Söluauglýsing: 991233
Njálsgata 58b
101 Reykjavík
Verð
Stærð
Fermetraverð
Tegund
![hero](https://fasti-images.ams3.digitaloceanspaces.com/991/233/images/1.jpg)
Þessi auglýsing hefur verið fjarlægð, hún var inni í 7 daga.
- Dagsetning skráningar: 06.05.2021
Dagsetningin þegar að auglýsingin var gefin út. - Staða auglýsingar: Fjarlægt þann 13.05.2021
Dagsetningin þegar að auglýsingin var fjarlægð. - Birtingartími: 7 dagar
Hversu lengi auglýsingin hefur verið / var inni.
Staðsetning
Lýsing
Lýsing á eigninni frá fasteignasölu
Vinsamlegast bókið skoðun hjá [email protected]. Athugið að eignin verður hvorki sýnd né seld fyrir opna húsið.
LANDMARK fasteignamiðlun og Monika Hjálmtýsdóttir, lögg. fasteignasali kynna: Einstaklega fallega endurnýjaða þriggja herbergja 69,0 fm efri sérhæð í bakhúsi við Njálsgötu 58b í Reykjavík. Eignin var endurnýjuð að innan á árunum 2011-2012 og húsið að utan ásamt garði var gert upp á árunum 2012-2016. Við endurnýjun var m.a. skipt um gólfefni, innréttingar, tæki, gólfefni, glugga og útidyr. Rafmagn var endurnýjað og sett ný tafla ásamt öllum neysluvatns-, frárennslis- og hitalögnum ofan botnplötu. Þakjárn var endurnýjað ásamt þakpappa og klæðningu og stoðum eftir þörfum. Garður endurnýjaður, gerð voru jarðvegsskipti fyrir grasflöt, útbúinn matjurtagarður og beð með jarðvegsdúk og hvítum steinum, pallur smíðaður úr fúavarinni furu og hellur lagðar með snjóbræðslu. Húsið var málað að utan sumarið 2016.
Íbúðin er með fallegri höldulausri Ikea innréttingu, eldhústæki eru frá Miele. Baðherbergi er með gólfhita og stórum sturtuklefa með tveimur sturtuhausum og er tengi fyrir þvottavél og þurrkara inni á baði. Þakgluggi er yfir eldhúsi sem hleypir fallegri birtu inn. Vandað plankaparket er á gólfi og eru gluggar einstaklega fallegir.
Forstofa er með fatahengi, parket á gólfi.
Eldhús er með hvítri höldulausri innréttingu með eikar borðplötu, keramik helluborði og gufugleypi yfir með kolasíu, Miele bakarofni og innbyggðri Miele uppþvottavél. Hvítar flísar eru á milli efri og neðri skáp, parket á gólfi.
Stofa og borðstofa er í björtu opnu rými, parket á gólfi.
Svefnherbergi I inn af stofu er rúmgott með innbyggðum fataskápum, parket á gólfi.
Svefnherbergi II er minna en tvíbreitt rúm kemst þar inn, parket á gólfi.
Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf, náttúrusteinn á gólfi, á vegg og í sturtu, með upphengdu salerni, hvítri baðinnréttingu, sturtuklefi er stór með tveimur sturtum, stór krómaður handklæðaofn er í sturtuklefa. Tengi fyrir þvottavél og þurrkara.
Sér geymsla er í kjallara með sér inngangi, flísar á gólfi.
Sameiginlegur afgirtur garður, einstaklega fallegur og skjólsæll með verönd, grasflöt og beðum.
Birt stærð íbúðar er 62,4 fm (0101) og geymslu er 6,6 fm (0002) skv. skráningu Þjóðskrá Íslands.
Allar nánari upplýsingar veita:
Monika Hjálmtýsdóttir, lögg. fasteignasali [email protected] sími 823-2800
Júlíus Jóhannsson, lögg. fasteignasali [email protected] sími 823-2600
Láttu okkur selja fyrir þig! Hafðu samband við okkur [email protected] og við veitum þér sölu- og kaupráðgjöf án skuldbindinga
Ljósmyndir
![](https://fasti-images.ams3.digitaloceanspaces.com/991/233/images/1.jpg)
![](https://fasti-images.ams3.digitaloceanspaces.com/991/233/images/2.jpg)
![](https://fasti-images.ams3.digitaloceanspaces.com/991/233/images/3.jpg)
![](https://fasti-images.ams3.digitaloceanspaces.com/991/233/images/4.jpg)
![](https://fasti-images.ams3.digitaloceanspaces.com/991/233/images/5.jpg)
![](https://fasti-images.ams3.digitaloceanspaces.com/991/233/images/6.jpg)
![](https://fasti-images.ams3.digitaloceanspaces.com/991/233/images/7.jpg)
![](https://fasti-images.ams3.digitaloceanspaces.com/991/233/images/8.jpg)
![](https://fasti-images.ams3.digitaloceanspaces.com/991/233/images/9.jpg)
![](https://fasti-images.ams3.digitaloceanspaces.com/991/233/images/10.jpg)
![](https://fasti-images.ams3.digitaloceanspaces.com/991/233/images/11.jpg)
![](https://fasti-images.ams3.digitaloceanspaces.com/991/233/images/12.jpg)
![](https://fasti-images.ams3.digitaloceanspaces.com/991/233/images/13.jpg)
![](https://fasti-images.ams3.digitaloceanspaces.com/991/233/images/14.jpg)
![](https://fasti-images.ams3.digitaloceanspaces.com/991/233/images/15.jpg)
![](https://fasti-images.ams3.digitaloceanspaces.com/991/233/images/16.jpg)
![](https://fasti-images.ams3.digitaloceanspaces.com/991/233/images/17.jpg)
![](https://fasti-images.ams3.digitaloceanspaces.com/991/233/images/18.jpg)
![](https://fasti-images.ams3.digitaloceanspaces.com/991/233/images/19.jpg)
![](https://fasti-images.ams3.digitaloceanspaces.com/991/233/images/20.jpg)
![](https://fasti-images.ams3.digitaloceanspaces.com/991/233/images/21.jpg)
Þinglýstir kaupsamningar
Á eignum sem deila heimilisfangi og stærð
loading
loading
Stundum hafa eignir ekki verið seldar nógu oft / yfir höfuð siðan 2007. Þá getur þú notað Samanburðinn sem greinir verðsögu sambærilegra eigna úr þinglýstum kaupsamningum
Eigindi auglýsingar
Ítarlegri atriði sem á við um auglýsinguna
- Eignanúmer: 991233
Einnota auðkenni fyrir hverja eign. - Verð: 49.900.000
Ásett verð eignarinnar í krónum. - Brunabótamat: 26.150.000
Brunabótamat eignarinnar samkvæmt síðasta mati. - Áhvílandi: 0
Heildarfjárhæð áhvílandi á eigninni. - Fasteignamat: 41.550.000
Opinbert fasteignamat eignarinnar. - Verð á fermetra: 723.188
Verð eignarinnar á hvern fermetra. - Fermetrar: 69
Stærð eignarinnar mæld í fermetrum. - Dagsetning skráningar: 06.05.2021
Dagsetningin þegar að auglýsingin var gefin út. - Staða auglýsingar: 13.05.2021
Dagsetningin þegar að auglýsingin var fjarlægð. - Skráningardagur: 06.05.2021
Dagsetningin þegar eignin var skráð opinberlega. - Póstnúmer: 101
Póstnúmer þar sem eignin er staðsett. - Heimilisfang: Njálsgata 58b
Fullt heimilisfang eignarinnar. - Tegund eignar: hæðir
Tegund eignarinnar, t.d. íbúð, einbýlishús, fjölbýlishús. - Byggingarár: 1923
Ár þegar bygging eignarinnar var fullgerð. - Herbergi: 3
Heildarfjöldi herbergja í eigninni. - Svefnherbergi: 2
Fjöldi svefnherbergja í eigninni. - Stofur: 0
Fjöldi stofa í eigninni. - Salerni: 1
Fjöldi salerna í eigninni. - Inngangur: Sérinngangur
Lýsing á aðalinngangi eignarinnar. - Bílskúr: 1
Hvort eignin hafi bílskúr (satt/rangt). - Heitur pottur: 1
Hvort eignin sé með heitum potti (satt/rangt). - Verönd: 1
Hvort eignin hafi verönd (satt/rangt). - Auka íbúð: 1
Hvort eignin innihaldi auka íbúð (satt/rangt). - Sýnileg: 1
Hvort eignin sé sýnileg á vefsíðum eða öðrum miðlum (satt/rangt). - Heiti heimilisfangs: Njálsgata
Heiti eignar eða byggingar. - Húsnúmer: 58
Húsnúmer eignarinnar.