Dugguvogur 15 (106), 104

Fjarlægð/Seld - Eignin var 7 daga á skrá

Verð 91,0
Stærð 118
Tegund Fjölbýli
Verð per fm 769
Skráð 22.9.2022
Fjarlægt 30.9.2022
Byggingarár 2022
mbl.is

Miklaborg kynnir: glæsilega 4ra herbergja lúxusíbúð á 1. hæð í nýju og sérlega vönduðu húsi í Vogabyggð Reykjavíkur. Íbúðin er 118.3 fm og er öll hin vandaðasta með sérsmíðuðum ítölskum innréttingum og kvartsstein á borðum, gólfsíðum gluggum og gólfhita, vönduðu vínilparketi á gólfum og ítölskum flísum á votrýmum. Öll tæki fylgja með í kaupum (ísskápur, uppþvottavél, þvottavél og þurrkari).

Allar nánari upplýsingar gefa:

Ólafur Finnbogason löggiltur fasteignasali í síma 822 2307 eða olafur@miklaborg.is

Árni Davíð Bergs í síma: 625-2500 eða arni@miklaborg.is

Íbúðin er í sérflokki og var hvergi til sparað við hönnun og smíði hennar.

NÁNARI LÝSING: íbúð 106 er skráð 118.3 fm og skiptist í anddyri með fataskápum, rúmgott alrými með opnu eldhúsi, sjónvarpsrými, baðherbergi, þvottahús og þrjú góð svefnherbergi. Íbúðinni fylgir geymsla og stæði í bílakjallara.

Eldhúsið er opið við stofu. Sérsmíðuð innrétting og eldhúseyja úr reyktri eik frá Gili Creation og á borðplötum og á veggnum bak við vaskinn er fallegur kvartssteinn. Innfelld lýsing í innréttingu, undirlímdur vaskur, blöndunartæki frá Grohe og vönduð tæki frá Ormsson, þ.e. span helluborð, blástursofn, innbyggð uppþvottvél, innbyggður ísskápur og gufugleypir.

Stofa/borðstofa er í stóru opnu rými og er með gólfsíðum gluggum og útgengi á sólríka 7.1 fm verönd sem snýr til suðurs. Íbúðin snýr að fallegum inngarði hússins.

Baðherbergið er glæsilegt, flísalagt í hólf og gólf með stórum, ítölskum terrazzo flísum. Innréttingin er sérsmíðuð úr reyktri eik með kvartsstein á borðplötu og undirlímdum vaski. Sturtan er rúmgóð (walk-in) með blöndunartækjum frá Gröhe og reyklituðu sturtugleri sem nær alla leið upp í loft.

Þvottahús er með ítölskum flísum á gólfi og sérsmíðaðri innréttingu úr reyktri eik. Ný og ónotuð þvottavél og þurrkari af vandaðri gerð frá Ormsson fylgir með í kaupum.

Svefnherbergin þrjú eru öll rúmgóð, með vönduðu vínilparketi á gólfum, sérsmíðum fataskápum og gólfsíðum gluggum.

Bílastæði í bílakjallara merkt B15 og geymsla.

Hér er frábært tækifæri til að eignast glæsilega, nýja lúxusíbúð í ört vaxandi hverfi, miðsvæðis í Reykjavík. Ítölsk hönnun og glæsilegt yfirbragð einkennir íbúðina en allar innréttingar voru sérsmíðaðar  af Gili Creation sem framleiddi m.a. innréttingar á 5 stjörnu hótelinu The Reykjavik EDITION. Þá var öll innanhússhönnun í höndum Ragnars Sigurðssonar, innanhússarkitekts.
Vogabyggðin er einn veðursælasti reitur borgarinnar, öll þjónusta er í göngufæri, stutt í stofnbrautir og svo er mikið af náttúruperlum í nágrenninu.

Íbúðin er laus til afhendingar við undirritun kaupsamnings.

Allar nánari upplýsingar veita:

Ólafur Finnbogason, löggiltur fasteignasali í olafur@miklaborg.is

Árni Davíð Bergs, í síma: 625-2500 eða arni@miklaborg.is

Myndir

Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
Mynd 4
Mynd 5
Mynd 6
Mynd 7
Mynd 8
Mynd 9
Mynd 10
Mynd 11
Mynd 12
Mynd 13
Mynd 14
Mynd 15
Mynd 16
Mynd 17
Mynd 18
Mynd 19
Mynd 20
Mynd 21
Mynd 22
Mynd 23
Mynd 24
Mynd 25
Mynd 26
Mynd 27
Mynd 28
Mynd 29
Mynd 30