Herjólfsstígur 14, 805
Fjarlægð/Seld - Eignin var 16 daga á skrá
Verð |
55,9
|
Stærð |
142
|
Tegund |
Sumarhús |
Verð per fm |
393
|
Skráð |
22.11.2022 |
Fjarlægt |
9.12.2022 |
Byggingarár |
|
mbl.is |
|
Fasteignaland kynnir:
Herjólfsstígur 14, Sumarhús í byggingu ásamt gestahúsi í landi Ásgarðs.
Fasteignaland kynnir: Sumarhús í byggingu við Herjólfsstíg í landi Ásgarðs í Grímsnes-og Grafningshreppi.
Um er að ræða 27,3 fm fullbúið gestahús ásamt 86,3 fm sumarhúsi auk 52,5 fm millilofti (gólfflötur). Húsið stendur á 10.762 fm eignarlóð með glæsilegu útsýni.
Lýsing á eign: Samkvæmt teikningur er gert ráð fyrir forstofu, þremur herbergjum, baðherbergi með útgengi út á verönd. Eldhúsi og stofu í sama rými með útgengi út á verönd. Millilofti með opnanlegu fagi. Geymsla þar sem gengið er inn af sólpalli.
Húsið klætt með Lerki að utan. Gluggar eru ál-tré ásamt hurðum. Stór sólpallur.
Hægt er að fá húsið afhent eins og myndirnar sýna án sólpalls og án einangrunar, frágengin rotþró, kalt vatn komið, búið að greiða fyrir heitt vatn ásamt rafmagni. Að innan einangrað, plastað og komin rafmagnsgrind.
Verð kr. 62.000.000.-
Með sólpalli, einangrað, plastað með rafmagnsgrind að innan kr. 65.000.000-
Gestahúsið er skáð 27,3 fm og er fullklárað. Hol, baðherbergi, alrými með eldhúskrók (innrétting).
Stutt er til þekktra staða á Suðurlandi, Skálholts, Þingvalla, Laugarvatns, Geysis, Gullfoss og Kersins. Stutt er í veiði, sundlaug, golfvöll, íþróttavöll og fallegar gönguleiðir. Selfoss er aðeins í ca. 18 km fjarlægð og því stutt í alla þjónustu. Frá Reykjavík eru aðeins um 70 km sé ekið um Hellisheiði. Styttra um Nesjavallaveg.
Upplýsingar gefa:
Heimir Eðvarðsson, löggiltur fasteignasali s. 893-1485, netfang: heimir@fasteignaland.is
Árni Björn Erlingsson, löggiltur fasteignasali s. 898-0508, netfang: arni@fasteignaland.is