05.09.2022 1050366

Söluskrá FastansNúpahraun 20

815 Þorlákshöfn

hero

6 myndir

72.400.000

485.906 kr. / m²

05.09.2022 - 18 dag á Fastanum - Fjarlægt þann 23.09.2022

3

Svefnherbergi

1

Baðherbergi

149

Fermetrar

Fasteignasala

Fasteignasala Suðurlands

[email protected]
483 3424
Bílskúr
Hleðslustöð

Staðsetning

Auglýsing

Tenglar

Lýsing

Lýsing á eigninni frá fasteignasölu

Fasteignasala Suðurlands (s 483 3424) kynnir í einkasölu:  Núpahraun 20, Þorlákshöfn.  Nýtt, fallegt, 113m2 endaraðhús með 3 svefnherbergjum og 36m2 bílskúr.   
Húsið afhendist í september 2022. 

**Nálgast má allar nánari upplýsingar á [email protected] og í síma 483 3424**


Húsið telur:
*  Anddyri.
* 3 rúmgóð svefnherbergi.
*  Eldhús og stofu í rúmgóðu opnu rými.  Loft upp tekin.  
*  Baðherbergi.
*  Þvottahús.  Innangengt er í bílskúrinn úr þvottahúsi.
*  Bílskúr.
*  Geymslu í enda bílskúrs. 


Íbúðin skilast tilbúin til málningar (á byggingarstigi 5 skv. íst-51) samkvæmt eftirfarandi lýsingu:
Húsið er timburhús, klætt að utan með ljósu bárustáli með hvítri timburklæðningu í innskotum og hvítum gluggum og hurðum og svörtu þakstáli.
Á þaki er Ranilla stallað þakstál svart.
Álrennur eru utan á þakkanti.
Loft eru upp tekinn.  Raflagnir og lagnagrind komin upp.   Loftaklæðning er óklædd.
Gluggar eru viðhaldsfríir PVC gluggar frá viðurkenndum aðila, hvítir RAL9010 að innan og utan.
Gólfhitalagnir lagðar og tengdar saman við tengigrind.  Stýringar og annar búnaður gólfhita fylgir ekki.
Ídráttarrör og dósir fyrir rafmagn komnar og dregið fyrir vinnurafmagni.  Tafla ófrágengin.
Gólf steypt og flotdregin.
Lóð grófjöfnuð með mulningi í plani.  Lóðin snýr í suður !
Sorptunnuskýli á lóð fylgja.

Gert ráð fyrir rafhleðslu fyrir rafbíla.  Hleðslustöð fylgir ekki.
Hönnuður er Pro-Ark ehf á Selfossi.

Í Þorlákshöfn er þjónustustig mjög gott -  hagnýtar upplýsingar:

Við Þorlákshöfn er rómaður golfvöllur sem staðsettur er í jaðri byggðarinnar, rétt við sjávarsíðuna!

Hér eru einstaklega góður grunn- og leikskóli þar sem tekin eru inn börn niður í 18 mánaða!

Verslun og þjónusta:

Hér má m.a. finna:

Apótekarann.

Bakaríið Café Sól (facebook:  café sól)

Hárgreiðslustofuna Kompuna (facebook:  kompan klippistofa)

Rakarstofu Kjartans (facebook: kjartan rakari)

Vínbúðina.

Kr.-verslun með yfir 2.000 helstu vöruliði á Krónuverði

Veitingastaðina:

Thai Sakhon veitingahús (facebook:  Thai Sakhon Restaurant)

Caffe Bristól Bauhaus (facebook:  Caffe Bristól)

Svarta Sauðinn (facebook:  svarti sauðurinn)  og 

Skálann, sem jafnframt er sölustaður Orkunnar.    Einnig er Olís hér með ÓB-stöð.

Hér er mjög góð heilsugæsla.

Hér er tannlæknir.

Í Ráðhúsi bæjarins eru, auk skrifstofu sveitarfélagsins: 

Mjög gott bókasafn (facebook:  Bæjarbókasafn Ölfuss)

Landsbankinn 

Tómstundir og afþreying: 
Íþróttaiðkun í Þorlákshöfn er gríðarlega öflug og þá helst meðal barna og unglinga. Frá fjögurra ára aldri er í boði að iðka fótbolta (aegirfc.is), fimleika (facebook:  fimleikadeild Þórs), körfubolta (facebook:  Þór Þorlákshöfn) og frjálsar, ásamt því að iðkaður er badminton, motorcrossá braut rétt utan við bæinn, hestamennska (facebook:  hestamannafélagið háfeti) með fallegum reiðleiðum allt um kring og golf á rómuðum golfvelli.  Hér er svo einnig Litli íþróttaskólinn á vegum fimleikadeildarinnar fyrir börn frá eins árs aldri.   

Í íþróttamiðstöðinni er mjög góð líkamsræktar-aðstaða þar sem hægt er að komast í einka- þjálfun, spinning, hóptíma, líkamsrækt fyrir eldri borgara o.m.fl.  Þar er að finna góða sundaðstöðumeð útilaug, heitum pottum, vaðlaug og skemmtilegri innilaug fyrir fjölskyldufólk.

Jógastúdíó (Jógahornið).

Öflug sjúkraþjálfun.

Afþreying er hér af ýmsum toga:

hér má meðal annars finna:  

Fallegt útivistarsvæði við vitann með útsýnispalli og göngustíg meðfram bjarginu í einstakri náttúrufegurð. 

Heilsustíg má finna í bænum þar sem líkamsræktartæki eru við göngu/hlaupastíga.

Hér er æðisleg strönd sem mikið er mikið notuð til útivistar og þar má oft sjá menn á brimbrettum, en slíkt er gott að stunda hér.

Í sjónum við útsýnispallinn er einn vinsælasta staður til brimbrettaiðkunar á Íslandi.

Blackbeach tours (www.blackbeachtours.is) er afþreyingar fyrirtæki sem býður upp á fjórhjólaferðir bæði í fjöruna og um hraunið, RIB bátaferðir meðfram bjarginu og adrenalínferðir, snekkjuleigu og sjóstöng og jógaferðir úti í náttúrunni.  

Einnig er hér:

Öflugt leikfélag (facebook: leikfélag ölfuss).

Hinir ýmsu kórar (facebook:  Tónar og Trix, Kyrjukórinn,  ofl.)

Einn stærsti Kiwanisklúbbur landsins (facebook:  Kiwanisklúbburinn Ölver)

O.sfr. o.s.frv. o.s.frv.  :)

** Allar helstu fréttir úr sveitarfélaginu má finna á:  www.hafnarfrettir.is








 

Ljósmyndir

Verðmat FastansVerðmat Fastans

Söguleg þróun á verðmati eignarinnar frá 2006

Þinglýstir kaupsamningarÞinglýstir kaupsamningar

Á eignum sem deila heimilisfangi og stærð

loading

loading

Stundum hafa eignir ekki verið seldar nógu oft / yfir höfuð siðan 2007. Þá getur þú notað Samanburðinn sem greinir verðsögu sambærilegra eigna úr þinglýstum kaupsamningum

Eigindi auglýsingarEigindi auglýsingar

Ítarlegri atriði sem á við um auglýsinguna

FasteignaskráFasteignaskrá

Eignir í sömu byggingu og upplýsingar þeirra

010104

Raðhús á 1. hæð
148

Fasteignamat 2025

61.350.000 kr.

Fasteignamat 2024

61.550.000 kr.

Samskiptasaga byggingar

Atriði af fundum Byggingarfulltrúa Reykjavíkur er varðar eignina

PóstlistiÁbendingarHafa samband