01.03.2021 980774

Söluskrá Fastans741030 null

110 Reykjavík

hero

0 myndir

47.500.000

741.030 kr. / m²

01.03.2021 - 5 dag á Fastanum - Fjarlægt þann 05.03.2021

2

Svefnherbergi

0

Baðherbergi

64.1

Fermetrar

Fasteignasala

LIND Fasteignasala

[email protected]
899-3335
Kjallari
Gólfhiti
Svalir
Geymsla

Staðsetning

Auglýsing

Tenglar

Lýsing

Lýsing á eigninni frá fasteignasölu

47sdI6Rn","

BÓKIÐ EINKASKOÐUN Í SÍMA 899-3335 EÐA [email protected]. ÍBÚÐ 502, EFST HÆÐ, GLÆSILEGT ÚTSÝNI. LIND fasteignasala kynnir nýjar og glæsilegar íbúðir fyrir 60 ára og eldri við Hraunbæ 103 í Reykjavík. Íbúðirnar eru tveggja til þriggja herbergja og skilast fullbúnar án gólfefna en votrými verða flísalögð. Íbúðirnar eru vel skipulagðar og með aukinni lofthæð. Geymslur eru rúmgóðar. Mynddyrasími í öllum íbúðum. Húsið stendur hátt svo það er einkar glæsilegt útsýni úr flestum íbúðum. Húsið er viðhaldslítið, eingangrað að utan og álklætt að stærstum hluta, ál-tré gluggar. Timburverandir eru á sérafnotasvæði íbúða á jarðhæð. Félagsmiðstöð á vegum Reykjavíkurborgar er í göngufæri eða í Hraunbæ 105. Þar er boðið upp á opið félags- og tómstundastarf auk þess sem boðið er upp á hádegisverð og kaffiveitingar. Stutt í alla helstu þjónustu, afþreyingu og falleg útivistarsvæði.
AFHENDING VIÐ KAUPSAMNING.


Bókið skoðun hjá:
Láru Þyri Eggertsdóttur, löggiltum fasteignasala í síma 899-3335 eða [email protected]


Íbúð 502, stigagangi A:
2ja herbergja íbúð á 5. hæð (efstu) með 6,6 fm svölum.
Stærð: 64,1 fm, þar af geymsla 9,6 fm
 
Nánari lýsing:
Forstofa:
Fataskápur.
Eldhús: Sérsmíðuð innrétting með ljúflokubúnaði á skúffum og skápum. Eldhústæki frá Ormsson. Gert er ráð fyrir plássi og tengi fyrir uppþvottavél.
Stofa: Rúmgóð og björt, útgengi á svalir.
Hjónaherbergi: Fataskápur með ljúflokunarbúnaði.
Baðherbergi: Flísar á gólfi. Veggir verða að hluta til flísalagðir með vönduðum, gráumflísum í u.þ.b. 240 cm hæð. Vönduð innrétting undir handlaug, spegill fyrir ofan handlaug, upphengt salerni. Gólfhiti er á baðherbergi ásamt handklæðaofni. Tengi er fyrir þvottavél og þurrkara inni á baðherbergi. Upphækkun með skúffum undir vélar.
Sérgeymsla í sameign merkt 0013: 9,6 fm, málað gólf.

Hraunbær 103 er 9 hæða hús með þremur stigagöngum (A, B og C).
Húsið er eingangrað að utan með steinull og klætt með álklæðningu, timburklæðning er inná svölum. Allir gluggar eru ísteyptir timbur-álgluggar með K-gleri. Stigahús eru teppalögð en andyrishús flísalögð með hálkufríum flísum. Innréttingar og skápar verða af vandaðri gerð og með ljúflokunarbúnaði. Úthliðar innréttinga verða lagðar með melamínspón og sprautulakkaðar í ljósum lit í bland. Gólfhiti er á baðherbergjum. Forhitari er á neysluvatni.
 
Byggingaraðili er Dverghamrar ehf. Fyrirtækið hefur lagt áherslu á byggingu íbúðar- og iðnaðarhúsnæðis og hefur byggt upp yfir 30 ára reynslu á því sviði.
Byggingastjórar fyrirtækisins starfa eftir vottuðu gæðastjórnunarkerfi þar sem lögð er rík áhersla á fagleg vinnubrögð. Framkvæmdar eru reglulegar úttektir á verkþáttum framkvæmdarinnar þar sem tryggt er að unnið sé í samræmi við verklýsingar og að skilað sé traustri og góðri vöru á réttum tíma.
 
Arkitekt hússins er Kristinn Ragnarsson. Raflagnahönnun er unnin af Raflausnum. Lagnahönnun og burðarþolshönnun er unnin af verkfræðistofunni New Nordic Engineering. 

Sjá nánar vef byggingaraðila þar sem hægt er að nálgast skilalýsingu, skoða húsið í heild sinni og opna teikningar fyrir hverja 
íbúð: https://vefir.onno.is/dverghamrar/hraunbaer-103/?ref=lind

Allar nánari upplýsingar veita:
Lára Þyri Eggertsdóttir, löggiltur fasteignasali/B.A. í lögfræði í síma 899-3335 eða [email protected]

 
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% af heildarfasteignamati, lögaðili greiðir 1,6%  
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.500 af hverju skjali. 
3. Lántökugjald lánastofnunar - Nánari upplýsingar á heimasíðum lánastofnana. 
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. gjaldskrá.
5. Kaupandi greiðir skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati þegar það verður lagt á.
 

Ljósmyndir

Því miður eru engar myndir af eigninni. Þú gætir fundið myndir á öðrum auglýsingum sömu eignar.

Verðmat FastansVerðmat Fastans

Söguleg þróun á verðmati eignarinnar frá 2006

Þinglýstir kaupsamningarÞinglýstir kaupsamningar

Á eignum sem deila heimilisfangi og stærð

loading

loading

Stundum hafa eignir ekki verið seldar nógu oft / yfir höfuð siðan 2007. Þá getur þú notað Samanburðinn sem greinir verðsögu sambærilegra eigna úr þinglýstum kaupsamningum

Eigindi auglýsingarEigindi auglýsingar

Ítarlegri atriði sem á við um auglýsinguna

FasteignaskráFasteignaskrá

Eignir í sömu byggingu og upplýsingar þeirra

Ekki tókst að sækja eignir.

Samskiptasaga byggingar

Atriði af fundum Byggingarfulltrúa Reykjavíkur er varðar eignina

PóstlistiÁbendingarHafa samband