Eskihlíð 8, 105

Fjarlægð/Seld - Eignin var 34 daga á skrá

Verð 89,9
Stærð 130
Tegund Fjölbýli
Verð per fm 693
Skráð 30.9.2022
Fjarlægt 4.11.2022
Byggingarár 1955
mbl.is

Ný glæsileg eign í einkasölu, fjögra herbergja ný uppgerð íbúð á 1. hæð að Eskihlíð 8 í Reykjavík. Íbúðin er ca. 130. fm
Fasteignasalan Valhöll og Anna F. Gunnarsdóttir löggiltur fasteignasali s. 892-8778 eða anna@valholl.is kynna bjarta og vel skipulagða fjögra herbergja endaíbúð á 1. hæð til hægri við Eskihlíð 8, 105 Reykjavík.
Eignin er ný uppgerð, öll ný máluð, nýtt parket, nýjar flísar á öllum böðum, nýleg raftæki og ný blöndunartæki.
Skv. FMR er eignin 129.8 fm, þar af er geymsla 7 fm. Húsið er í framkvæmdum á kosnað seljanda.
Hol: er með parketi og geymslu innaf því.
Eldhús: er bjart með hvítri innréttingu og eldhús eyju. Öll raftæki eru nýleg frá Siemens.
Stofa: Stofan er björt með samliggjandi borðstofu. Góðir gluggar og útgengi er á vestursvalir. Nýtt parket.
Svefnherbergisgangur: er með parketi og stórum fataskáp.
Baðherbergið: er flísalagt í hólf og gólf. Hvít innrétting, sturta með gleri, upphengt klósett. Innangengt úr hjónaherberginu.
Hjónaherbergi: bjart með parketi á gólfi og góðu skápaplássi,  innangengt er inn á baðherbergi.
Klósett: Upphengt klósett með flísum í hólf og gólf og hvítri innréttingu.
Þvottahús: Með hvítri innréttingu, vaski, pláss fyrir þvottavél og þurrkara. Flísalagt í hólf og gólf. í þvottahúsinu er sturta með gleri. Einnig er gluggi á þvottahúsinu
Svefnherbergi: er með parketi á gólfi og góðum glugga.
Svefnherbergi: er með parketi á gólfi og góðum glugga.
Sérgeymsla: er í kjallara ásamt sameiginlegu þvottahúsi og hjólageymslu.

Samkv. upplýsingum frá seljanda=  Endurgert eldhús, bætt við eyju. Rafmagn hefur verið endurnýjað að hluta, bætt hefur við nýjum tenglum fyrir ljós og innstungur. Einnig hefur verið bætt við tenglum fyrir ofan eldhúseyjuna og tenglum fyrir sjónvarp.  Nýtt parket ( frá Agli  Árnasyni) er á allri íbúðinni með vönduðu undirlagi. Bætt hefur verið við gestaklósetti. Þvottahús hefur verið uppfært og endurgert með sturtu. Öll ný blöndunartæki frá Grove og upphengd klósett. Eignin er öll ný máluð. Ofnar hafa verið málaðir og fæturnir sem náðu niður á gólf fjarlægðir.   Drenað hefur verið í kringum húsið og skólplagnir skiptar út.   Sameign hefur einnig verið haldið vel við. Gluggum skipt út í geymsluherbergi  árið 2013, Sameignin máluð og stigagangur teppalagður árið 2017.
Framkvæmdir: 
- Húsið múrviðgert og málað 2022
- Skipt um glugga 2013
- Drenað 2018 
- Lögn fóðruð út í götu 2021
Kosnaður við viðgerðir á íbúð ca eru 3.000.000. m og hafa verið greiddar af seljandi á árinu.
 Eignin er á frábærum stað, stutt í alla þjónustu, skóla, heilsugæslu, leikskóla og fallegar göngluleiðir eru til staðar.
Allar nánari upplýsingar og milligöngu um skoðun annast Anna F.Gunnarsdóttir löggiltur Fasteignasali og útlitshönnuður S: 892-8778  anna@valholl.is  Vönduð vinnubrögð, mikil eftirfylgni. Vantar eignir í sölu. Geri frítt verðmat.
VALHÖLL FASTEIGNASALA  SÍÐAN 1995 - FARSÆL OG ÖRUGG FASTEIGNAVIÐSKIPTI - EINGÖNGU LÖGGILTIR FASTEIGNASALAR OG LÖGFRÆÐINGAR ANNAST ÞÍN SÖLUMÁL HJÁ OKKUR.   VALHÖLL ER FRAMÚRSKARANDI FYRIRTÆKI SAMKVÆMT GREININGU CREDITINFO 2015 til 2020, EN AÐEINS 2 % FYRIRTÆKJA Á ÍSLANDI NÁÐU ÞEIM GÆÐASKILYRÐUM. 

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu kaupenda:   Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Valhöll fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand eigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun ef þörf er á.    Forsendur söluyfirlits:   Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Myndir

Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
Mynd 4
Mynd 5
Mynd 6
Mynd 7
Mynd 8
Mynd 9
Mynd 10
Mynd 11
Mynd 12
Mynd 13
Mynd 14
Mynd 15
Mynd 16