Gagnheiði 18, 800

Fjarlægð/Seld - Eignin var 33 daga á skrá

Verð 78,0
Stærð 702
Tegund Atv.
Verð per fm 111
Skráð 29.11.2019
Fjarlægt 1.1.2020
Byggingarár 1977
mbl.is

Domusnova fasteignasala og Sverrir Sigurjónsson, lögmaður og löggiltur fasteignasali kynna:
Í einkasölu:
Iðnaðarhúsnæði, byggt úr stálgrind og steypu, á góðum stað á Selfossi.
Eignin hefur hýst starfsemi fóðurstöðvar Suðurlands og ber þess nokkur merki, þannig er stór frystigeymsla í hluta eignarinnar, eða um 150-200 fm. Þá er í einum hluta hennar niðurtekið gólf, eða gryfja.
Í raun er um tvö hús að ræða og er annað húsið stór geymur, með áðurnefndri gryfju í endanum. Hinn hlutinn geymir frystigeymslu, kaffistofu, skrifstofu og stórt opið rými.
Öll gólf eignarinnar eru steypt. Milliveggir, utan um skrifstofu og kaffistofu eru steyptir, eða hlaðnir.

Engir gluggar eru á eigninni, nema á skifstofu og kaffistofu hluta hennar.
Bárujárn á suðurhlið er farið að láta verulega á sjá, en á þeirri hlið er stór innkeyrsluhurð.
Öll lóð hússins er malbikuð, eða um 700 fm. 

Nánari upplýsingar veitir Sverrir Sigurjónsson, lögmaður og löggiltur fasteignasali í S: 662-4422 og eða sverrir@domusnova.is



 

Myndir

Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
Mynd 4
Mynd 5
Mynd 6
Mynd 7
Mynd 8
Mynd 9