Söluauglýsing: 985650

Bleikjulækur 9

800 Selfoss

Verð

78.900.000

Stærð

184.3

Fermetraverð

428.106 kr. / m²

Tegund

Einbýli

Fasteignamat

61.250.000

Fasteignasala

Fasteignasalan BÆR

Símanúmer

hero

Þessi auglýsing hefur verið fjarlægð, hún var inni í 21 daga.

Staðsetning

Auglýsing

Lýsing

Lýsing á eigninni frá fasteignasölu

Fasteignasalan Bær og Snorri Sigurfinnsson lgf kynna í einkasölu.  Bleikjulækur 9. Nýtt og vandað fullfrágengið einbýlishús með 5 rúmgóðum svefnherbergjum.
Fallegar innréttingar. Stór aflokaður sólpallur ca 80-90fm. með heitum potti. 15 fm garðhús/geymsla.

Húsið er byggt 2019 og klárað í feb. 2020. Timburhús klætt með lituðu aluzink og standandi timburklæðningu. Gluggar ál/tré.  Viðhaldslétt hús.


Nánari lýsing. Flísalögð forstofa með fataskáp. Hol/gangur innan við forstofu. Eldhús, borðstofa og stofa í opnu rými. Falleg og rúmgóð hvít háglans eldhúsinnrétting með innbyggðum vínkæli. Stór eyja með veglegu spanhelluborði.
Stórir gluggar í eldhúsi og stofu og er alrými hússins bjart og hlýlegt. Rennihurð út á sólpall úr stofu. Svefnherbergin eru fjögur og öll rúmgóð, frá 10,4 fm minnsta herbergið upp í 15 fm stærsta herbergið. Fataskápar í öllum herbergjum. Á gólfum er harðparket frá Byko. Baðherbergi er flísalagt. Góð innrétting og stór flisalögð sturta með innfelldum blöndunartækjum. Hurð úr baðherbergi út á sólpallinn og örstutt í nýjan stóran hitaveitupott. Þvottahús er flísalagt. Rúmgóð innrétting með góðu skápaplássi og vinnuborð. Innangengt í bílskúr. Gólf flotuð og grunnuð. Sjálfvirkur hurðaopnari. Innst í bílskúr er parketlagt herbergi með fataskáp sem er fimmta herbergi hússins. Hurð út í bakgarð.
Í húsinu er gólfhiti með þráðlausum digital stýringum. Innfelld ledlýsing í loftum.
Lóðin er þökulögð, möl í innkeyrslu og 15 fm garðhús/geymsla í bakgarði.

Virkilega eiguleg og vönduð eign.

Nánari upplýsingar veitir Snorri Sigurfinnsson löggiltur fasteignasali s. 864-8090 eða [email protected]
BÓKIÐ SKOÐUN.


 Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum að vegna kaupanna.
1. Stimpilgjöld af kaupsamningi - 0,8 % af heildarfasteignamati, fyrstu kaupendur 0,4%, lögaðilar 1,6%
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. kr. 2500 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunnar. Nánari upplýsingar t.d. á heimasíðum lánastofnanna.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu sbr. kauptilboð

Skoðunarskylda:  Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Fasteignasalan Bær því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.

Ljósmyndir

Auglýsing
Auglýsing
Auglýsing

Þinglýstir kaupsamningar

Á eignum sem deila heimilisfangi og stærð

loading

loading

Stundum hafa eignir ekki verið seldar nógu oft / yfir höfuð siðan 2007. Þá getur þú notað Samanburðinn sem greinir verðsögu sambærilegra eigna úr þinglýstum kaupsamningum

Eigindi auglýsingar

Ítarlegri atriði sem á við um auglýsinguna

PóstlistiÁbendingarHafa samband