Verð | 780,0 |
Stærð | |
Tegund | Lóð/Jarðir |
Verð per fm | |
Skráð | 20.12.2016 |
Fjarlægt | 1.1.2020 |
Byggingarár | |
mbl.is |
Höfði fasteignasala kynnir:
SELT!
Grímsstaðir á Fjöllum - stutt kynning
Grímsstaðir 1- Norðurþing landnúmer: 154348 - Jörð (fast. 216-6947) 9/18 hlutar heildarlands hinnar gömlu Grímsstaðajarðar.
Grímstunga - Norðurþing landnúmer: 154351 - Jörð (fast. 216-6965) 5/18 hlutar heildarlands hinnar gömlu Grímsstaðajarðar, (88,75% til sölu).
Grímstunga 2 - Norðurþing landnúmer: 154352 - Jörð (skráður 25% eignarhluti í óræktuðu landi jarðarinnar Grímstungu).
Hlutur ríkisins er 4/18 hlutar heildarlands hinnar gömlu Grímsstaðajarðar sem er ekki til sölu.
Stærð: Grímsstaðir er ein stærsta jörð landsins, eða u.þ.b. 306 ferkílómetrar. Sá eignarhluti sem nú er til sölu er því um 228 ferkílómetrar. 228 ferkílómetrar eru 22.800 hektarar. Lega: Grímsstaðir á Fjöllum eru við krossgötur á hálendinu norðan Vatnajökuls, einungis 4 km frá þjóðvegi 1 við veg 864, Dettifossveg. Grímsstaðir eru fjarri byggð, og því friðsæld mikil, en um leið er stutt í afar vinsæla og áhugaverða ferðamannastaði. Egilsstaðir eru u.þ.b. 120 kílómetra í suðri, en Mývatn um 40 kílómetra í vestri. Grímsstaðir eru að mestu leyti háslétta, fjallakyrrðin allsráðandi og útsýni ægifagurt og víðsýni til allra átta, meðal annars er hvergi betra að sjá Herðubreið. Stutt er í Vatnajökulsþjóðgarð (stærsta þjóðgarð Evrópu), bæði í norðri (Jökulsárgljúfur) og í suðri (meginhluti þjóðgarðsins), og því liggur jörðin að (og er hluti af) einu stærsta, ósnortna víðerni Evrópu. Landamerki jarðarinnar í vestri markast af Jökulsá á Fjöllum, talið í tugum kílómetra, líklega um 25 kílómetra. Dettifoss, er u.þ.b. 15 mínútna akstur frá jörðinni, en Herðubreiðarlindir og Herðubreið um 1,5 klst. í akstri, og Askja um 2,5 klst. Stutt er í Ásbyrgi, Hljóðakletta, Jökulsárgljúfur, Jarðböðin við Mývatn, Fjallakaffi í Möðrudal, og svo mætti lengi telja. Á jörðinni skiptast á mýrar, grösugar heiðar, mólendi, sandar og melar. Þar eru margar ferskvatnsuppsprettur. Fjórar bergvatnsár renna um jörðina og útí Jökulsá á Fjöllum. Á jörðinni er flugvöllur sem þolir léttari vélar. Verðmæti: Vatnsréttindi jarðarinnar eru mikil, landamerki jarðarinnar meðfram Jökulsá á Fjöllum er um 25 kílómetrar að lengd. Jökulsá á Fjöllum er ein vatnsmesta á landsins. Margt kemur til greina varðandi ferðaþjónustu á svæðinu, svo sem hótelrekstur, bændagisting, hestaleiga, jeppaakstur til ferðamannastaða á hálendinu. Möguleikar á vetrarferðaþjónustu eru ekki síðri t.d. jeppaferðir, sleðaferðir og fleira. Grímsstaðir á fjöllum er einn besti staðurinn til að upplifa norðurljósin á Ísland. Mikið er um ferskvatn á jörðinni. Veiði á rjúpu og gæs getur verið mjög góð, en einnig er staðbundin bleikja í 3-4 ám sem verður allt að 7 pund. Aðstaða til fluguveiði er frábær. Möguleikar gætu falist í margs konar búskap. Með tilkomu nýrrar borunartækni er sjálfsagt að horfa til þess að finna heitt vatn í jörðu, kannski fleira.
Allar nánari uppl. veitir: Jóhann Friðgeir GSM: 896-3038
e-mail: johann@hofdi.is