Söluauglýsing: 992403

Austurkór 151

203 Kópavogur

Verð

119.900.000

Stærð

194.4

Fermetraverð

616.770 kr. / m²

Tegund

Einbýli

Fasteignamat

93.600.000

Fasteignasala

Domusnova

Símanúmer

hero

Þessi auglýsing hefur verið fjarlægð, hún var inni í 5 daga.

Staðsetning

Auglýsing

Lýsing

Lýsing á eigninni frá fasteignasölu

Domusnova og Árni Helga fasteignasali hafa fengið í einkasölu mjög fallegt og gott 5 herbergja nýlegt einbýlishús ásamt aukaíbúð við Austurkór. Frábært útsýni er úr húsinu. 4 svefnherbergi í húsinu sjálfu og 3ja herbergja íbúð í bílskúrnum sem er í útleigu. Lóð sem er 853fm að stærð er ófrágengin og býður uppá mikla möguleika. Frábær fjölskyldueign með aukaíbúð á vinsælum stað. Stutt er í þjónustu og stofnbrautir en lítil umferð í götunni þar sem um botnlanga er að ræða.

Athugið að ekki verður opið hús en áhugasamir geta skráð sig hjá Árna Helga í [email protected] og fá góðan tíma til skoðunar.


Komið er inn í forstofu og er eldhús, stofa og borðstofa í einu rými til hægri með flísum á gólfum. Gengið er út í garð úr stofu og er þar glæsilegt útsýni til suðurs og austurs. Baðherbergi og 3 svefnherbergi eru á gangi til hægri við eldhús/borðstofu. Til vinstri úr forstofunni er gengið um þvottahús með innréttingu og að herbergi með baðherbergi sem er sérinngangur í. Auk þess er þar lagnainntak í sérstöku rými. Innfelld lýsing er í húsinu, sömu flísar eru á öllum rýmum með flísum. Hiti er í öllum gólfum. Bílskúr er innréttaður sem íbúð og er í útleigu. Stutt er í þjónustu og stofnbrautir en lítil umferð í götunni þar sem um botnlanga er að ræða.

Stofa er með flísum og er útgengt á lóð, mikið útsýni úr stofu til suðurs og austurs.
Eldhús og borðstofa eru með sömu flísum og stofa, góð eldhúsinnrétting.
Hjónaherbergi er með flísum og góðum fataskáp.
Tvö önnur herbergi eru á herbergjagangi og eru flísar á gólfum, ekki eru skápar í herbergjunum.
Baðherbergi er með flísum og er það mjög rúmgott.
Herbergi er í austurhluta þar sem er geymsla á teikningum og er þar baðherbergi með sturtu innaf, inngangur er við það herbergi.
Þvottahús og forstofa eru með flísum, innrétting í þvottahúsi og skápur í forstofu.
Mikið geymsluloft er yfir húsinu.
Lóð er ófrágengin.
Í bílskúr er innréttuð 3ja herbergja íbúð sem er í útleigu. Gengið er inn að norðan og er þar herbergi á vinstri hönd en baðherbergið á hægri hönd og er þar tengt fyrir þvottavél og mjög góð sturta. Áfram inn ganginn er annað herbergi á vinstri hönd en stofa og eldhús á hægri hönd með góðri innréttingu. Flísar eru á öllum rýmum og margir gluggar svo íbúðin er björt og falleg. Hiti í gólfi.

Nánari upplýsingar veita:
Árni Helgason löggiltur fasteignasali / s.663 4290 / [email protected]
Skrifstofa / s.527-1717 / [email protected]

Vegna mikillar sölu vantar mig eignir á skrá hafið samband hér

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. DOMUSNOVA fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.

Um ástand einstakra eignarhluta:
Efst í söluyfirlitli þessu er að finna dálka um ástand einstakra hluta eignarinnar. Eftirfarandi lykil er til skýringar á þeirri skráningu:

  Nýtt - Eignin er nýbygging.
  Upprunalegt - Seljandi veit ekki til þess að byggingarhluti hafi verið endurnýjaður.
  Endurnýjað - Byggingarhlutinn hefur verið endurnýjaður í heild sinni á einhverjum tímapunkti.
  Endurnýjað að hluta - Hluti byggingarhlutans hefur verið endurnýjaður á einhverjum tímapunkti.
  Ekki vitað - Seljandi þekkir ekki til ástands og ekki er hægt að leggja mat á það með sjónskoðun.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
  1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
  2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.500,- fyrir hvert skjal.
  3. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
  4. Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
  5. Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.

Ljósmyndir

Auglýsing
Auglýsing
Auglýsing

Þinglýstir kaupsamningar

Á eignum sem deila heimilisfangi og stærð

loading

loading

Stundum hafa eignir ekki verið seldar nógu oft / yfir höfuð siðan 2007. Þá getur þú notað Samanburðinn sem greinir verðsögu sambærilegra eigna úr þinglýstum kaupsamningum

Eigindi auglýsingar

Ítarlegri atriði sem á við um auglýsinguna

PóstlistiÁbendingarHafa samband