23.01.2021 973572
Bogahlíð 24
105 Reykjavík
28 myndir
49.900.000
568.337 kr. / m²
23.01.2021 - 9 dag á Fastanum - Fjarlægt þann 31.01.2021
3
Svefnherbergi
1
Baðherbergi
87.8m²
Fermetrar
Tegund
FjölbýliByggingarár
1956Fasteignamat
44.400.000Inngangur
SameiginlegurFastanúmer*
2031345Byggingarnúmer*
1002858Brunabótamat
-Verðmat Fastans
Væntanlegt
Staðsetning
Tenglar
Lýsing
Lýsing á eigninni frá fasteignasölu
RE/MAX Senter kynnir 4ra herb. endaíbúð á 1. hæð að Bogahlíð 24 í Reykjavík. Björt íbúð með gluggum á þrjá vegu. Húsið lítur einstaklega vel út eftir nýlegar endurbætur. Húsið er eftir Sigvalda Thordarson arkitekt, einn þekktasta og virtasta arkitekt á Íslandi. Innréttingar og gólfefni í íbúð er einnig mikið endurnýjað. Göngufæri er í leikskóla, grunnskóla og framhaldsskóla. Einnig er göngufæri í ýmsa þjónustu í Suðurveri, Kringlunni og miðbænum.
Eignin skiptist í forstofu, þrjú svefnherbergi, baðherbergi, stofu, eldhús, þvottahús og geymslu. Eignin er skráð hjá Þjóðskrá Íslands 87,8 m2.
Söluyfirlit má nálgast hér
Nánari lýsing:
Forstofa inn af snyrtilegri teppalagðri sameign. Innan íbúðar er innbyggður fataskápur. Parket á gólfi er frá Birgisson og flæðir, án þröskulda, inn um öll rými íbúðar, fyrir utan baðherbergi og þvottahús.
Stofa er björt með glugga til suðvesturs og útgengi út á svalir. Nýleg svalahurð.
Eldhús er inn af stofu (áður inn af forstofu). Nýleg hvít HTH innrétting á þremur veggjum og hluti skápa ná upp undir loft. Viðarlituð borðplata, spanhelluborð og háfur þar fyrir ofan. Tæki frá Ormsson og blöndunartæki frá Tengi. Stæði fyrir uppþvottavél.
Barnaherbergi er inn af stofu. Gluggi til norðurs. Hvítur fataskápur ofan á parketi.
Hjónaherbergi er rúmgott með hvítum háglans fataskápum sem fylla út í einn vegg. Gluggi snýr í norðaustur.
Barnaherbergi á svefnherbergisgangi er án fataskápa.
Baðherbergi er nýuppgert, með hvítum flísum upp veggi og gráum gólfflísum. Sturta með glervegg, upphengt salerni, hvítur handklæðaofn og innrétting undir handlaug. Veggfestur spegill með ljósi.
Þvottahús er innan íbúðar og gengið er inn í það frá forstofu. Hvítar skúffueiningar með grárri borðplötu undir þvottavél og þurrkara. Hillustæða á einum vegg. Gráar gólfflísar. Einnig er þvottahús í sameign.
Geymsla er sér í sameign í kjallara og er úti í enda og með glugga.
Hjóla- og vagnageymsla er í sameign. Beint útgengi út í garð.
Garður er gróinn, stór grasflötur og girtur af með trjám, runnum og grindverki. Bílastæði eru framan við hús.
Endurbætur: 2018-2019 var húsið sprunguviðgert og málað. Einnig var skipt um glugga þar sem þurfti sem og í sameign og hurðum í sorpgeymslu skipt út. Rafmagnstölfur voru endurnýjaðar í báðum stigagöngum. Epoxý sett á gólf í sameign í kjallara. Grindverk umhverfis lóð var endurnýjað og nýlega var settur upp nýr dyrasími með myndavél og kóða til að komast inn.
2017 var drenað og skipt um skólplagnir framan við hús og brunnar endurnýjaðir. Lagnir voru ýmist endurnýjaðar eða fóðraðar og niðurfallsrör endurnýjuð.
2015 var dregið nýtt rafmagn og settir nýir tenglar í íbúð. Rafmagnstafla var endurnýjuð og færð úr forstofu og inn í þvottahús. Á sama tíma var þvottahús útbúið úr hluta af eldhúsi og inngangur í eldhús færður. Eldhúsinnrétting og tæki endurnýjuð sem og allt inni á baðherbergi, þ.e. flísar, innrétting, handlaug og salerni.
Allar frekari upplýsingar um eignina veitir Sigrún löggiltur fasteignasali í síma 864-0061 / [email protected]
-Vegna mikillar eftirspurnar vantar allar tegundir eigna á skrá.
-Hafðu samband og ég verðmet eignina þína þér að kostnaðarlausu.
-Sigrún Gréta löggiltur fasteignasali í síma 864 0061 eða [email protected]
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% af heildarfasteignamati fyrir einstaklinga (0,4% fyrir fyrstu kaupendur) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Stimpilgjald af veðskuldabréfi - 0% af höfuðstól skuldabréfs.
3. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - 2.500 kr. af hverju skjali.
4. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 0,5-1,0% af höfuðstól skuldabréfs. Nánari upplýsingar t.d. á heimasíðum lánastofnana.
Fletta í fasteignalista
Ljósmyndir
Verðmat Fastans
Söguleg þróun á verðmati eignarinnar frá 2006
Við erum að vinna að uppfærslu á Verðmati Fastans. Það kemur aftur von bráðar.
Þinglýstir kaupsamningar
Á eignum sem deila heimilisfangi og stærð
loading
loading
Stundum hafa eignir ekki verið seldar nógu oft / yfir höfuð siðan 2007. Þá getur þú notað Samanburðinn sem greinir verðsögu sambærilegra eigna úr þinglýstum kaupsamningum
Eigindi auglýsingar
Ítarlegri atriði sem á við um auglýsinguna
Eignanúmer : 973572
Einnota auðkenni fyrir hverja eign.Verð : 49.900.000
Ásett verð eignarinnar í krónum.Brunabótamat : 0
Brunabótamat eignarinnar samkvæmt síðasta mati.Áhvílandi : 0
Heildarfjárhæð áhvílandi á eigninni.Fasteignamat : 44.400.000
Opinbert fasteignamat eignarinnar.Verð á fermetra : 568.337
Verð eignarinnar á hvern fermetra.Fermetrar : 87.8
Stærð eignarinnar mæld í fermetrum.Dagsetning skráningar : 23.01.2021
Dagsetningin þegar að auglýsingin var gefin út.Staða auglýsingar : 31.01.2021
Dagsetningin þegar að auglýsingin var fjarlægð.Skráningardagur : 23.01.2021
Dagsetningin þegar eignin var skráð opinberlega.Póstnúmer : 105
Póstnúmer þar sem eignin er staðsett.Heimilisfang : Bogahlíð 24
Fullt heimilisfang eignarinnar.Tegund eignar : fjolb
Tegund eignarinnar, t.d. íbúð, einbýlishús, fjölbýlishús.Byggingarár : 1956
Ár þegar bygging eignarinnar var fullgerð.Herbergi : 4
Heildarfjöldi herbergja í eigninni.Svefnherbergi : 3
Fjöldi svefnherbergja í eigninni.Stofur : 1
Fjöldi stofa í eigninni.Salerni : 1
Fjöldi salerna í eigninni.Inngangur : Sameiginlegur
Lýsing á aðalinngangi eignarinnar.Bílskúr : 1
Hvort eignin hafi bílskúr (satt/rangt).Heitur pottur : 1
Hvort eignin sé með heitum potti (satt/rangt).Verönd : 1
Hvort eignin hafi verönd (satt/rangt).Auka íbúð : 1
Hvort eignin innihaldi auka íbúð (satt/rangt).Sýnileg : 1
Hvort eignin sé sýnileg á vefsíðum eða öðrum miðlum (satt/rangt).Heiti heimilisfangs : Bogahlíð
Heiti eignar eða byggingar.Húsnúmer : 24
Húsnúmer eignarinnar.
Fasteignaskrá
Eignir í sömu byggingu og upplýsingar þeirra
Samskiptasaga byggingar
Atriði af fundum Byggingarfulltrúa Reykjavíkur er varðar eignina