Vinastræti 6, 210

Fjarlægð/Seld - Eignin var 7 daga á skrá

Verð 84,9
Stærð 118
Tegund Fjölbýli
Verð per fm 718
Skráð 22.9.2022
Fjarlægt 30.9.2022
Byggingarár 2019
mbl.is

Fasteignasalan TORG kynnir: Virkilega falleg fjögurra herbergja endaíbúð með fallegu útsýni í nýlegu lyftuhúsi við Vinastræti 6 í Garðabæ. Eignin er skráð 118,2 fm og skiptist í 3 svefnherbergi, baðherbergi, sér þvottahús, rúmgott og bjart alrými með fallegu útsýni ásamt geymslu í kjallara. Sérmerkt bílastæði í bílakjallara þar sem búið er að gera ráð fyrir hleðslustöð fyrir rafmangsbíla. Allar nánari upplýsingar veitir Darri Örn Hilmarsson, löggiltur fasteignasali, í síma: 767-0000 eða með tölvupósti: darri@fstorg.is.  


Nánari Lýsing:
Gengið er inn í forsofu með tvöföldum fataskáp. Frá forstofu er gengið inn í sér þvottahús innan eignar með aðstöðu fyrir þvottavél og þurrkara. Baðherbergið er með flísar á gólfi og vegg við sturtu. Á baðherberginu er falleg hvít innrétting með handlaug og speglaskáp, upphengt salerni, handklæðaofn og sturta. Þrjú svefnherbergi eru á svefnherbergisgangi og eru þau öll mjög rúmgóð og með fataskápum. Eldhúsið er í opnu og björtu rými með stofu og borðstofu. Eldhúsið er með fallegri hvítri innréttingu með innbyggðum ísskáp, innbyggðri uppþvottavél, bakaraofni, helluborði og viftu. Stofan og borðstofan er opin og björt með fallegu útsýni. Frá stofu er gengið út á 4,8 fm svalir vesturs með útsýni út á Bessastaði og Snæfellsjökul. Í kjallara hússins er 18,6 fm geymsla sem tilheyrir eigninni ásamt sérmerktu bílastæði í lokuðum og upphituðum bílakjallara. Búið er að gera ráð fyrir hleðslustöð fyrir rafmagnsbíla.

Eignin er í góðu fjölbýlishúsi sem byggt var 2019 af ÞG VERK. Húsið er vel staðsett ofarlega í Urriðarholtinu í grend Urriðaholtsskóla sem er bæði leik- og grunnskóli. Verslun og þjónusta, gofvöllur, útivistarsvæði í Heiðmörk og Vífilstaðavatn er í næsta nágranni. Einnig er í hverfinu veitinga – og kaffihús.

Allar nánari upplýsingar veitir Darri Örn Hilmarsson, löggiltur fasteignasali, í síma: 767-0000 eða með tölvupósti: darri@fstorg.is.  


 

Myndir

Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
Mynd 4
Mynd 5
Mynd 6
Mynd 7
Mynd 8
Mynd 9
Mynd 10
Mynd 11
Mynd 12
Mynd 13
Mynd 14
Mynd 15
Mynd 16
Mynd 17
Mynd 18
Mynd 19
Mynd 20
Mynd 21
Mynd 22
Mynd 23
Mynd 24
Mynd 25
Mynd 26