18.12.2020 967707
Geirsgata 2
101 Reykjavík
31 myndir
93.900.000
799.149 kr. / m²
18.12.2020 - 46 dag á Fastanum - Fjarlægt þann 01.02.2021
2
Svefnherbergi
2
Baðherbergi
117.5m²
Fermetrar
Tegund
FjölbýliByggingarár
2018Fasteignamat
72.250.000Inngangur
SameiginlegurFastanúmer*
-Byggingarnúmer*
1160870Brunabótamat
-Verðmat Fastans
Reiknar verðmat...
Staðsetning
Tenglar
Lýsing
Lýsing á eigninni frá fasteignasölu
Opið hús: Geirsgata 2, 101 Reykjavík, Íbúð merkt: 04 02 04. Eignin verður sýnd sunnudaginn 31. janúar 2021 milli kl. 14:00 og kl. 15:00. Gengið er inn í íbúðina frá bílakjallara á Hafnartorgi.
Eignamiðlun kynnir:
Stórglæsileg íbúð í miðbænum í lyftuhúsi á besta stað. 117,7 fermetrar, mikil lofthæð, stórir og bjartir gluggar, rúmgott svefnherbergi, mögulegt að bæta við svefnherbergi til viðbótar, rúmgóð stofa með glæsilegu eldhúsi, tvö baðherbergi og þvottahús. Geymsla, 6,1 fermetrar, er í kjallara. Húsið er hluti af hinu svonefnda Hafnartorgi, nýjum og glæsilegum byggingum sem setja nýja svip á miðbæinn við höfnina. Óhætt er að fullyrða að staðsetning sem þessi verði tæpast fáanleg á næstu árum þar sem ólíklegt er að byggð verði íbúðarhús nærri þessu svæði í fyrirsjáanlegri framtíð.Allar nánari upplýsingar veitir Ólafur H. Guðgeirsson, MBA, lgfs., í síma 663-2508 eða [email protected].
Gengið er inn í stigaganginn frá göngugötu milli húsanna en einnig ná bæði stigi og lyftur niður í bílakjallarann undir húsunum. Stigagangur er rúmgóður og glæsilegur.
Íbúðin er stórglæsileg, en vandað efnisval, glæsileg hönnum, mikil lofthæð og stórir gluggar einkenna íbúðina sem og húsið allt. Komið er inn í rúmgóða forstofu með stórum fataskáp og þvottahúsi til vinstri úr forstofu. Opið í gang og opið rými sem má nýta sem sjónvarps- og vinnurými, eða skipta upp í tvö herbergi. Skápur við enda gangs, sem gengið er í annað af tveimur rúmgóðum baðherbergjum. Marmaraflísar eru á gólfi þvottahúss og gólfi og veggjum beggja baðherbergja. Innréttingar á böðum og eldhúsi eru glanshvítar en fataskápar eru hvítir. Gangur opnast til rúmgóðs og bjarts stofu/alrýmis þar sem er glæsileg eldhúsinnrétting á vegg og eldunareyja með helluborði, innfelldri viftu og innbyggðum vínkæli. Öll tæki fylgja eldhúsinu, þar með talið ísskápur og uppþvottavél. Stórir og bjartir gluggar setja mikinn svip á rýmið og ásamt mikilli lofthæð gerir þetta rýmið einstaklega vistlegt. Úr stofu er gengið út á skjólgóðar svalir með glerhandriði og viðarklæðningu á gólfi.
Til vinstri úr stofu er stuttur gangur þar sem gengið er í rúmgott hjónaherbergi með miklu skápaplássi. Glæsilegt baðherbergi er innaf svefnherbergi.
Hönnuðir: Arkitektar hússins eru PKdM arkitektar. Stofan sem var stofnuð af Pálmari Kristmundssyni arkitekt hefur unnið til fjölda verðlauna hér heima og erlendis fyrir framúrskarandi hönnun. Guðbjörg Magnúsdóttir, sem er meðal þekktustu innanhússhönnuða landsins, hannaði og sá um efnisval inn í allar íbúðir á 2-5 hæð húsanna.
- Eldhústæki eru af vönduðustu gerð frá Simens, dökkt stainless steel, með snjallstýringu.
- Hreinætistæki í eldhúsi og á baði eru frá Vola
- Rafkerfi: Útihurðir eru raflæstar og tengdar heildstæðu aðgangsstýrikerfi. E-Net ljósastýrikerfi frá GIRA er í öllum íbúðum sem bíður upp á notkun smáforrits (app) í snjalltækjum til að stýra ljósum.
- Hita og loftræstikerfi: Pípulagnakerfi hússins (innan íbúða) er leitt í gegnum lóðrétta lagnastokka. Ofnalagnir eru innsteyptar rör-í-rör og ofnar eru með vönduðum ofnlokum frá Danfoss.
- Á gólfum íbúðarinnar er dökkleitt „rustik“ parket. Allt efnisval og frágangur er sérlega vandað.
Frábærlega staðsett, einstaklega glæsileg eign þar sem vandað hefur verið til verka.
Kostnaður kaupanda af kaupum:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi er fyrir einstaklinga 0,8% af heildarfasteignamati eignar en 1,6% fyrir lögaðila. Sé um fyrstu kaup að ræða er stimpilgjald af kaupsamningi 0,4% af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, afsali, veðskuldabréfi, veðleyfi og mögulega fleiri skjölum. - kr. 2.500 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu samkvæmt kaupendasamningi.
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu seljanda samanber 26.gr. laga nr.40/2002 um fasteignakaup og 25.gr. laga nr.26/1994 um fjöleignarhús. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Eignamiðlun fasteignasala bendir fasteignakaupendum á ríka skoðunarskyldu kaupenda sem kveðið er á í lögum um fasteignakaup nr.40/2002. Kaupanda er bent á að nýta sér þjónustu fagmanna við skoðun fasteigna, en mælt er með því að kaupandendur fasteigna fái óháðan fagaðila til að framkvæma formlega ástandsskoðun á eignum sem gert er tilboð í.
Eignamiðlun fasteignasala | Grensásvegur 11 | 108 Reykjavík | Sími 588 9090 | www.Eignamiðlun.is
Ábyrg þjónusta í áratugi. Eignamiðlun var stofnuð 1957 og er elsta starfandi fasteignasala á Íslandi. Reynsla, heiðarleiki og þekking á fasteignamarkaðnum eru grunnur að farsælum viðskiptum.
Eignamiðlun Grensásvegi 11 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum
Heimasíða Eignamiðlunar
Eignamiðlun á Facebook
Fletta í fasteignalista
Ljósmyndir
Verðmat Fastans
Söguleg þróun á verðmati eignarinnar frá 2006
Þinglýstir kaupsamningar
Á eignum sem deila heimilisfangi og stærð
Pnr. | Heimilisfang | Kaupverð | Stærð | Fermetraverð | Tegund | Fastan. | Dags. | Noth. |
---|---|---|---|---|---|---|---|---|
90.000.000 kr. | 118.10 m² | 762.066 kr./m² | Fjölbýli | 2363598 | 10.08.2020 | ✅ | ||
78.000.000 kr. | 117.50 m² | 663.830 kr./m² | Fjölbýli | 2363607 | 27.10.2020 | ✅ | ||
95.000.000 kr. | 118.40 m² | 802.365 kr./m² | Fjölbýli | 2363616 | 26.05.2021 | ❌ | ||
98.900.000 kr. | 117.80 m² | 839.559 kr./m² | Fjölbýli | 2363606 | 19.05.2021 | ✅ | ||
95.000.000 kr. | 118.40 m² | 802.365 kr./m² | Fjölbýli | 2363616 | 14.07.2021 | ✅ | ||
95.000.000 kr. | 117.50 m² | 808.511 kr./m² | Fjölbýli | 2363607 | 30.09.2021 | ✅ |
Fastinn geymir kaupsamninga aftur til 2007
Sótt frá Þjóðskrá
Stundum hafa eignir ekki verið seldar nógu oft / yfir höfuð siðan 2007. Þá getur þú notað Samanburðinn sem greinir verðsögu sambærilegra eigna úr þinglýstum kaupsamningum
loading
Stundum hafa eignir ekki verið seldar nógu oft / yfir höfuð siðan 2007. Þá getur þú notað Samanburðinn sem greinir verðsögu sambærilegra eigna úr þinglýstum kaupsamningum
Auglýsingasaga
Endurskráningar sömu eignar á mismunandi verð- og tímabilum
Fjöldi skráninga | Ásett verð | Fermetraverð | Tímabil. |
---|---|---|---|
7 skráningar | 96.500.000 kr. | 821.277 kr./m² | 15.04.2021 - 18.07.2021 |
1 skráningar | 96.000.000 kr. | 817.021 kr./m² | 22.02.2021 - 16.04.2021 |
1 skráningar | 98.000.000 kr. | 834.043 kr./m² | 02.02.2021 - 02.03.2021 |
4 skráningar | 93.900.000 kr. | 799.149 kr./m² | 18.12.2020 - 27.01.2021 |
2 skráningar | 90.500.000 kr. | 770.213 kr./m² | 19.08.2020 - 22.08.2020 |
Eignin hefur verið auglýst / endurskráð 15 sinnum síðan 2014.
Eigindi auglýsingar
Ítarlegri atriði sem á við um auglýsinguna
Eignanúmer : 967707
Einnota auðkenni fyrir hverja eign.Verð : 93.900.000
Ásett verð eignarinnar í krónum.Brunabótamat : 0
Brunabótamat eignarinnar samkvæmt síðasta mati.Áhvílandi : 0
Heildarfjárhæð áhvílandi á eigninni.Fasteignamat : 72.250.000
Opinbert fasteignamat eignarinnar.Verð á fermetra : 799.149
Verð eignarinnar á hvern fermetra.Fermetrar : 117.5
Stærð eignarinnar mæld í fermetrum.Dagsetning skráningar : 18.12.2020
Dagsetningin þegar að auglýsingin var gefin út.Staða auglýsingar : 01.02.2021
Dagsetningin þegar að auglýsingin var fjarlægð.Skráningardagur : 18.12.2020
Dagsetningin þegar eignin var skráð opinberlega.Póstnúmer : 101
Póstnúmer þar sem eignin er staðsett.Heimilisfang : Geirsgata 2
Fullt heimilisfang eignarinnar.Tegund eignar : fjolb
Tegund eignarinnar, t.d. íbúð, einbýlishús, fjölbýlishús.Byggingarár : 2018
Ár þegar bygging eignarinnar var fullgerð.Herbergi : 3
Heildarfjöldi herbergja í eigninni.Svefnherbergi : 2
Fjöldi svefnherbergja í eigninni.Stofur : 1
Fjöldi stofa í eigninni.Salerni : 2
Fjöldi salerna í eigninni.Inngangur : Sameiginlegur
Lýsing á aðalinngangi eignarinnar.Bílskúr : 1
Hvort eignin hafi bílskúr (satt/rangt).Heitur pottur : 1
Hvort eignin sé með heitum potti (satt/rangt).Verönd : 1
Hvort eignin hafi verönd (satt/rangt).Auka íbúð : 1
Hvort eignin innihaldi auka íbúð (satt/rangt).Sýnileg : 1
Hvort eignin sé sýnileg á vefsíðum eða öðrum miðlum (satt/rangt).Heiti heimilisfangs : Geirsgata
Heiti eignar eða byggingar.Húsnúmer : 2
Húsnúmer eignarinnar.
Fasteignaskrá
Eignir í sömu byggingu og upplýsingar þeirra
040101
Veitingahús á 1. hæð
356 m²
Fasteignamat 2025
146.000.000 kr.
Fasteignamat 2024
145.900.000 kr.
Samskiptasaga byggingar
Atriði af fundum Byggingarfulltrúa Reykjavíkur er varðar eignina
Engin samskiptasaga fannst á þessari eign.
Byggir aðeins á útgefnum fundum Byggingarfulltrúa Reykjavíkur á milli 1997 - 2024 ( júlí ).