25.02.2021 980190
Geirsgata 2
101 Reykjavík
29 myndir
108.000.000
916.808 kr. / m²
25.02.2021 - 51 dag á Fastanum - Fjarlægt þann 16.04.2021
2
Svefnherbergi
2
Baðherbergi
117.8m²
Fermetrar
Tegund
FjölbýliByggingarár
2018Fasteignamat
73.300.000Inngangur
SameiginlegurFastanúmer*
-Byggingarnúmer*
1160870Brunabótamat
55.800.000Verðmat Fastans
Reiknar verðmat...
Staðsetning
Tenglar
Lýsing
Lýsing á eigninni frá fasteignasölu
Íbúðin er fullfrágengin ásamt gólfefnum, parket á aðalflötum og flísar á baðherbergjum og þvotthúsi.
HÖNNUÐIR Arkitektar hússins eru PKdM arkitektar. Stofan var stofnuð af Pálmari Kristmundssyni arkitekt sem vinnur í samstarfi með Fernando de Mendonca og öflugu teymi alþjóðlegra arkitekta. Stofan hefur unnið til fjölda verðlauna hér heima og erlendis fyrir framúrskarandi hönnun.
Guðbjörg Magnúsdóttir, sem er meðal þekktustu innanhússhönnuða landsins, hannaði og sá um efnisval inn í allar íbúðir á 2-5 hæð húsana. Ferill verkfræðistofa hefur með höndum burðarþols- og lagnahönnun, teiknistofan Verkís bruna-og hljóðhönnun og Verkhönnun raflagna- og lýsingarhönnun.
Hafnartorg samanstendur af 70 glæsilegum íbúðum af ýmsum stærðum og gerðum, meðal annars stílhreinum stúdíóíbúðum og stórum þakíbúðum með útsýni yfir hafnarsvæðið og borgina. Hver bygging hefur sín sérkenni sem koma m.a. fram í efnisvali á klæðningum sem eru mismunandi milli húsa og kalla fram hreyfingu og takt í heildarhönnun svæðisins. Sem dæmi er teygð álklæðning með skírskotun í bárujárn, koparklæðning sem veðrast og grænkar með tíð og tíma og þrívíðar áleiningar sem brjóta upp byggingarnar við Arnarhól. Þannig vísar hver bygging bæði til hins gamla og hins nýja og húsin skapa saman fjölbreytta heildarmynd.
Hafnartorg skartar 70 hágæða íbúðum, allt frá stílhreinum tveggja herbergja íbúðum upp í stórglæsilegar þakíbúðir með einstöku útsýni. Allar innréttingar og tæki eru sérvaldar af innanhúsarkitekt til að mynda eina stílhreina heild og eru öll tæki og tæknibúnaður fyrsta flokks.
Útihurðir eru raflæstar og tengdar heildstæðu aðgangsstýrikerfi. E-Net ljósastýrikerfi frá GIRA er í öllum íbúðum sem bíður upp á notkun smáforrits (app) í snjalltækjum til að stýra ljósum. Ljósasenurofar eru í öllum íbúðum og almennt er dimmer á kveikingum. Rofa- og tenglaefni er dökkgrátt GIRA E2 Myndavéladyrasími er í öllum íbúðum. Útilýsing á svölum er lágstemmd. Vandað er til lýsingar í sameign sem stýrt er að hluta af hreyfiskynjurum.
Gólf á baði og í þvottaherbergi eru flísalögð, önnur rými skilast með parketlögðum gólfefnum.
Innihurðir eru í yfirstærð og sprautulakkaðar mattar í sama lit og veggir, framleiddar hjá HBH smíðaverkstæði. Inngangshurð er svargrá með viðaráferð frá Huet. Hurðarhúnar eru superantrazite satin frá Olivari eða sambærilegt.
Anddyri: Fataskápar í anddyri eru spónlagðir að innan og með hurðum og ytra birði sem eru sprautulakkaðar í litaþema íbúðarinnar. Innvols er frá Innval með fylgihluti af vandaðri gerð.
Eldhús: Innrétting er af vönduðustu gerð sem Noblessa býður upp á, háglans með matta grynnri efri skápa til að brjóta upp útlitið. Borðplata og klæðning er úr Meganite Carrara efni með eldhúsvaski úr sama efni sem felldur er í borðplötuna. Eldhústæki eru af vönduðustu gerð frá Simens, dökkt stainless steel. Í eyjunni er vifta sem gengur ofan í boðplötuna sem og vínkælir. Ofninn, helluborðið og kaffivélin (í íbúðum sem sem kaffivél fylgir) eru með Home Connect sem hægt er að stjórna úr snjallsíma eða spjaldtölvu. Lýsing er undir efri skápum. Ljúflokun er á skúffum og skápum. Blöndunartæki er frá Vola.
Baðherbergi eru flísalögð með ítölskum gæðaflísum með marmaramynstri frá Iris stone, bæði gólf og veggir. Innrétting er í litaþema íbúðar háglans grá frá Noblessa, með Meganite borðplötu og innbyggðum vaski úr sama efni. Speglalýsing á baðherbergjum er Mini Glo Ball frá Flos. Hreinlætistæki eru frá Vola. Salerni eru upphengd með innbyggðum vatnskassa. Fyrir sturtum er hert sturtugler ýmist í ramma eða rennihurð.
Þvottaherbergi: Vönduð innrétting frá Noblessa í litaþema íbúðar er í þvottahúsi. Vélar eru hafðar í vinnuhæð þar sem pláss leyfir. Á gólfi eru gæðaflísar frá Iris stone á Ítalíu með marmaramynstri. Skolvaskur fylgir. Rakaheldir ljósakúpplar eru í þvottaherbergi. Svefnherbergi: Fataskápar í svefnherbergjum eru spónlagðir að innan og með hurðum og ytra birði sem eru sprautulakkaðar í litaþema íbúðarinnar. Innvols er frá Innval með fylgihluti af vandaðri gerð.
Geymslur: Gólf í séreignageymslum verða flotuð og lökkuð. Léttir veggir verða úr gipsplötuveggjum, málaðir í ljósum lit. Geymslusvæði er upphitað.
Sorp íbúða er í djúpgámum við ramp byggingar G1.
Allt ytra efnisval bygginganna er í hæsta gæðaflokki sem og allur lóðarfrágangur. Undir húsunum er stærsti bílakjallari landsins sem nær allt til Hörpunnar. Íbúðirnar eru frábærlega staðsettar í nálægð við menningu, sögu, verslun og þjónustu. Glæsilegar fasteignir í hjarta Reykjavíkur með iðandi mannlíf allt árið um kring.
Varðandi allan frágang húsanna innan sem utan vísast í sérstaka skilalýsingu byggingaraðila. Ennfremur má sjá teikningar inn á vef byggingaraðila tgverk.is
Nánari upplýsingar veita:
Andri Hrafn Agnarsson/ s 698-2127 / [email protected]. Aðstoðarmaður fasteignasala í löggildingarnámi
Skrifstofa / s.527-1717 / [email protected]
Agnar Agnarsson löggiltur fasteignasali / s.820-1002 / [email protected]
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. DOMUSNOVA fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
- Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og 1,6% fyrir lögaðila.
- Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.500,- fyrir hvert skjal.
- Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
- Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
- Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.
Ljósmyndir
Verðmat Fastans
Söguleg þróun á verðmati eignarinnar frá 2006
Þinglýstir kaupsamningar
Á eignum sem deila heimilisfangi og stærð
Pnr. | Heimilisfang | Kaupverð | Stærð | Fermetraverð | Tegund | Fastan. | Dags. | Noth. |
---|---|---|---|---|---|---|---|---|
90.000.000 kr. | 118.10 m² | 762.066 kr./m² | Fjölbýli | 2363598 | 10.08.2020 | ✅ | ||
78.000.000 kr. | 117.50 m² | 663.830 kr./m² | Fjölbýli | 2363607 | 27.10.2020 | ✅ | ||
95.000.000 kr. | 118.40 m² | 802.365 kr./m² | Fjölbýli | 2363616 | 26.05.2021 | ❌ | ||
98.900.000 kr. | 117.80 m² | 839.559 kr./m² | Fjölbýli | 2363606 | 19.05.2021 | ✅ | ||
95.000.000 kr. | 118.40 m² | 802.365 kr./m² | Fjölbýli | 2363616 | 14.07.2021 | ✅ | ||
95.000.000 kr. | 117.50 m² | 808.511 kr./m² | Fjölbýli | 2363607 | 30.09.2021 | ✅ |
Fastinn geymir kaupsamninga aftur til 2007
Sótt frá Þjóðskrá
Stundum hafa eignir ekki verið seldar nógu oft / yfir höfuð siðan 2007. Þá getur þú notað Samanburðinn sem greinir verðsögu sambærilegra eigna úr þinglýstum kaupsamningum
loading
Stundum hafa eignir ekki verið seldar nógu oft / yfir höfuð siðan 2007. Þá getur þú notað Samanburðinn sem greinir verðsögu sambærilegra eigna úr þinglýstum kaupsamningum
Eigindi auglýsingar
Ítarlegri atriði sem á við um auglýsinguna
Eignanúmer : 980190
Einnota auðkenni fyrir hverja eign.Verð : 108.000.000
Ásett verð eignarinnar í krónum.Brunabótamat : 55.800.000
Brunabótamat eignarinnar samkvæmt síðasta mati.Áhvílandi : 0
Heildarfjárhæð áhvílandi á eigninni.Fasteignamat : 73.300.000
Opinbert fasteignamat eignarinnar.Verð á fermetra : 916.808
Verð eignarinnar á hvern fermetra.Fermetrar : 117.8
Stærð eignarinnar mæld í fermetrum.Dagsetning skráningar : 25.02.2021
Dagsetningin þegar að auglýsingin var gefin út.Staða auglýsingar : 16.04.2021
Dagsetningin þegar að auglýsingin var fjarlægð.Skráningardagur : 25.02.2021
Dagsetningin þegar eignin var skráð opinberlega.Póstnúmer : 101
Póstnúmer þar sem eignin er staðsett.Heimilisfang : Geirsgata 2
Fullt heimilisfang eignarinnar.Tegund eignar : fjolb
Tegund eignarinnar, t.d. íbúð, einbýlishús, fjölbýlishús.Byggingarár : 2018
Ár þegar bygging eignarinnar var fullgerð.Herbergi : 3
Heildarfjöldi herbergja í eigninni.Svefnherbergi : 2
Fjöldi svefnherbergja í eigninni.Stofur : 0
Fjöldi stofa í eigninni.Salerni : 2
Fjöldi salerna í eigninni.Inngangur : Sameiginlegur
Lýsing á aðalinngangi eignarinnar.Bílskúr : 1
Hvort eignin hafi bílskúr (satt/rangt).Heitur pottur : 1
Hvort eignin sé með heitum potti (satt/rangt).Verönd : 1
Hvort eignin hafi verönd (satt/rangt).Auka íbúð : 1
Hvort eignin innihaldi auka íbúð (satt/rangt).Sýnileg : 1
Hvort eignin sé sýnileg á vefsíðum eða öðrum miðlum (satt/rangt).Heiti heimilisfangs : Geirsgata
Heiti eignar eða byggingar.Húsnúmer : 2
Húsnúmer eignarinnar.
Fasteignaskrá
Eignir í sömu byggingu og upplýsingar þeirra
040101
Veitingahús á 1. hæð
356 m²
Fasteignamat 2025
146.000.000 kr.
Fasteignamat 2024
145.900.000 kr.
Samskiptasaga byggingar
Atriði af fundum Byggingarfulltrúa Reykjavíkur er varðar eignina
Engin samskiptasaga fannst á þessari eign.
Byggir aðeins á útgefnum fundum Byggingarfulltrúa Reykjavíkur á milli 1997 - 2024 ( júlí ).