Laugavegur 39, 101

Fjarlægð/Seld - Eignin var 21 dag á skrá

Verð 49,9
Stærð 97
Tegund Fjölbýli
Verð per fm 517
Skráð 10.3.2022
Fjarlægt 1.4.2022
Byggingarár 1942
mbl.is

LIND FASTEIGNASALA KYNNIR:
Bjarta og sjarmerandi 66 fm tveggja herbergja íbúð á 3. hæð, ásamt 30,6 fm geymslu í kjallara, við Laugaveg 39 í Reykjavík. Aukin lofthæð er á allri íbúðinni ásamt fallegum stórum gluggum. Húsið hefur fengið gott viðhald og var nýlega bæði múrviðgert og steinað að utan, ásamt því að skipt var um þakjárn. Stigagangurinn er sérstaklega rúmgóður og fallegur, nýlega teppalagður auk þess sem anddyri var flísalagt og sett upp ný ljós með hreyfiskynjurum.
 
Sérmerkt bílastæði á baklóð fylgir eigninni, þaðan er einnig hægt að ganga inn um sameiginlegan inngang.
 

Nánari lýsing:
Forstofa: Stór fataskápur. Parket á gólfi.
Eldhús: Stórt og bjart, útgengt á svalir sem snúa í norður. Dúkur á gólfi.
Stofa: Rúmgóð og björt, snýr í suður að Laugavegi. Parket á gólfi.
Svefnherbergi: Gluggi í norður. Parket á gólfi
Baðherbergi: Skápur, salerni og sturta. Lagt fyrir þvottavél. Dúkur á gólfi og veggjum.
 
Eftirfarandi viðhald var gert á árunum 2015-2020:
Þak endurnýjað.
Framhlið húss viðgert og steinað.
Bakhlið húss viðgert og steinað.
Svalir viðgerðar og lagaðar.
Gluggar og svalahurðir málaðar.
Stigagangur var málaður.
Ullarteppi lagt á stigagang og flísalögð forstofan.
Ljós í alla sameign með snertiskynjurum.
 
Góð eign í miðbæ Reykjavíkur þar sem mjög stutt er í alla helstu þjónustu. Hér er gott tækifæri er á að breyta í þriggja herbergja íbúð.
 
ALLAR NÁNAR UPPLÝSINGAR VEITIR: STEFANÍA BJÖRG EGGERTSDÓTTIR, LÖGG.FASTEIGNASALI Í SÍMA 895-0903/ STEFANIA@FASTLIND.IS 

Myndir

Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
Mynd 4
Mynd 5
Mynd 6
Mynd 7
Mynd 8
Mynd 9
Mynd 10
Mynd 11
Mynd 12
Mynd 13
Mynd 14
Mynd 15
Mynd 16