Sunnusmári 4, 201

Fjarlægð/Seld - Eignin var 60 daga á skrá

Verð 77,8
Stærð 86
Tegund Fjölbýli
Verð per fm 900
Skráð 1.10.2022
Fjarlægt 1.12.2022
Byggingarár 2021
mbl.is


Ný og stórglæsileg 86,4 fm 3ja herbergja lúxusíbúð ásamt stæði í bílageymslu í nýjasta hluta Smárans. IMIROX býður viðbótarlán upp í 100% af kaupverði til lögaðila gegn krossveði eða 80% án krossveðs.

Sérlega glæsileg, ný vönduð og vel skipulögð 86,4 fm 3ja herbergja íbúð ásamt stæði í bílageymslu í nýjasta hluta Smárans í Kópavogi.
Húsið er glæsilegt, nýtt og vandað lyftuhús, klætt að utan með fallegri viðhaldsléttri klæðningu. 

Íbúð 408 er 3ja herbergja á 4. hæð í lyftuhúsi með útsýni yfir stóran sameiginlegan garð og yfir til Kópavogskirkju á Kársnesi.
Íbúðin er nýmáluð í mildum brúnleitum jarðlit og með parketi og flísum á gólfi.
Vandað hefur verið til allrar smíði og tækja í íbúðinni.
Mynddyrasími og hitastýring eru m.a. tengjanlegar við farsíma.

Íbúðin skiptist upp í tvö rúmgóð svefnherbergi með fataskápum, baðherbergi með þvottaaðstöðu, forstofu og gott alrými.
7,5 fermetra sér geymsla með mikilli lofthæð er í kjallara.
Sér bílastæði er á palli C í bílastæðahúsi, skammt frá lyftu.
Glæsilegar þaksvalir á 7. hæð eru sameiginlegar með öðrum íbúðum í stigaganginum.
Þetta er vönduð, ný og glæsileg eign sem vert er að skoða.
 
201 Smári er nýtt borgarhverfi miðsvæðis á höfuðborgarsvæðinu.
Hverfið umhverfis Smárann er orðið mjög rótgróið og býður upp á alla helstu þjónustu.
Þar er að finna leikskóla, skóla, fjölmargar verslanir og veitingahús.
Einnig eru íþróttamannvirki, heilsurækt og heilsugæsla innan seilingar.

Öll hönnun í 201 Smára er nútímaleg með þarfir þeirra kröfuhörðustu í huga.
Gangstéttar eru upphitaðar og hverfið tengist umhverfinu vel með göngu og hjólastígum.
Tengingar fyrir rafmagnsbíla eru í bílageymslum og víða í nágrenninu.
Deilibílaþjónusta er einnig staðsett í hverfinu.
Gert er ráð fyrir Borgarlínustöð við hverfið.

Góð leiksvæði og opnir garðar eru í hverfinu.
Nýjar sérverslanir og veitingahús munu opna í neðstu götu hverfisins, næst Smáralind.

 

IMIROX (www.imirox.is) býður viðbótarlán til lögaðila á þessa eign, allt að 100% af kaupverði (með krossveð í annarri eign) eða allt að 80% án krossveðs. Frekari upplýsingar um lánamöguleika IMIROX: info@imirox.is  eða 777-2500.

Helgi Jón Harðarson, löggiltur fasteignasali hjá fasteignasölunni Hraunhamar annast söluna, sýnir íbúðina, og gefur frekari upplýsingar í síma 893-2233 eða helgi@hraunhamar.is.

Tilboðsgerð

Finndu frekari upplýsingar um eignina á www.e-fasteignir.is
- Söluyfirlit
- Senda fyrirspurn
- Tilboðsgerð
Skiptir milljón þig máli? Fáðu tilboð í söluþóknunina á www.e-fasteignir.is
Hugbúnaðurinn sendir fyrirspurn á alla fasteignasala á Íslandi.

Myndir

Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
Mynd 4
Mynd 5
Mynd 6
Mynd 7
Mynd 8
Mynd 9
Mynd 10
Mynd 11
Mynd 12
Mynd 13
Mynd 14
Mynd 15
Mynd 16
Mynd 17
Mynd 18
Mynd 19
Mynd 20
Mynd 21
Mynd 22
Mynd 23
Mynd 24
Mynd 25
Mynd 26