Söluauglýsing: 967089
Þverholt 29
270 Mosfellsbær
Verð
Stærð
Fermetraverð
Tegund
Fasteignamat
Fasteignasala
Netfang
Símanúmer
![hero](https://fasti-images.ams3.digitaloceanspaces.com/967/089/images/1.jpg)
Þessi auglýsing hefur verið fjarlægð, hún var inni í 13 daga.
- Dagsetning skráningar: 16.12.2020
Dagsetningin þegar að auglýsingin var gefin út. - Staða auglýsingar: Fjarlægt þann 29.12.2020
Dagsetningin þegar að auglýsingin var fjarlægð. - Birtingartími: 13 dagar
Hversu lengi auglýsingin hefur verið / var inni.
Staðsetning
Lýsing
Lýsing á eigninni frá fasteignasölu
Fasteignasala Mosfellsbæjar s. 586 8080 kynnir: Falleg 115,2 m2, 4ra herbergja íbúð á jarðhæð með sérafnotareiti á verönd, ásamt bílastæði í bílageymslu, í nýlegu lyftuhúsi við Þverholt 29 í Mosfellsbæ. Fallegt útsýni. Eignin er laus til afhendingar fljótlega. Íbúðin skiptist í eldhús, stofu, borðstofu, 3 svefnherbergi, baðherbergi/þvottaherbergi auk sér geymslu í kjallara. Rúllugardínur eru í gluggum. Innbyggð lýsing og kubbaljós. Ísskápur og uppþvottavél í eldhúsinnréttingu. Íbúðin er með HTH innréttingum, eldhústækjum frá AEG, eikar harðparketi á gólfum frá Birgissyni ehf. en baðherbergisgólf eru flísalögð, hreinlætis- og blöndunartæki eru frá Tengi ehf. Dyrasími með myndavél. Lýsing er hönnuð og teiknuð af Lumex.
Smelltu hér til að fá söluyfirlit sent
Frábær staðsetning við miðbæ Mosfellsbæjar þar sem stutt er í alla helstu þjónustu.
Íbúðin er merkt 01-01-04, birt stærð er 115,7 m2, þar af er íbúð 105,1 m2 og geymsla 10,1 m2. Eigninni fylgir bílastæði merkt B09 í bílakjallara.
Nánari lýsing:
Forstofa er með fataskáp og harðparketi á gólfi.
Stofa, borðstofa og eldhús eru í stóru og björtu opnu rými með harðparketi á gólfi. Úr stofu er gengið út á verönd í suðurátt.
Eldhús er með fallegri innrétting með ísskáp, uppþvottavél, span helluborði, viftu og blástursofni með kjöthitamæli. Skúffur eru í neðri hluta innréttingar með ljúflokun og skápar í efri hluta innréttingar.
Baðherbergi/þvottaherbergi er með flísalögðu gólfi, fallegri baðinnréttingu, innréttingu fyrir þvottavél og þurkara sem eru lyft upp frá gólfi og skúffur undir þvott, vegghengdu salerni, sturtu og handklæðaofni. Sturtan er flísalögð og með sturtuskilrúmi úr hertu gleri á eina hlið frá Glerborg.
Svefnherbergi eru með fataskápum og harðparketi á gólfi.
Íbúðinni fylgir hlutdeild í sameiginlegri vagna- og hjólageymslu. Bílastæði við húsið eru malbikuð og gönguleið að húsi er hellulögð.
Verð kr. 56.900.000 kr
Mjög fallegt og vel skipulagt lyftuhús á 3-4 hæðum auk bílakjallara á glæsilegum útsýnisstað við Þverholt 27-31 í Mosfellsbæ. Í húsinu eru þrír stigagangar með lyftu og sameiginlegum bílakjallara. Öll stæði í bílakjallara eru tilbúinn fyrir rafhleðslustöðvar frá N1, einnig er álagsstýring á kerfinu. Húsið er einangrað og klætt að utan með fyrsta flokks álklæðningu frá Áltak sem er viðhaldslítil. Lóð er með gróðri og leiktækjum og er snjóbræðsla í öllum helstu gönguleiðum. Skv. samþykktum bygginganefndateikningum, þann 02.06.2019, þá er búið að fá samþykki fyrir svalalokunum á öllum íbúðum í húsinu. Íbúðin eru afhent án svalalokana og eru kaupendur hvattir til að kynna sér vel skilmála svala og verandalokana, áður en þeir taka ákvörðun um að fara í þá framkvæmd. Sorpgámar eru djúpgámar sem eru staðsettir miðsvæðis á lóðinni. Húsið er hannað af Teiknistofu Ingimundar Sveinssonar. Byggingaraðili er Byggingafélagið Bakki ehf. sem er fjársterkt fjölskyldufyrirtæki úr Mosfellsbæ með yfir 40 ára reynslu af húsbyggingum.
Allar nánari upplýsingar fást hjá Fasteignasölu Mosfellsbæjar í síma 586 8080.
Einnig er hægt að ná í Svanþór í síma 698-8555, [email protected] og Sigurð í síma 899-1987, [email protected].
Fasteignasala Mosfellsbæjar, Þverholti 2, Mosfellbæ. Opið frá kl. 9-17 alla virka daga
Heimasíða Fasteignasölu Mosfelsbæjar
Fasteignasala Mosfellsbæjar á Facebook
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasala Mosfellsbæjar bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.500,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af væntanlegu brunabótamati, þegar það er lagt á.
Fletta í fasteignalista
Ljósmyndir
![](https://fasti-images.ams3.digitaloceanspaces.com/967/089/images/1.jpg)
![](https://fasti-images.ams3.digitaloceanspaces.com/967/089/images/2.jpg)
![](https://fasti-images.ams3.digitaloceanspaces.com/967/089/images/3.jpg)
![](https://fasti-images.ams3.digitaloceanspaces.com/967/089/images/4.jpg)
![](https://fasti-images.ams3.digitaloceanspaces.com/967/089/images/5.jpg)
![](https://fasti-images.ams3.digitaloceanspaces.com/967/089/images/6.jpg)
![](https://fasti-images.ams3.digitaloceanspaces.com/967/089/images/7.jpg)
![](https://fasti-images.ams3.digitaloceanspaces.com/967/089/images/8.jpg)
![](https://fasti-images.ams3.digitaloceanspaces.com/967/089/images/9.jpg)
![](https://fasti-images.ams3.digitaloceanspaces.com/967/089/images/10.jpg)
![](https://fasti-images.ams3.digitaloceanspaces.com/967/089/images/11.jpg)
![](https://fasti-images.ams3.digitaloceanspaces.com/967/089/images/12.jpg)
![](https://fasti-images.ams3.digitaloceanspaces.com/967/089/images/13.jpg)
![](https://fasti-images.ams3.digitaloceanspaces.com/967/089/images/14.jpg)
![](https://fasti-images.ams3.digitaloceanspaces.com/967/089/images/15.jpg)
![](https://fasti-images.ams3.digitaloceanspaces.com/967/089/images/16.jpg)
Þinglýstir kaupsamningar
Á eignum sem deila heimilisfangi og stærð
Pnr. | Heimilisfang | Kaupverð | Stærð | Fermetraverð | Tegund | Fastan. | Dags. | Noth. |
---|---|---|---|---|---|---|---|---|
55.800.000 kr. | 115.20 m² | 484.375 kr./m² | Fjölbýli | 2501333 | 23.02.2021 | ✅ |
Fastinn geymir kaupsamninga aftur til 2007
Sótt frá Þjóðskrá
Verðsaga
Byggt á þinglýstum kaupsamningum
Byggir á kaupsamningum sem deila heimilsfangi og stærð
Sótt frá Þjóðskrá
Stundum hafa eignir ekki verið seldar nógu oft / yfir höfuð siðan 2007. Þá getur þú notað Samanburðinn sem greinir verðsögu sambærilegra eigna úr þinglýstum kaupsamningum
Auglýsingasaga
Endurskráningar sömu eignar á mismunandi verð- og tímabilum
Fjöldi skráninga | Ásett verð | Fermetraverð | Tímabil. |
---|---|---|---|
3 skráningar | 56.900.000 kr. | 493.924 kr./m² | 26.11.2020 - 17.12.2020 |
Eignin hefur verið auglýst / endurskráð 3 sinnum síðan 2014.
Eigindi auglýsingar
Ítarlegri atriði sem á við um auglýsinguna
- Eignanúmer: 967089
Einnota auðkenni fyrir hverja eign. - Verð: 56.900.000
Ásett verð eignarinnar í krónum. - Brunabótamat: 0
Brunabótamat eignarinnar samkvæmt síðasta mati. - Áhvílandi: 0
Heildarfjárhæð áhvílandi á eigninni. - Fasteignamat: 46.150.000
Opinbert fasteignamat eignarinnar. - Verð á fermetra: 493.924
Verð eignarinnar á hvern fermetra. - Fermetrar: 115.2
Stærð eignarinnar mæld í fermetrum. - Dagsetning skráningar: 16.12.2020
Dagsetningin þegar að auglýsingin var gefin út. - Staða auglýsingar: 29.12.2020
Dagsetningin þegar að auglýsingin var fjarlægð. - Skráningardagur: 16.12.2020
Dagsetningin þegar eignin var skráð opinberlega. - Póstnúmer: 270
Póstnúmer þar sem eignin er staðsett. - Heimilisfang: Þverholt 29
Fullt heimilisfang eignarinnar. - Tegund eignar: fjolb
Tegund eignarinnar, t.d. íbúð, einbýlishús, fjölbýlishús. - Byggingarár: 2019
Ár þegar bygging eignarinnar var fullgerð. - Herbergi: 4
Heildarfjöldi herbergja í eigninni. - Svefnherbergi: 3
Fjöldi svefnherbergja í eigninni. - Stofur: 1
Fjöldi stofa í eigninni. - Salerni: 1
Fjöldi salerna í eigninni. - Inngangur: Sameiginlegur
Lýsing á aðalinngangi eignarinnar. - Bílskúr: 1
Hvort eignin hafi bílskúr (satt/rangt). - Heitur pottur: 1
Hvort eignin sé með heitum potti (satt/rangt). - Verönd: 1
Hvort eignin hafi verönd (satt/rangt). - Auka íbúð: 1
Hvort eignin innihaldi auka íbúð (satt/rangt). - Sýnileg: 1
Hvort eignin sé sýnileg á vefsíðum eða öðrum miðlum (satt/rangt). - Heiti heimilisfangs: Þverholt
Heiti eignar eða byggingar. - Húsnúmer: 29
Húsnúmer eignarinnar.