ÍBÚÐIR í NÝBYGGINGU SEM UPPFYLLA SKILYRÐI UM HLUTDEILDARLÁN
Lind fasteignasala kynnir til sölu 75,1 fermetra 3ja herbergja (þar af 5,1 fermetra geymsla) íbúð á 3. hæð, merkt 303, með stórum svölum til suðurs í nýrri og afar fallegri 3ja hæða nýbyggingu við Dalsbraut 6 í Reykjanesbæ. Nánari upplýsingar veitir:
Hrafnkell P. H. Pálmason lögg. fasteignasali
[email protected] eða í síma 6908236.
Heimir F. Hallgrímsson lögg. fasteignasali
[email protected] eða í síma 849-0672
Eignin skiptist í forstofu, barnaherbergi, hjónaherbergi, baðherbergi, eldhús, stofu og stórar svalir til suðurs.
Um er að ræða 18 íbúða, 3ja hæða nýbyggingu með lyftu, í Reykjanesbæ þar sem íbúðir á jarðhæð eru með rúmgóðan sérafnotaflöt til suðvesturs og íbúðir á 2. og 3. hæð eru með rúmgóðar svalir til suðvesturs. Íbúðirnar eru 3ja - 4ra herbergja, vel skipulagðar og eru 75,1 fermetrar - 103,5 fermetrar að stærð. Sér geymsla fylgir hverri íbúð á jarðhæð. Íbúðunum verður skilað fullfrágengnum utan sem innan, þ.á.m. öllum gólfefnum og eldhústækjum.
Verð íbúða er frá kr. 32.900.000,-. Staðsetning er afar góð við Stapaskóla í Reykjanesbæ. Áætlaður afhendingartími er febrúar 2022. Hönnuður er KRark ehf.
Íbúðirnar skiptast í forstofu, 1-2 barnaherbergi, hjónaherbergi, baðherbergi, eldhús, stofu og rúmgóðar svalir eða hellulagðar verandir á jarðhæð. BurðarkerfiSökklar og botnplata eru staðsteyptir. Útveggir, berandi innveggir, svalargólf og þakplötur eru forsteyptar einingar frá Steypustöðinni. Milliplötur eru filegranplötur frá Steypustöðinni og ásteypulag er c-30 járnbent steinsteypa frá Steypustöðinni. Stigar milli hæða eru úr forsteyptum einingum.
Frágangur utanhússÚtveggir eru eingangraðir og klæddir að utan með báruáli í flokki 2. Gluggar verða timbur- ál gluggar og glerjaðir með tvöföldu K-gleri. Svalagangar eru vindvarðir með samlímdu öryggisgleri. Svalahandrið eru úr stálprófílum.
Frágangur innanhússLéttir innveggir verða hlaðnir steinveggir. YTONG eða sambærilegt.
Innréttingar og skápar verða úr plastlögðu efni (melamin). Allar innréttingar eru frá HTH.
Innihurðir verða yfirfelldar (Ringo eða sambærilegt) hvítlakkaðar.
Heimilistæki, bökunarofn, helluborð og gufugleypir verða af vandaðri gerð frá AEG eða sambærilegt. Uppþvottavél og ísskápur verða frá Ormsson (AEG) eða sambærilegt.
Hreinlætistæki verða af vandaðri gerð. Á baði verður vegghengt salerni og handlaug með einnar handar blöndunartækjum. Blöndunartæki í sturtum verða utanáliggjandi.
Í eldhúsi verður stáleldhúsvaskur með einnar handar blöndunartækjum. Viðmiðunartegund er grohe eða sambærilegt.
Vegg- og gólfflísar. Íbúðir verða afhendar fullbúnar með gólfefnum. Gólf í baðherbergjum og í þvottahúsum, þar sem við á, verða flísalögð ásamt hluta af veggjum baðherbergis.
Lyfjaskápur, reykskynjari og slökkvitæki fylgja hverri íbúð.
Frágangur sameignar og geymslnaGeymslur á jarðhæð fylgja öllum íbúðum. Gólf á geymslusvæði verða máluð. Geymsluveggir verða ýmist úr léttum steinveggjum frá Steypustöðinni eða sambærilegt, eða Axelent stálgrindarefni.
Lyfta verður í húsinu af viðurkenndri gerð. Svalagangur verður lokað að hluta með glerlokun.
Stigahús er teppalagt og svalagangar eru vélslípaðir.
LagnakerfiÍ íbúðum verða hefðbundnir vatnsofnar. Gluggalaus rými verða loftræst með vélrænni loftræstingu. Mótor fyrir loftræstingu verður staðsettur á þaki hússins.
RaflagnirRofar, tenglar og dósir eru staðsett í samræmi við raflagnateikningar. Ljósakúplar verða í hverju baðherbergi, þvottahúsi, eldhúsi og geymslum.
Allar íbúðir afhendast með einu dyrasímatæki.
Lýsing svalaganga, stigaganga og á svölum verður í samræmi við teikningar.
Frágangur lóðarÁ lóðinni eru 32 bílastæði sem öll eru í óskiptri sameign allra íbúða á Dalsbraut 6. Bílastæði eru malbikuð, afmörkuð með kantsteini og steyptum stoðvegg, að utanverðu en merkt með málningu. Lóð er að öðru leyti tyrft. Sérnotarými íbúða(pallar) á jarðhæð eru hellulögð með 30x30 hellum.
Kaupandi greiðir skipulagsgjald þegar endanlegt brunabótamat er komið á eignina.
Lind fasteignasala ehf kynnir eignina Dalsbraut 6 - 303, 260 Reykjanesbær, nánar tiltekið eign merkt 03-03, fastanúmer 250-2330 ásamt öllu því sem eigninni fylgir, þar með talið tilheyrandi lóðar og sameignarréttindi.
Eignin Dalsbraut 6 - 303 er skráð sem hér segir hjá FMR: Eign 250-2330, birt stærð 75.1 fm.
Nánari upplýsingar veitir Hrafnkell P. H. Pálmason , í síma 690 8236, tölvupóstur
[email protected].
-----------------------------------------------------------------------Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila Fyrstu kaup - 0,4% af heildarfasteignamati2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 2.500 af hverju skjali.3. Lántökugjald lánastofnunar4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.
Stundum hafa eignir ekki verið seldar nógu oft / yfir höfuð siðan 2007. Þá getur þú notað Samanburðinn sem greinir verðsögu sambærilegra eigna úr þinglýstum kaupsamningum
Eignanúmer : 972340
Einnota auðkenni fyrir hverja eign.Verð : 34.900.000
Ásett verð eignarinnar í krónum.Brunabótamat : 0
Brunabótamat eignarinnar samkvæmt síðasta mati.Áhvílandi : 0
Heildarfjárhæð áhvílandi á eigninni.Fasteignamat : 1.745.000
Opinbert fasteignamat eignarinnar.Verð á fermetra : 464.714
Verð eignarinnar á hvern fermetra.Fermetrar : 75.1
Stærð eignarinnar mæld í fermetrum.Dagsetning skráningar : 18.01.2021
Dagsetningin þegar að auglýsingin var gefin út.Staða auglýsingar : 28.01.2021
Dagsetningin þegar að auglýsingin var fjarlægð.Skráningardagur : 18.01.2021
Dagsetningin þegar eignin var skráð opinberlega.Póstnúmer : 260
Póstnúmer þar sem eignin er staðsett.Heimilisfang : Dalsbraut 303
Fullt heimilisfang eignarinnar.Tegund eignar : fjolb
Tegund eignarinnar, t.d. íbúð, einbýlishús, fjölbýlishús.Byggingarár : 0
Ár þegar bygging eignarinnar var fullgerð.Herbergi : 3
Heildarfjöldi herbergja í eigninni.Svefnherbergi : 2
Fjöldi svefnherbergja í eigninni.Stofur : 1
Fjöldi stofa í eigninni.Salerni : 1
Fjöldi salerna í eigninni.Inngangur : Sérinngangur
Lýsing á aðalinngangi eignarinnar.Bílskúr : 1
Hvort eignin hafi bílskúr (satt/rangt).Heitur pottur : 1
Hvort eignin sé með heitum potti (satt/rangt).Verönd : 1
Hvort eignin hafi verönd (satt/rangt).Auka íbúð : 1
Hvort eignin innihaldi auka íbúð (satt/rangt).Sýnileg : 1
Hvort eignin sé sýnileg á vefsíðum eða öðrum miðlum (satt/rangt).Heiti heimilisfangs : Dalsbraut
Heiti eignar eða byggingar.Húsnúmer : 303
Húsnúmer eignarinnar.