25.02.2021 980151

Söluskrá FastansNúpahraun 14

815 Þorlákshöfn

hero

10 myndir

43.100.000

310.072 kr. / m²

25.02.2021 - 8 dag á Fastanum - Fjarlægt þann 04.03.2021

3

Svefnherbergi

1

Baðherbergi

139

Fermetrar

Fasteignasala

Fasteignasala Suðurlands

[email protected]
483 3424
Bílskúr

Staðsetning

Auglýsing

Tenglar

Lýsing

Lýsing á eigninni frá fasteignasölu

Fasteignasala Suðurlands (s 483 3424) kynnir:  Núpahraun 14, Þorlákshöfn.  Nýtt og einstaklega skemmtilega skipulagt 109,6m2 endaraðhús með 3 stórum svefnherbergjum og 29,4m2 bílskúr, samtals 139m2. Húsið afhendist á byggingarstigi 5 í október 2021.   Hægt er að fá húsið afhent fullbúið !
Húsið er timburhús, klætt að utan með báruplötum, dökkgrátt að lit
 Hvítar eða eikar innihurðir fylgja með tilbúnar til uppsettningar!

* Allar nánari upplýsingar má nálgast á [email protected] og í síma 483 3424 *

Húsið skiptist svo:
Anddyri * 3 stór svefnherbergi * stofa og eldhús í opnu rými, utangengt er í garðinn úr stofunni * baðherbergi * þvottahús/geymslu, þaðan sem er utangengt og bílskúr. 


Húsið afhendist tilbúið til innréttingar (á byggingarstigi 5, skv. íst-staðli):


Útveggir eru klæddir lituðu bárastáli,  dökkgráu RR23, (Ruukki 50 plus)
Á þaki verður Ranilla bárað þakstál, dökkgrátt RR23 (Ruukki 30)
Álrennur eru utaná þakkant.
Gluggar og hurðir: Gluggar eru ál-tré gluggar frá viðurkenndum aðila. Gluggar eru hvítir RAL9010 að innan en gráir 6 að utan.
Að innan skilast veggir tilbúnir til málunar.
Loft eru upp tekinn og á eftir að klæða loftaklæðningu,  en raflagnir og lagnagrind komin upp.
Innveggir eru klæddir 13mm harðgipsi. 
Hvítar eða eikar innihurðir fylgja með tilbúnar til uppsettingar.
Gólf: Gólf eru steypt og afhendast flotdregin.
Hitakerfi: Búið er að leggja gólfhitalagnir og tengja saman við tengigrind.  Stýringar og annar búnaður gólfhita fylgir ekki.
Raflagnir: Búið er að leggja út ídráttarrör og dósir og draga fyrir vinnurafmagni.  Tafla er ófrágengin.
Lóð : Lóð er grófjöfnuð með mulningi í plani.  Sorptunnuskýli á lóð eru komin.

Kaupandi borgar skipulagsgjald
Seljandi greiðir lóðargjald og öll tengigjöld rafmagns og vatns.


Í Þorlákshöfn er þjónustustig mjög gott -  hagnýtar upplýsingar:

Við Þorlákshöfn er rómaður golfvöllur sem staðsettur er í jaðri byggðarinnar, rétt við sjávarsíðuna!

Hér eru einstaklega góður grunn- og leikskóli þar sem tekin eru inn börn niður í 18 mánaða!

Verslun og þjónusta:

Hér má m.a. finna:

Apótekarann.

Bakaríið Café Sól (facebook:  café sól)

Hárgreiðslustofuna Kompuna (facebook:  kompan klippistofa)

Rakarstofu Kjartans (facebook: kjartan rakari)

Vínbúðina.

Kr.-verslun með yfir 2.000 helstu vöruliði á Krónuverði

Veitingastaðina:

Hendur í Höfn, kaffihús, veitingastað og glerlistasmiðju (hendurihofn.is og

facebook:  hendur í höfn)

Meitilinn (facebook:  Meitillinn veitingahús)

Svarta Sauðinn (facebook:  svarti sauðurinn)  og

Skálann, sem jafnframt er sölustaður Orkunnar.    Einnig er Olís hér með ÓB-stöð.


Hér er mjög góð heilsugæsla.
 

Hér er tannlæknir.

Í Ráðhúsi bæjarins eru, auk skrifstofu sveitarfélagsins: 

Mjög gott bókasafn (facebook:  Bæjarbókasafn Ölfuss)

Landsbankinn

og útibú Póstsins


Tómstundir og afþreying: 
Íþróttaiðkun í Þorlákshöfn er gríðarlega öflug og þá helst meðal barna og unglinga. Frá fjögurra ára aldri er í boði að iðka fótbolta (aegirfc.is), fimleika (facebook:  fimleikadeild Þórs), körfubolta (facebook:  Þór Þorlákshöfn) og frjálsar, ásamt því að iðkaður er badminton, motorcrossá braut rétt utan við bæinn, hestamennska (facebook:  hestamannafélagið háfeti) með fallegum reiðleiðum allt um kring og golf á rómuðum golfvelli.  Hér er svo einnig Litli íþróttaskólinn á vegum fimleikadeildarinnar fyrir börn frá eins árs aldri.   

Í íþróttamiðstöðinni er mjög góð líkamsræktar-aðstaða þar sem hægt er að komast í einka- þjálfun, spinning, hóptíma, líkamsrækt fyrir eldri borgara o.m.fl.  Þar er að finna góða sundaðstöðumeð útilaug, heitum pottum, vaðlaug og skemmtilegri innilaug fyrir fjölskyldufólk.

Jógastúdíó (Jógahornið).

Öflug sjúkraþjálfun.

Afþreying er hér af ýmsum toga:

hér má meðal annars finna:  

Fallegt útivistarsvæði við vitann með útsýnispalli og göngustíg meðfram bjarginu í einstakri náttúrufegurð. 

Heilsustíg má finna í bænum þar sem líkamsræktartæki eru við göngu/hlaupastíga.

Hér er æðisleg strönd sem mikið er mikið notuð til útivistar og þar má oft sjá menn á brimbrettum, en slíkt er gott að stunda hér.

Í sjónum við útsýnispallinn er einn vinsælasta staður til brimbrettaiðkunar á Íslandi.

Blackbeach tours (www.blackbeachtours.is) er afþreyingar fyrirtæki sem býður upp á fjórhjólaferðir bæði í fjöruna og um hraunið, RIB bátaferðir meðfram bjarginu og adrenalínferðir, snekkjuleigu og sjóstöng og jógaferðir úti í náttúrunni.  

Einnig er hér:

Öflugt leikfélag (facebook: leikfélag ölfuss).

Hinir ýmsu kórar (facebook:  Tónar og Trix, Kyrjukórinn,  ofl.)

Einn stærsti Kiwanisklúbbur landsins (facebook:  Kiwanisklúbburinn Ölver)

O.sfr. o.s.frv. o.s.frv.  :)

** Allar helstu fréttir úr sveitarfélaginu má finna á:  www.hafnarfrettir.is

 

 

Ljósmyndir

Auglýsing

Verðmat FastansVerðmat Fastans

Söguleg þróun á verðmati eignarinnar frá 2006

Ath. að Verðmat Fastans er enn í þróun og byggir í dag á mjög grunnum upplýsingum.

Þinglýstir kaupsamningarÞinglýstir kaupsamningar

Á eignum sem deila heimilisfangi og stærð

Pnr.HeimilisfangKaupverðStærðFermetraverðTegundFastan.Dags.Noth.
77.000.000 kr.139.00 553.957 kr./m²251539021.05.2024

Fastinn geymir kaupsamninga aftur til 2007

Sótt frá Þjóðskrá

Stundum hafa eignir ekki verið seldar nógu oft / yfir höfuð siðan 2007. Þá getur þú notað Samanburðinn sem greinir verðsögu sambærilegra eigna úr þinglýstum kaupsamningum

loading

Stundum hafa eignir ekki verið seldar nógu oft / yfir höfuð siðan 2007. Þá getur þú notað Samanburðinn sem greinir verðsögu sambærilegra eigna úr þinglýstum kaupsamningum

AuglýsingasagaAuglýsingasaga

Endurskráningar sömu eignar á mismunandi verð- og tímabilum

Fjöldi skráningaÁsett verðFermetraverðTímabil.
4 skráningar
78.500.000 kr.564.748 kr./m²12.04.2024 - 26.04.2024
1 skráningar
44.100.000 kr.317.266 kr./m²06.04.2021 - 20.07.2021
5 skráningar
42.800.000 kr.307.914 kr./m²11.03.2021 - 23.03.2021
2 skráningar
54.500.000 kr.392.086 kr./m²17.12.2020 - 13.03.2021
1 skráningar
Tilboð-11.03.2021 - 12.03.2021
10 skráningar
43.100.000 kr.310.072 kr./m²17.12.2020 - 12.02.2021

Eignin hefur verið auglýst / endurskráð 23 sinnum síðan 2014.

Eigindi auglýsingarEigindi auglýsingar

Ítarlegri atriði sem á við um auglýsinguna

FasteignaskráFasteignaskrá

Eignir í sömu byggingu og upplýsingar þeirra

010103

Raðhús á 1. hæð
139

Fasteignamat 2025

66.300.000 kr.

Fasteignamat 2024

66.500.000 kr.

Samskiptasaga byggingar

Atriði af fundum Byggingarfulltrúa Reykjavíkur er varðar eignina

Engin samskiptasaga fannst á þessari eign.


    Byggir aðeins á útgefnum fundum Byggingarfulltrúa Reykjavíkur á milli 1997 - 2024 ( júlí ).

    PóstlistiÁbendingarHafa samband