.
Stofugluggi var yfirfarinn og lagaður 2022
Lyftubúnaður í húsi var endurnýjaður 2022.
Til stendur að útbúa skemmtilega aðstöðu í sameiginlegu porti á baklóð fyrir hjól, vagna og sorphirðu. Kostnaður vegna framkvæmda greiðist af framkvæmdaraðila.

Nánari upplýsingar veita:
Lilja Guðmundsdóttir löggiltur fasteignasali á lilja@eignamidlun.is eða í síma 649-3868

***
Ábyrg þjónusta í áratugi. Eignamiðlun var stofnuð 1957 og er elsta starfandi fasteignasala á Íslandi. Reynsla, heiðarleiki og þekking á fasteignamarkaðnum eru grunnur að farsælum viðskiptum. 

Eignamiðlun Grensásvegi 11, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.

Heimasíða Eignamiðlunar

Eignamiðlun á Facebook

Myndir

Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
Mynd 4
Mynd 5
Mynd 6
Mynd 7
Mynd 8
Mynd 9
Mynd 10
Mynd 11
Mynd 12
Mynd 13
Mynd 14
Mynd 15
Mynd 16
Mynd 17
Mynd 18
Mynd 19
Mynd 20
Mynd 21