08.06.2023 1133872
Sólheimar 25
104 Reykjavík
37 myndir
61.800.000
691.275 kr. / m²
08.06.2023 - 8 dag á Fastanum - Fjarlægt þann 16.06.2023
2
Svefnherbergi
1
Baðherbergi
89.4m²
Fermetrar
Tegund
FjölbýliByggingarár
1962Fasteignamat
53.850.000Inngangur
SameiginlegurFastanúmer*
2021600Byggingarnúmer*
1016638Brunabótamat
42.850.000Verðmat Fastans
Reiknar verðmat...
Ekki tókst að greina fasteignasölu.
Staðsetning
Tenglar
Lýsing
Lýsing á eigninni frá fasteignasölu
ALDA fasteignasala kynnir í einkasölu afar bjarta og fallega 89,4 fermetra 3ja herbergja útsýnisíbúð á 4. hæð í Sólheimum.
Íbúðin er einstaklega björt með miklu útsýni til austurs og suður. Fjallahringur frá Esju að Stapafelli. Búið að opna inn í alrými íbúðar frá eldhúsi. Nýtt harðparket á öllum gólfum nema á baðherbergi, þar eru flísar. Gólfsíðir gluggar í stofu með glæsilegu útsýni yfir hluta höfuðborgarsvæðisins og til fjalla. Rúmgóðar, u.þ.b. 14 fermetra svalir til suðurs og litlar svalir út frá svefnherbergi, til austurs.
Tvær geymslur, (2,6fm og 4,2fm) sú minni er á hæðinni og næg bílastæði. Íbúðin að öllu leyti endurnýjuð árið 2021.
Frábær staðsetning í grónu og fjölskylduvænu hverfi miðsvæðis við Laugardalinn. Stutt er í alla verslun og þjónustu, m.a. Glæsibæ, Skeifuna, leikskóla, grunnskóla, sundlaug, heilsurækt, heilsugæslu og bókasafn. Laugardalurinn í göngufjarlægð með allri þeirri útivist sem hann hefur upp á að bjóða.
Nánari lýsing:
Forstofa: Harðparketi á gólfi, skóskápur, hurð er inní íbúðina úr forstofu.
Forstofuherbergi: Gluggi til austurs. Harðparketi á gólfi.
Gangur: Með harðparketi á gólfi og fatahengi.
Baðherbergi: Með flísum á gólfi og hluta veggja. Gluggi til austurs. Baðkar með sturtutækjum. Endurnýjað að mestu 2021, upphengt salerni og ný innrétting.
Hjónaherbergi: Með harðparketi á gólfi, nýir IKEA skápar með miklu skúffuplássi. Útgengi á litlar austursvalir þar sem unnt er að njóta morgunbollans.
Eldhús: Endurnýjað árið 2021, með harðparketi á gólfi, ljósri viðarlitaðri IKEA innréttingu með miklu geymsluplássi. Nýtt span helluborð, bakaraofn og innbyggð uppþvottavél
Stofa: Er rúmgóð og björt með harðparketi á gólfi. Gólfsíðir gluggar til suðurs með útsýni yfir höfuðborgarsvæðið til suðurs og til fjalla. Stofa rúmar vel setustofu og borðstofu. Útgengi á suðursvalir.
Svalir: Eru rúmgóðar, um 12-14fm og var svalahandrið endurnýjað 2022..
Geymsla I: Er staðsett á hæðinni og er 2,6 fermetrar að stærð.
Geymsla II: Er staðsett á geymslugangi í kjallara og er 4,2 fermetrar að stærð.
Hjóla- og vagnageymsla: Er sameiginleg og er staðsett í kjallara. Snyrtileg með epoxy gólfi og gluggum til suðurs og austurs. Útgengi út á lóð.
Þvottaherbergi og þurrkherbergi: Er rúmgott og sameiginlegt á 12. hæð hússins (efstu) með epoxy á gólfi. Þrjár þvottavélar, þurrkari, strauvél og vinnuborð. Bjart rými með glæsilegu útsýni.
Sameiginlegar svalir: Eru staðsettar á þaki hússins. Glæsilegt 360 gráðu útsýni yfir höfuðborgarsvæðið, út yfir sundin blá og til fjalla.
Drenlagnir endurnýjaðar 2018, skólplagnir voru fóðraðar 2017 og múrviðgerðum og málun hefur verið sinnt í gegnum árin.
Húsvörður er í húsinu.
Tvær lyftur eru í húsinu.
Nýlegur myndavéladyrasími er í húsinu.
Myndavélaeftirlitskerfi er í sameign hússins.
Öll sameign hússins er til mikillar fyrirmyndar og viðhald á húsinu gott.
Húsið er byggt árið 1962, sem hefur fengið lof fyrir fallega hönnun. Arkitekt hússins er Guðmundur Kr. Guðmundsson.
Nánari upplýsingar veitir Halldór Kristján Sigurðsson í síma 6189999, tölvupóstur [email protected].
Kostnaður kaupanda vegna kaupa: Stimpilgjald kaupsamnings einstaklinga er 0,8% og lögaðila1,6% af fasteignamati eignar. Lántökugjald getur verið breytilegt eftir lánastofnunum, oftast 1%. Þinglýsingargjald er 2.000 fyrir hvert skjal. Þjónustu- og umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. ALDA fasteignasala bendir öllum sem hugsa sér að kaupa, að kynna sér vel ástand fasteignarinnar við skoðun fyrir tilboðsgerð og leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun ef þörf þykir.
Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Nánari upplýsingar veitir Halldór Kristján Sigurðsson , í síma 6189999, tölvupóstur [email protected].
Kostnaður kaupanda vegna kaupa: Stimpilgjald kaupsamnings einstaklinga er 0,8% og lögaðila 1,6% af fasteignamati eignar. Lántökugjald getur verið breytilegt eftir lánastofnunum, oftast 1%. Þinglýsingargjald er 2.000 fyrir hvert skjal. Þjónustu- og umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. ALDA fasteignasala bendir öllum sem hugsa sér að kaupa, að kynna sér vel ástand fasteignarinnar við skoðun fyrir tilboðsgerð og leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun ef þörf þykir.
Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Ljósmyndir
Verðmat Fastans
Söguleg þróun á verðmati eignarinnar frá 2006
Þinglýstir kaupsamningar
Á eignum sem deila heimilisfangi og stærð
Pnr. | Heimilisfang | Kaupverð | Stærð | Fermetraverð | Tegund | Fastan. | Dags. | Noth. |
---|---|---|---|---|---|---|---|---|
38.000.000 kr. | 89.10 m² | 426.487 kr./m² | Fjölbýli | 2021631 | 20.02.2017 | ✅ | ||
41.000.000 kr. | 88.70 m² | 462.232 kr./m² | Fjölbýli | 2021624 | 22.12.2017 | ✅ | ||
45.000.000 kr. | 89.40 m² | 503.356 kr./m² | Fjölbýli | 2021611 | 05.08.2021 | ❌ | ||
53.500.000 kr. | 89.10 m² | 600.449 kr./m² | Fjölbýli | 2021631 | 21.01.2022 | ✅ | ||
57.700.000 kr. | 88.70 m² | 650.507 kr./m² | Fjölbýli | 2021624 | 16.11.2022 | ✅ | ||
55.500.000 kr. | 89.50 m² | 620.112 kr./m² | Fjölbýli | 2021600 | 04.01.2023 | ✅ | ||
61.800.000 kr. | 89.40 m² | 691.275 kr./m² | Fjölbýli | 2021611 | 21.07.2023 | ✅ | ||
62.900.000 kr. | 89.10 m² | 705.948 kr./m² | Fjölbýli | 2021631 | 24.02.2024 | ✅ |
Fastinn geymir kaupsamninga aftur til 2007
Sótt frá Þjóðskrá
Stundum hafa eignir ekki verið seldar nógu oft / yfir höfuð siðan 2007. Þá getur þú notað Samanburðinn sem greinir verðsögu sambærilegra eigna úr þinglýstum kaupsamningum
loading
Stundum hafa eignir ekki verið seldar nógu oft / yfir höfuð siðan 2007. Þá getur þú notað Samanburðinn sem greinir verðsögu sambærilegra eigna úr þinglýstum kaupsamningum
Eigindi auglýsingar
Ítarlegri atriði sem á við um auglýsinguna
Eignanúmer : 1133872
Einnota auðkenni fyrir hverja eign.Verð : 61.800.000
Ásett verð eignarinnar í krónum.Brunabótamat : 42.850.000
Brunabótamat eignarinnar samkvæmt síðasta mati.Áhvílandi : 0
Heildarfjárhæð áhvílandi á eigninni.Fasteignamat : 53.850.000
Opinbert fasteignamat eignarinnar.Verð á fermetra : 691.275
Verð eignarinnar á hvern fermetra.Fermetrar : 89.4
Stærð eignarinnar mæld í fermetrum.Dagsetning skráningar : 08.06.2023
Dagsetningin þegar að auglýsingin var gefin út.Staða auglýsingar : 16.06.2023
Dagsetningin þegar að auglýsingin var fjarlægð.Skráningardagur : 08.06.2023
Dagsetningin þegar eignin var skráð opinberlega.Póstnúmer : 104
Póstnúmer þar sem eignin er staðsett.Heimilisfang : Sólheimar 25
Fullt heimilisfang eignarinnar.Tegund eignar : fjolb
Tegund eignarinnar, t.d. íbúð, einbýlishús, fjölbýlishús.Byggingarár : 1962
Ár þegar bygging eignarinnar var fullgerð.Herbergi : 3
Heildarfjöldi herbergja í eigninni.Svefnherbergi : 2
Fjöldi svefnherbergja í eigninni.Stofur : 0
Fjöldi stofa í eigninni.Salerni : 1
Fjöldi salerna í eigninni.Inngangur : Sameiginlegur
Lýsing á aðalinngangi eignarinnar.Bílskúr : 1
Hvort eignin hafi bílskúr (satt/rangt).Heitur pottur : 1
Hvort eignin sé með heitum potti (satt/rangt).Verönd : 1
Hvort eignin hafi verönd (satt/rangt).Auka íbúð : 1
Hvort eignin innihaldi auka íbúð (satt/rangt).Sýnileg : 1
Hvort eignin sé sýnileg á vefsíðum eða öðrum miðlum (satt/rangt).Heiti heimilisfangs : Sólheimar
Heiti eignar eða byggingar.Húsnúmer : 25
Húsnúmer eignarinnar.
Fasteignaskrá
Eignir í sömu byggingu og upplýsingar þeirra
010101
Húsvarðaríbúð á 1. hæð
100 m²
Fasteignamat 2025
66.600.000 kr.
Fasteignamat 2024
64.900.000 kr.
Samskiptasaga byggingar
Atriði af fundum Byggingarfulltrúa Reykjavíkur er varðar eignina
- ✅
Umsókn / FyrirspurnSamþykkt
Byggingarfulltrúi | Reykjavík610269-4279 Sólheimar 25, Sótt er um leyfi til að endurnýja handrið á svölum og þaksvölum og svalalokunum á suðurhlið á húsi nr. 25 á lóð nr. 25 við Sólheima. Stækkun: 523,3 ferm., 1.468,2 rúmm.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010. Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr. 2.4.5 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012. Skilyrt er að ný eignaskiptayfirlýsing sé samþykkt fyrir útgáfu byggingarleyfis, henni verði þinglýst eigi síðar en við lokaúttekt. Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.
Umsókn / FyrirspurnFrestað
Byggingarfulltrúi | Reykjavík610269-4279 Sólheimar 25, Sótt er um leyfi til að endurnýja handrið á svölum og þaksvölum og svalalokunum á suðurhlið á húsi nr. 25 á lóð nr. 25 við Sólheima. Stækkun er: xx,x ferm., xx,x rúmm. Erindi vantar samþykki meðeiganda dags.
Vísað til athugasemda.
Umsókn / FyrirspurnFrestað
Byggingarfulltrúi | Reykjavík610269-4279 Sólheimar 25, Sótt er um leyfi til að endurnýja handrið á svölum og þaksvölum og svalalokunum á suðurhlið á húsi nr. 25 á lóð nr. 25 við Sólheima. Stækkun er: xx,x ferm., xx,x rúmm. Erindi vantar samþykki meðeiganda dags.
Vísað til athugasemda.
- ✅
Innri breytingarSamþykkt
Byggingarfulltrúi | ReykjavíkSótt er um leyfi til að sleppa vegg í stofu sem afmarkar hana og vinnuherbergi/geymslu í íbúð 0104 á 1. hæð í fjölbýlishúsi á lóð nr. 25 við Sólheima.
- ✅
Breyta 0104 í íbúðSamþykkt
Byggingarfulltrúi | ReykjavíkSótt er um leyfi til að breyta tannlæknastofu í rými 0104 í íbúð í fjölbýlishúsinu á lóð nr. 25 við Sólheima. Jákvæð fyrirspurn BN046561 dags. 8. október 2013 og yfirlýsing dags. 8. apríl 2015 frá húsfélagi Sólheima 25 um samþykki þess fylgir erindi.
Breyta 0104 í íbúðFrestað
Byggingarfulltrúi | ReykjavíkSótt er um leyfi til að breyta tannlæknastofu í rými 0104 í íbúð í fjölbýlishúsinu á lóð nr. 25 við Sólheima. Jákvæð fyrirspurn BN046561 dags. 8. október 2013 og yfirlýsing frá húsfélagi Sólheima 25 um samþykki þess fylgir erindi.
0104 - Breyta í íbúðFrestað
Byggingarfulltrúi | ReykjavíkSótt er um leyfi til að breyta tannlæknastofu í rými 0104 í íbúð í fjölbýlishúsinu á lóð nr. 25 við Sólheima. Jákvæð fyrirspurn BN046561 dags. 8. okt. 2013 fylgir.
- ✅
(fsp) - Br.tannlæknastofu í íbúðJákvætt
Byggingarfulltrúi | ReykjavíkSpurt er hvort leyft yrði að breyta tannlæknastofu í íbúð á fyrstu hæð hússins nr. 25 við Sólheima. Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 4. október 2013 fylgir erindinu ásamt umsögn skipulagfulltrúa dags. 3. október 2013.
Að uppfylltum skilyrðum enda verði sótt um byggingarleyfi
(fsp) - Br.tannlæknast.í íb.Frestað
Byggingarfulltrúi | ReykjavíkSpurt er hvort leyft yrði að breyta tannlæknastofu í íbúð á fyrstu hæð hússins nr. 25 við Sólheima.
Málinu vísað til umsagnar skipulagsfulltrúa
- ✅
Br.fundarh, í íbúðJákvætt
Byggingarfulltrúi | ReykjavíkSpurt er hvort leyft verði að innrétta íbúð í sameign hússins á lóðinni nr. 25 við Sólheima. Jafnframt lagt fram bréf húsfélagsins dags. 12.12.1996.
Að uppfylltum skilyrðum
Byggir aðeins á útgefnum fundum Byggingarfulltrúa Reykjavíkur á milli 1997 - 2024 ( júlí ).