Engihjalli 9, 200

Fjarlægð/Seld - Eignin var 7 daga á skrá

Verð 38,9
Stærð 62
Tegund Fjölbýli
Verð per fm 625
Skráð 22.9.2022
Fjarlægt 30.9.2022
Byggingarár 1978
mbl.is

Engihjalli 9 - björt og vel skipulögð tveggja herbergja íbúð með vestursvölum.
HAGSTÆTT VERÐ
Gimli fasteignasala s- 570-4800 kynnir í einkasölu mjög vel skipulagða tveggja herbergja íbúð á 2 hæð í Engihjalla 9 í Kópavogi.
Íbúðin er skráð 62.2 fm skv. FMR en geymslan er ekki skráð inní fermetratölu íbúðarinnar eins og venjulega er gert í dag.
Íbúðin er á 2 hæð í 10 íbúða lyftuhúsi.
Tvær lyftur eru í húsinu.


NÁNARI LÝSING:
Íbúðin skiptist í forstofu með góðum skáp.
Rúmgott svefnherbergi með skáp og útgengi útá vestursvalir
Eldhús með upprunalegri innréttingu sem er farin að láta á sjá og borðkrók. 
Baðherbergið er með baðkari og handklæðaofni. Dúklagt og upprunalegt.
Stofan er rúmgóð með útgengi út á vestursvalir.
Harðparket er á gólfum nema korkflísar á eldhúsi.
Á hæðinni er sameiginlegt þvottahús fyrir 3 íbúðir, hver með sína vél.
Sérgeymsla fylgir íbúðinni.
Sameiginleg hjólageymsla í sameign.


Verið er að skipta um svalahandrið á íbúðum hússins og er suðurhlið hússins búin en verið er að klára austurhlið þess. 


Niðurlag:

Nánari upplýsingar veitir Bárður H Tryggvason sölustjóri, í síma  896-5221, eða sendu fyrirspurn með tölvupósti til bardur@gimli.is

Gimli er ein af elstu starfandi fasteignasölum landsins, stofnuð 1982 og fagnar því 40 ára starfsafmæli á árinu 2022. Leiðarljós Gimli er heiðarleiki og traust. Gimli, gerir betur...


Um skoðunar- og aðgæsluskyldu kaupenda: 
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Gimli fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand eigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun ef þörf er á. 
Forsendur söluyfirlits: 
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. 
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og 1,6% fyrir lögaðila.Þinglýsingargjald hvers skjals er kr. 2.500,- .Lántökugjald lánastofnunar skv. gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á. 

Myndir

Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
Mynd 4
Mynd 5
Mynd 6
Mynd 7
Mynd 8
Mynd 9
Mynd 10
Mynd 11
Mynd 12