Verð | 107,0 |
Stærð | 81 |
Tegund | Fjölbýli |
Verð per fm | 1.323 |
Skráð | 29.9.2022 |
Fjarlægt | 30.9.2022 |
Byggingarár | 2019 |
mbl.is |
Íbúð 310 er á 3.hæð. Henni fylgja glæsilegar yfirbyggðar 12 fm suður svalir. Úr anddyri sem er með fataskáp er gengið beint inn í bjarta og stóra stofuna með stórum glugga í átt að fallegum garðinum og gólfsíðum gluggum bæði til vesturs og suðurs. Sér þvottahús er innan íbúðar. Íbúðin er parketlögð með vönduðu gólfefni. Sérgeymsla 6,6 fm er i kjallara. Ekki fylgir stæði í bílageymslu með þessari íbúði, en möguleiki er að leigja stæði í Hörpu- eða Hafnartorgi. Á vefsvæði Austurhafnar www.austurhofn.is er að finna nánari upplýsingar.
Íbúðin skilast með gólfefnum. Sérsmíðaðar innréttingar úr amerískri hnotu frá ítalska handverkshúsinu Gili Creations eru í eldhúsi, baðherbergjum og er klætt marmaraflísum. Almennt er íbúðunum skilað með fullbúnu eldhúsi, með tækjum af vönduðustu gerð frá Miele og Liebherr. Spansuðuhelluborð, vifta í helluborði, ofn, innbyggð uppþvottavél, ísskápur, vaskur og blöndunartæki. Snjallheimiliskerfi er í öllum íbúðum, sem gerir íbúum kleift a stýra lýsingu heimilisins, hitastigi, ofl
Þórunn Pálsdóttir lögg. fasteignasali í síma 773-6000 eða thorunn@miklaborg.is