08.12.2020 965695
Elliðabraut 20
110 Reykjavík
9 myndir
68.900.000
574.167 kr. / m²
08.12.2020 - 37 dag á Fastanum - Fjarlægt þann 13.01.2021
4
Svefnherbergi
1
Baðherbergi
120m²
Fermetrar
Tegund
FjölbýliByggingarár
2020Fasteignamat
4.210.000Inngangur
SameiginlegurFastanúmer*
2507890Byggingarnúmer*
1202479Brunabótamat
-Verðmat Fastans
Reiknar verðmat...
Staðsetning
Tenglar
Lýsing
Lýsing á eigninni frá fasteignasölu
****Bókið skoðun: Gunnar í síma: 839-1600**** [email protected] *********
Elliðabraut 20 er hluti af 6 sjálfstæðum húsum við Elliðabraut 12-22 með opnum svæðum á milli húsanna. Húsin tengjast saman með bílageymslu. Húsin er hönnuð m.t.t. algildrar hönnunar. Lagt var upp með bjartar og opnar íbúðir. Svæði milli íbúða er hugsað sem útivistarsvæði með skjólgóðum görðum. Djúpgámum er komið fyrir í jaðri lóðar þar sem möguleiki verður á flokkun á sorpi á staðnum. Hönnun lóðar tryggir hljóðlátt og afmarkað útivistarsvæði.
Norðlingaholtið er friðsælt hverfi, staðsett í góðri tengingu við kyrrð og náttúru. Hverfið er eitt vinsælasta skólahverfi höfuðborgarsvæðisins. Þá er hverfið er í jaðri stærstu útivistarperlna Reykjavík með góðum tengingum til þeirra flestra, hvort heldur sem að þú vilt njóta þeirra gangandi, hjólandi eða á hestbaki.
Í íbúðunum er frístandandi loftræsting fyrir hverja og eina íbúð sem stuðlar að heilbrigði húss og íbúa, auk orkusparnaðar. Allt að 80% endurnýting varma. Nánari upplýsingar um kerfið má finna hér. Íbúðirnar verða afhentar án gólfefna, nema á votrýmum verða flísalögð. Eldhús- og baðinnréttingar eru sérsmíðuð af vandaðri gerð frá Axis.
Frágangur íbúða: Húsið er staðsteypt. Útveggir einangraðir og klæddir að utan með álklæðningu. Kaldir garðveggir eru filteraðir. Léttir milliveggir eru gifsplötuveggir á grind. Veggir og loft verða spörtluð, grunnuð og máluð með tveimur yfirferðum af plastmálningu með gljástigi 10. Gólf íbúða verða flotuð og tilbúin fyrir endanlegt gólfefni, nema á baðherbergi og í þvottahúsi en þar verða flísar á gólfum. Einnig verða flísar á hluta veggja á baðherbergjum. Fataskápar í herbergjum og forstofu eru af vandaðri gerð frá Axis. Plastlagðar borðplötur eru í eldhúsi og á baði, en borðplötur í þvottahúsi.
Eldhús: Eldhúsinnrétting er sérsmíðuð af vandaðri gerð frá Axis ásamt vaski og blöndunartækjum frá Byko. Helluborð, blástursofn og gufugleypir eru af gerðinni AEG frá Ormsson ehf (sjá nánar hjá Ormsson ehf)
Baðherbergi: Baðinnrétting kemur frá Axis. Hreinlætistæki og handklæðaofn eru frá Byko. Salernið er upphengt og innbyggt. Hitastýrð blöndunartæki verða við sturtu. Gólf eru flísalögð og veggir að hluta upp í loft.
Ofnakerfi: Sameiginlegt ofnakerfi er í öllu húsinu frá Byko og verður því skilað fullbúnu samkvæmt teikningu.
Rafmagn: Rafmagn verður fullfrágengið samkvæmt teikningu. Litur tengla og rofa verður hvítur og verða þeir af viðurkenndri gerð Berker frá Rönning . Reykskynjari verður í hverri íbúð.
Loftræsting: Sérstakt loftræstikerfi er fyrir hverja íbúð. Kerfið hefur loftskipti í íbúðinni með því að taka loft að utan og dæla því inn í vistarverurnar, herbergi og stofu, og soga lofti út úr baði, þvottahúsi og eldhúsi. Kerfið er með endurvarmvinnslu og nýtir við bestu aðstæður 80% af varmanum. Kerfið með filterum og er allt loft sem kemur inn filterað. Ekki á að vera þörf á að opna glugga í íbúðinni til loftunar.
Einkageymslur: Steypt loft, veggir og gólf eru slípuð og máluð. Léttir veggir málaðir. Hillur fylgja ekki.
Frágangur sameignar: Anddyri/stigahús er lokað og er það flísalagt að hluta með uppsettum póstkössum. Stigar og stigapallar eru teppalagðir og með handriðum. Allar útidyrahurðir frágengnar.
Sameign er upphituð með ofnakerfi. Raflagnir í sameign eru fullbúnar með ljósakúplum, sbr. teikningar. Loftræstilagnir eru lagðar skv. teikningu. Lyfta er skv. teikningum og reglugerð.
Frágangur utanhúss: Útveggir eru staðsteyptir og verða þeir einangraðir og klæddir að mestum hluta fyrir utan kalda garðveggi veggi sem verða filtmúraðir. Þak er einangrað með þurri einangrun með samsoðnum dúk og fargi. Svalir íbúða skilast með handriði og steypuáferð á gólfum. Íbúðir á jarðhæð skilast með sólpalli.
Gluggar og útihurðir eru úr álklæddu timbri frá BYKO og eru skv. teikningum arkitekts. Allt gler í húsinu er tvöfalt K-gler og opnanleg fög eru topphengd. Nánar má sjá í byggingarlýsingu.
Lóðin er tilbúin samkvæmt leiðbeinandi teikningum landslagsarkitekts.
Byggingaraðili og aðalverktaki er MótX (www.motx.is)
Nánari lýsing viðkomandi íbúðar:
5 herbergja íbúð á fyrstu hæð (merkt 0104) við Elliðabraut 20 í Norðlingaholtinu. Eignin er skráð samkvæmt Þjóðskráð Íslands 120,0 fm. Geymsla í kjallara og bílastæði í bílageymslu.
Frekari upplýsingar veita:
Gunnar Bergmann Jónsson, viðskiptalögfræðingur og nemi til löggildingar, í síma 839-1600 ([email protected]).
Fletta í fasteignalista
Ljósmyndir
Verðmat Fastans
Söguleg þróun á verðmati eignarinnar frá 2006
Þinglýstir kaupsamningar
Á eignum sem deila heimilisfangi og stærð
Pnr. | Heimilisfang | Kaupverð | Stærð | Fermetraverð | Tegund | Fastan. | Dags. | Noth. |
---|---|---|---|---|---|---|---|---|
68.900.000 kr. | 120.00 m² | 574.167 kr./m² | Fjölbýli | 2507890 | 29.03.2021 | ✅ |
Fastinn geymir kaupsamninga aftur til 2007
Sótt frá Þjóðskrá
Stundum hafa eignir ekki verið seldar nógu oft / yfir höfuð siðan 2007. Þá getur þú notað Samanburðinn sem greinir verðsögu sambærilegra eigna úr þinglýstum kaupsamningum
loading
Stundum hafa eignir ekki verið seldar nógu oft / yfir höfuð siðan 2007. Þá getur þú notað Samanburðinn sem greinir verðsögu sambærilegra eigna úr þinglýstum kaupsamningum
Eigindi auglýsingar
Ítarlegri atriði sem á við um auglýsinguna
Eignanúmer : 965695
Einnota auðkenni fyrir hverja eign.Verð : 68.900.000
Ásett verð eignarinnar í krónum.Brunabótamat : 0
Brunabótamat eignarinnar samkvæmt síðasta mati.Áhvílandi : 0
Heildarfjárhæð áhvílandi á eigninni.Fasteignamat : 4.210.000
Opinbert fasteignamat eignarinnar.Verð á fermetra : 574.167
Verð eignarinnar á hvern fermetra.Fermetrar : 120
Stærð eignarinnar mæld í fermetrum.Dagsetning skráningar : 08.12.2020
Dagsetningin þegar að auglýsingin var gefin út.Staða auglýsingar : 13.01.2021
Dagsetningin þegar að auglýsingin var fjarlægð.Skráningardagur : 08.12.2020
Dagsetningin þegar eignin var skráð opinberlega.Póstnúmer : 110
Póstnúmer þar sem eignin er staðsett.Heimilisfang : Elliðabraut 20
Fullt heimilisfang eignarinnar.Tegund eignar : fjolb
Tegund eignarinnar, t.d. íbúð, einbýlishús, fjölbýlishús.Byggingarár : 2020
Ár þegar bygging eignarinnar var fullgerð.Herbergi : 5
Heildarfjöldi herbergja í eigninni.Svefnherbergi : 4
Fjöldi svefnherbergja í eigninni.Stofur : 1
Fjöldi stofa í eigninni.Salerni : 1
Fjöldi salerna í eigninni.Inngangur : Sameiginlegur
Lýsing á aðalinngangi eignarinnar.Bílskúr : 1
Hvort eignin hafi bílskúr (satt/rangt).Heitur pottur : 1
Hvort eignin sé með heitum potti (satt/rangt).Verönd : 1
Hvort eignin hafi verönd (satt/rangt).Auka íbúð : 1
Hvort eignin innihaldi auka íbúð (satt/rangt).Sýnileg : 1
Hvort eignin sé sýnileg á vefsíðum eða öðrum miðlum (satt/rangt).Heiti heimilisfangs : Elliðabraut
Heiti eignar eða byggingar.Húsnúmer : 20
Húsnúmer eignarinnar.
Fasteignaskrá
Eignir í sömu byggingu og upplýsingar þeirra
050404
Íbúð á 4. hæð
157 m²
Fasteignamat 2025
108.950.000 kr.
Fasteignamat 2024
108.100.000 kr.
Samskiptasaga byggingar
Atriði af fundum Byggingarfulltrúa Reykjavíkur er varðar eignina
Engin samskiptasaga fannst á þessari eign.
Byggir aðeins á útgefnum fundum Byggingarfulltrúa Reykjavíkur á milli 1997 - 2024 ( júlí ).