04.05.2021 990884

Söluskrá FastansÁrtún 7

800 Selfoss

hero

33 myndir

48.500.000

351.704 kr. / m²

04.05.2021 - 17 dag á Fastanum - Fjarlægt þann 20.05.2021

3

Svefnherbergi

1

Baðherbergi

137.9

Fermetrar

Fasteignasala

Domusnova

[email protected]
527-1717
Bílskúr
Geymsla

Staðsetning

Auglýsing

Tenglar

Lýsing

Lýsing á eigninni frá fasteignasölu

Domusnova, Haukur Páll Ægisson, aðstoðarmaður fasteignasala / nemi  og Sverrir Sigurjónsson, lögmaður og löggiltur fasteignasali kynna: Í einkasölu afar snyrtilega þriggja/fjögurra herbergja eign á neðri hæð í tvíbýlishúsi. Skemmtileg staðsetning í grónu og fallegu hverfi norðan við Ölfusá (fyrir utan á)
Neðri hæðin er úr járnbentri steinsteypu byggt árið 1960 ásamt bílskúr. Eignin stendur á 1280m² eignarlóð sem er sameiginleg með efri hæð hússins. Íbúðin sjálf er 104,8 m²  og bílskúr 33,1 m² eða samtals 137,9 m².  Geymsla er inn af bílskúrnum en tilheyrir hún efri hæðinni, sér inngangur er inn í geymsluna.
Flottur leikvöllur er staðsettur við eignina, baka til.


Samkvæmt eiganda eru endurnýjaðar skolplagnir frá húsi og út í götu. Endurnýjaðar neysluvatnslagnir. Endurnýjuð rafmagnstafla og raflagnir að hluta. Endurnýjuð miðstöðvargrind og miðstöðvalagnir að hluta og skipt var um járn á þaki fyrir um 10 árum síðan.

Nánari lýsing:
Anddyri er flísalagt og er það sameiginlegt með efri hæð hússins. Inngangur norðan megin við húsið er nýttur sem aðal inngangur í dag. 
Eldhús er flísalagt með nýrri eldhúsinnréttingu frá IKEA. Ný rafmagnstæki eru í eldhúsinu, spanhelluborð, háfur, ísskápur og bakarofn.
Stofa er björt með gegnheilu parketi. 
Svefnherbergi 1 er rúmgott með innbyggðum fataskáp og parketi á gólfi.
Svefnherbergi 2. parketlagt
Geymsla/svefnherbergi 3. Samkvæmt teikningu er geymsla inn af þvottahúsi en það er nýtt sem svefnherbergi í dag. Herbergið er parketlagt og með fataskáp.
Baðherbergið er nýuppgert og flísalagt í hólf og gólf með sturtu og handklæðaofni.
Stórt þvottahús, tengi er fyrir þvottavél og þurrkara. Nýjar loftaplötur.  
Gólfefni, nýlegt gegnheilt parket er á alrýminu í íbúðinni, parket í herbergjum, flísar í eldhúsi, forstofu, þvottahúsi og baðherbergi. 

Bílskúr fylgir eigninni og sér stæði fyrir framan hann.  

Garðurinn er sameiginlegur og fullfrágenginn. 

Nánari upplýsingar veita:
Skrifstofa / s.527-1717 / [email protected]
Haukur Páll Ægisson aðstoðarmaður fasteignasala / s.7729970 / [email protected]
Sverrir Sigurrjónsson, löggiltur fasteignasali / [email protected]

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. DOMUSNOVA fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun. Almennt getur kaupandi ekki borið fyrir sig að ástand eignar sé annað en það sem hann hefði mátt sjá við slíka skoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
  1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
  2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.500,- fyrir hvert skjal.
  3. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
  4. Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
  5. Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.

Ljósmyndir

Auglýsing
Auglýsing
Auglýsing

Verðmat FastansVerðmat Fastans

Söguleg þróun á verðmati eignarinnar frá 2006

Þinglýstir kaupsamningarÞinglýstir kaupsamningar

Á eignum sem deila heimilisfangi og stærð

loading

loading

Stundum hafa eignir ekki verið seldar nógu oft / yfir höfuð siðan 2007. Þá getur þú notað Samanburðinn sem greinir verðsögu sambærilegra eigna úr þinglýstum kaupsamningum

Eigindi auglýsingarEigindi auglýsingar

Ítarlegri atriði sem á við um auglýsinguna

FasteignaskráFasteignaskrá

Eignir í sömu byggingu og upplýsingar þeirra

010101

Íbúð á 1. hæð
137

Fasteignamat 2025

54.650.000 kr.

Fasteignamat 2024

54.050.000 kr.

010201

Íbúð á 2. hæð
110

Fasteignamat 2025

45.250.000 kr.

Fasteignamat 2024

44.750.000 kr.

Samskiptasaga byggingar

Atriði af fundum Byggingarfulltrúa Reykjavíkur er varðar eignina

PóstlistiÁbendingarHafa samband