Gullsmári SELD 9, 201

Fjarlægð/Seld - Eignin var 35 daga á skrá

Verð 52,7
Stærð 90
Tegund Fjölbýli
Verð per fm 583
Skráð 4.6.2021
Fjarlægt 9.7.2021
Byggingarár 1996
mbl.is

EIGNIN ER SELD
***Fyrir 60 ára og eldri***
Björt og vel skipulögð 2ja herbergja íbúð með yfirbyggðum útsýnissvölum á 11. hæð og bílskúr á þessum vinsæla stað í Kópavogi. Myndavélasími er í húsinu. Eignin er laus við kaupsamning. 

Eignin er skráð skv. Þjóðskrá Íslands 61,6 fm. og bílskúr 28,8 fm. 

Eignin skiptist í:

Anddyri með innbyggðu skápaplássi og parket á gólfi. 
Stofa mjög rúmgóð og björt með parketi á gólfi. Útgent er út á yfirbyggðar útsýnissvalir.
Eldhús er opið og bjart með  snyrtilegri innréttingu, tengi fyrir uppþvottavél, flíðsar á milli skápa, eldhúskrókur með fallegu útsýni og paket á gólfi. 
Búr/geymsla er inn af eldhúsi, parket á gólfi. 
Hjónaherbergi með góðu skápaplássi og parket á gólfi.
Baðherbergi með innangengri sturtu, nýlegri innréttingu, tengi fyrir þvottavél og flísalagt í hólf og gólf. 
Geymsla íbúðar er í kjallara.
Bílskúr frístandandi með vatni, rafmagni og með litlu millilofti.

Sameign er öll hin snyrtilegasta.
Á 13. hæð hússins er veislusalur til afnota fyrir íbúa hússins.

Innangengt er í félagsmiðstöð aldraðra í Kópavogi í Gullsmára 13, þar sem boðið er upp á fjölbreytt félagsstarf og heitan mat í hádeginu. Í félagsmiðstöðinni er jafnframt hársnyrtistofa og fótsnyrtistofa.
Góð eign á mjög góðum stað þar sem stutt er í alla þjónustu.


Allar nánari upplýsingar um eignina veitir Guðbjörg G. Sveinbjörnsdóttir lpöggiltur fasteignasali í síma 8995949 eða á netfaningu gudbjorg@trausti.is eða Aðalsteinn Bergdal í síma 7670777 eða á netfanginu alli@trausti.is

Forsendur söluyfirlits: 
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. 

Skoðunarskylda: 
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Trausti fasteignasala því benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.500 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.

Myndir

Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
Mynd 4
Mynd 5
Mynd 6
Mynd 7
Mynd 8
Mynd 9
Mynd 10
Mynd 11
Mynd 12
Mynd 13
Mynd 14
Mynd 15
Mynd 16
Mynd 17
Mynd 18
Mynd 19
Mynd 20
Mynd 21
Mynd 22
Mynd 23
Mynd 24
Mynd 25