Kolagata 1, 101

Fjarlægð/Seld - Eignin var 6 daga á skrá

Verð 134,9
Stærð 126
Tegund Fjölbýli
Verð per fm 1.071
Skráð 30.9.2022
Fjarlægt 7.10.2022
Byggingarár 2018
mbl.is

ALDA fasteignasala kynnir í einkasölu 4 herbergja 126 fm íbúð á fimmtu hæð í glæsilegu lyftuhúsi að Kolagötu 1 (áður Geirsgata 2), á besta stað í miðbænum. Aukin lofthæð er innan eignarinnar, tvö baðherbergi, þvottaherbergi, suður svalir, og geymslu í sameign, íbúðin með stórum og björtum gluggum og rúmgóðu hjónaherbergi með baðherbergi inn af ásamt tveimur minni svefnherbergjum.

Fasteignamat næsta árs er 98.600.000kr.

Allar nánari upplýsingar veitir Jón Guðni Sandholt löggiltur fasteignasali, sími: 777-2288 eða jon@aldafasteignasala.is.
 
Nánari lýsing:

Forstofa Komið er inn í forstofu með fataskáp.
Þvottahús er til vinstri úr forstofu með flísum á gólfi.
Barnaherbergin eru tvö með parket á gólfum.
Baðherbergin eru glæsileg, annað inn af hjónaherbergi með marmaraflísum á gólfi og veggjum. Innréttingar á böðum og eldhúsi eru glanshvítar en fataskápar eru hvítir.
Eldhús hefur glæsilega eldhúsinnréttingu á vegg og eldunareyja með helluborði, innfelldri viftu og innbyggðum vínkæli.
Stofa er með parketi á gólfi og þar er gengið út á suður svalir með glerhandriði og tréklæðningu á gólfi.Til vinstri úr stofu er stuttur gangur þar sem gengið er í rúmgott hjónaherbergi með miklu skápaplássi. Glæsilegt baðherbergi er innaf hjónaherberginu.
 
Allt efnisval og frágangur er sérlega vandað. Marmaraflísar eru á gólfi þvottahúss og gólfi og veggjum beggja baðherbergja. Innréttingar á böðum og eldhúsi eru glanshvítar en fataskápar eru hvítir. Rekstraraðilar sjá um rekstur og viðhald bílakjallarans, þar sem hægt er að fá leigt stæði, Margvíslegar útfærslur eru á leigusamningum sem ætti að koma til móts við þarfir hvers og eins.

Allar nánari upplýsingar veitir Jón Guðni Sandholt löggiltur fasteignasali, sími: 777-2288 eða jon@aldafasteignasala.is.

Kostnaður kaupanda
Stimpilgjald kaupsamnings einstaklinga  er  0,8%  og lögaðila  1,6% af fasteignamati eignar.
Lántökugjald getur verið breytilegt eftir lánastofnunum,  oftast 1%.
Þinglýsingargjald er 2.500kr fyrir hvert skjal.
Þjónustu- og umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.

Myndir

Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
Mynd 4
Mynd 5
Mynd 6
Mynd 7
Mynd 8
Mynd 9
Mynd 10
Mynd 11
Mynd 12
Mynd 13
Mynd 14
Mynd 15
Mynd 16
Mynd 17
Mynd 18
Mynd 19
Mynd 20
Mynd 21
Mynd 22
Mynd 23
Mynd 24
Mynd 25
Mynd 26
Mynd 27
Mynd 28
Mynd 29
Mynd 30
Mynd 31