18.01.2021 972365

Söluskrá FastansGeirsgata 2

101 Reykjavík

hero

8 myndir

88.900.000

837.100 kr. / m²

18.01.2021 - 38 dag á Fastanum - Fjarlægt þann 24.02.2021

2

Svefnherbergi

2

Baðherbergi

106.2

Fermetrar

Fasteignasala

Borgir

[email protected]
896-8030
Svalir
Geymsla

Staðsetning

Auglýsing

Tenglar

Lýsing

Lýsing á eigninni frá fasteignasölu

ÞG-Verk kynnir til sölu 106,2 fm þriggja herbergja íbúð á þriðju hæð við Geirsgötu 2, Hafnartorgi. Skoðaðu úrval íbúða á http://hafnartorg.is/ibudir/

Skipulag 301: Íbúðin skiptist í anddyri, barnaherbergi, stofu, eldhúsi, þvottaherbergi, hjónaherbergi. Baðherbergi eru tvö, þar af annað inn af hjónaherbergi. Frá stofu er gengið út á svalir sem snúa til suðurs. Geymsla er staðsett í sameign hússins. Í sameign er einnig sameiginleg hjóla- og vagnageymsla. Íbúðir afhentast fullfrágengnar án gólfefna á aðalrýmum en votrými eru flísalögð. Sameignir og lóð skilast fullfrágengin.


Geirsgata 2 (G1) er hluti af Hafnartorgi sem samanstendur af 70 íbúðum í háum gæðaflokki. Byggingarnar tengjast með sameiginlegum bílakjallara, sem tengist einnig við bílakjallara Hörpunnar og verður með þeirri tengingu stærsti bílakjallari landsins. Hönnun bygginganna er fáguð og tímalaus með áherslur á efni og efnisáferðir, vandaðan frágang, vandaðar innréttingar, búnað og tæki.

Almenn lýsing: Að innan er íbúðin máluð með gráu litaþema. Veggir, loft, hurðir og innréttingar eru samlitar. Útihurðir eru raflæstar og tengdar heildstæðu aðgangsstýrikerfi. Dyrasími með myndavél frá Bticino og þráðlausu e-net ljósastýrikerfi frá GIRA. Allar íbúðir eru með loftræstikerfi þar sem upphituðu fersklofti er dælt inn í íbúðir og í votrýmum er vélrænt útsog.
Anddyri: Fataskápar eru í anddyri sem eru spónlagðir að innan með lýsingu og hurðum. Ytra byrði er sprautu lakkað í litaþema íbúðarinnar. Innvols er frá Innval með fylgihluti af vandaðri gerð.
Eldhús/borðstofa/stofa:
Innréttingar: Vandaðar innréttingar frá Noblessa í Þýskalandi og GKS með ljúflokunum á skápum og skúffum.
Borðplata: Hvít Meganite borðplata og innbyggður vaskur úr sama efni.
Blöndunartæki eru svört á lit frá Vola, hönnuð af Arne Jacobsen.
Eldhústæki: Blástursofn, helluborð og ísskápur frá Siemens (dökkt stainless steel) með Home Connect tengingu sem hægt er að stjórna úr snjallsíma eða spjaldtölvu. Gufugleypir er frá Elica, tegund Easy.
Svefnherbergi: Fataskápar í svefnherbergjum eru spónlagðir að innan og með hurðum og ytra byrði sem eru sprautu lakkaðar í litaþema íbúðarinnar. Innvols er frá Innval með fylgihluti af vandaðri gerð.
Baðherbergi: Votrými eru flísalögð með ítölskum gæðaflísum með marmaramynstri frá Iris. Innrétting er í litaþema íbúðar, háglans grá frá Noblessa með Meganite borðplötu og innbyggðum vaski úr sama efni. Speglalýsing á baðherbergjum er Mini Glo Ball frá Flos. Hreinlætistæki eru frá Vola. Salerni upphengd með innbyggðum vatnskassa.
Þvottaherbergi: Flísalögð með sömu flísum og í baðherbergi. Innrétting er frá Noblessa í sama litaþema. Rakaheldir ljósakúpplar eru í þvottaherbergi.
Geymslur: Gólf í séreignageymslum verða flotuð og lökkuð með kerfislofti. Léttir veggir verða úr gipsplötuveggjum, málaðir í ljósum lit.
Bílastæði: Íbúum Hafnartorgs stendur til boða að leigja bílastæðakort skv. verðskrá bílageymslu Hafnatorgs, sjá nánar á vefslóð: www.hafnartorg.is/bilageymsla/.

Nánar um Hafnartorg:
Arkitektar verkefnisins eru PKdM arkitektar. Stofan sem var stofnuð af Pálmari Kristmundssyni arkitekt hefur unnið til fjölda verðlauna hér heima og erlendis fyrir framúrskarandi hönnun. Allt efnisval bygginganna að innan sem utan er í hæsta gæðaflokki sem og allur lóðarfrágangur.
Nánari upplýsingar um Hafnartorg er að finna á www.hafnartorg.is.
Það skiptir máli hver byggir fyrir þig. Meginmarkmið ÞG Verks er að skila góðu verki og eiga traust og áreiðanleg samskipti við sína viðskiptavini. Kynntu þér gæðatryggingu ÞG Verks www.tgverk.is/gaedakerfi-tgverk.

Til að fá nánari upplýsingar um tíma til að skoða íbúðir, má hafa samband beint við Ægir hjá Borgum fasteignasölu s. 896-8030 og [email protected] eða Hrefnu hjá ÞG í síma 824-8448 

Kauptilboð berist Ægi Breiðfjörð á Borgum fasteignasölu. Nánari upplýsingar í síma 588-2030 eða á netfangið [email protected].

Allar fermetratölur íbúða eru birtar með fyrirvara.
Eignaskiptayfirlýsing gildir.

Ljósmyndir

Verðmat FastansVerðmat Fastans

Söguleg þróun á verðmati eignarinnar frá 2006

Þinglýstir kaupsamningarÞinglýstir kaupsamningar

Á eignum sem deila heimilisfangi og stærð

Pnr.HeimilisfangKaupverðStærðFermetraverðTegundFastan.Dags.Noth.
72.000.000 kr.106.60 675.422 kr./m²236361211.03.2019

88.900.000 kr.106.20 837.100 kr./m²236360328.09.2021

Fastinn geymir kaupsamninga aftur til 2007

Sótt frá Þjóðskrá

Stundum hafa eignir ekki verið seldar nógu oft / yfir höfuð siðan 2007. Þá getur þú notað Samanburðinn sem greinir verðsögu sambærilegra eigna úr þinglýstum kaupsamningum

VerðsagaVerðsaga

Byggt á þinglýstum kaupsamningum

Byggir á kaupsamningum sem deila heimilsfangi og stærð

Sótt frá Þjóðskrá

Stundum hafa eignir ekki verið seldar nógu oft / yfir höfuð siðan 2007. Þá getur þú notað Samanburðinn sem greinir verðsögu sambærilegra eigna úr þinglýstum kaupsamningum

AuglýsingasagaAuglýsingasaga

Endurskráningar sömu eignar á mismunandi verð- og tímabilum

Fjöldi skráningaÁsett verðFermetraverðTímabil.
1 skráningar
91.990.000 kr.866.196 kr./m²23.02.2021 - 16.04.2021
3 skráningar
91.900.000 kr.865.348 kr./m²26.02.2021 - 08.03.2021
9 skráningar
88.900.000 kr.837.100 kr./m²15.10.2020 - 19.01.2021
1 skráningar
83.900.000 kr.790.019 kr./m²11.06.2019 - 02.09.2020
2 skráningar
81.600.000 kr.768.362 kr./m²12.04.2019 - 01.05.2019
1 skráningar
Tilboð-18.03.2019 - 13.04.2019

Eignin hefur verið auglýst / endurskráð 17 sinnum síðan 2014.

Eigindi auglýsingarEigindi auglýsingar

Ítarlegri atriði sem á við um auglýsinguna

FasteignaskráFasteignaskrá

Eignir í sömu byggingu og upplýsingar þeirra

040101

Veitingahús á 1. hæð
356

Fasteignamat 2025

146.000.000 kr.

Fasteignamat 2024

145.900.000 kr.

Samskiptasaga byggingar

Atriði af fundum Byggingarfulltrúa Reykjavíkur er varðar eignina

Engin samskiptasaga fannst á þessari eign.


    Byggir aðeins á útgefnum fundum Byggingarfulltrúa Reykjavíkur á milli 1997 - 2024 ( júlí ).

    PóstlistiÁbendingarHafa samband