Söluauglýsing: 964698
Laugarnesvegur 57
105 Reykjavík
Verð
Stærð
Fermetraverð
Tegund
Þessi auglýsing hefur verið fjarlægð, hún var inni í 15 daga.
- Dagsetning skráningar: 03.12.2020
Dagsetningin þegar að auglýsingin var gefin út. - Staða auglýsingar: Fjarlægt þann 18.12.2020
Dagsetningin þegar að auglýsingin var fjarlægð. - Birtingartími: 15 dagar
Hversu lengi auglýsingin hefur verið / var inni.
Staðsetning
Lýsing
Lýsing á eigninni frá fasteignasölu
FALLEGT EINBÝLISHÚS Á ÞREMUR HÆÐUM MEÐ AUKAÍBÚÐ Í KJALLARA OG FRÍSTANDANDI BÍLSKÚR Á LÓÐ.
Smelltu hér til að opna söluyfirlit fyrir eignina
Húsið er timburhús með steyptum kjallara, byggt 1944 með síðari tíma viðbótum, en stórir hlutar þess voru byggðir um 1959.
Eignin er öll á einu fastanúmeri, skráð 205,6 fm. hjá FMR, þar af er 26 fm. bílskúr.
Miðhæð:
Komið er í flísalagt anddyri með fatahengi. Innaf flísalögðu alrými er gengið inní tvöfalda parketlagða stofu með fallegum horngluggum. Góð borðstofa þar í framhaldi. Rúmgott eldhús stendur sér. Efri og neðri skápar í vel meðfarinni eldri innréttingu, borðkrókur, gufugleypir, bakarofn og fimm hellna gaseldavél. Flísar á gólfi og gott skápapláss. Gestasalerni á hæð.
Fallegur viðarstigi milli hæða.
Efri hæð: Úr holi er útgengt á nýlegar yfirbyggðar svalir til norðvesturs. Fjögur parketlögð svefnherbergi með innbyggðum skápum. Úr hjónaherbergi er útgengi á suðursvalir. Stórt dúkalagt þvottahús með sturtuklefa og góðri vinnuaðstöðu. Flísalagt baðherbergi með baðkari.
Kjallari: Sérinngangur er í kjallaraíbúð. Tvær geymslur innaf anddyri. Stórt þvottahús. Flísalagt baðherbergi með sturtu. Eldhús með korkparketi og fallegri upprunanlegri innréttingu. Gott skápapláss á gangi. Parketlögð stofa og tvö svefnherbergi. Innangengt er úr kjallara í aðalhæð hússins. Sér rafmagns- og hitaveitumælar eru fyrir kjallaraíbúðina.
Á lóð er frístandandi bílskúr með bílsskúrshurðaopnara. Hleðslustöð fyrir rafmagnsbíl á norðurgafli hússins getur fylgt með. Rafmagn, heitt og kalt vatn er í skúr.
Falleg lóð með matjurtagarði og nýlegri hellulögn þar sem gert er ráð fyrir heitum potti vestan við húsið. Snjóbræðslukerfi. Jarðvegsskipti fóru fram á allri lóðinni fyrir nokkum árum, m.a. með nýrri drenlögn. Við það tækifæri voru vatnslagnir að húsinu endurnýjaðar og ljósleiðari lagður inn í hús. Fánastöng til suðurs setur fallegan svip á lóðina ásamt vegghleðslu við lóðamörk framan húss þar sem notuð er hin forna aðferð grjót og strengur.
Öll eignin hefur nýlega verið máluð að utan sem og hafa gluggar verið málaðir að innan.
Virkilega falleg eign miðsvæðis í Reykjavík.
ATH. EIGNIN VERÐUR EKKI SÝND Í OPNU HÚSI, EINGÖNGU MEÐ EINKASÝNINGU.
Allar nánari upplýsingar veitir:
Rúnar Þór Árnason, S: 7755 805 email: [email protected]
----------------------------------------------------------
Heimasíða Helgafells fasteignasölu
Facebook síða Helgafells
- Hafðu samband og við verðmetum eign þína þér að kostnaðarlausu, þó kannski fyrir einn kaffibolla -
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupa á fasteign:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% af fasteignamati fyrir einstaklinga (0,4% fyrir fyrstu kaupendur) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - 2.500 kr. af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt í kringum 50þ., oft lægra eða ekkert lántökugjald fyrir fyrstu kaup. Nánari upplýsingar t.d. á heimasíðum lánastofnana.
4. Þjónustusamningur milli kaupanda og fasteignasölu - Kr. 68.820,- m/vsk.
Fletta í fasteignalista
Ljósmyndir
Þinglýstir kaupsamningar
Á eignum sem deila heimilisfangi og stærð
loading
loading
Stundum hafa eignir ekki verið seldar nógu oft / yfir höfuð siðan 2007. Þá getur þú notað Samanburðinn sem greinir verðsögu sambærilegra eigna úr þinglýstum kaupsamningum
Eigindi auglýsingar
Ítarlegri atriði sem á við um auglýsinguna
- Eignanúmer: 964698
Einnota auðkenni fyrir hverja eign. - Verð: 119.000.000
Ásett verð eignarinnar í krónum. - Brunabótamat: 0
Brunabótamat eignarinnar samkvæmt síðasta mati. - Áhvílandi: 0
Heildarfjárhæð áhvílandi á eigninni. - Fasteignamat: 80.150.000
Opinbert fasteignamat eignarinnar. - Verð á fermetra: 578.794
Verð eignarinnar á hvern fermetra. - Fermetrar: 205.6
Stærð eignarinnar mæld í fermetrum. - Dagsetning skráningar: 03.12.2020
Dagsetningin þegar að auglýsingin var gefin út. - Staða auglýsingar: 18.12.2020
Dagsetningin þegar að auglýsingin var fjarlægð. - Skráningardagur: 03.12.2020
Dagsetningin þegar eignin var skráð opinberlega. - Póstnúmer: 105
Póstnúmer þar sem eignin er staðsett. - Heimilisfang: Laugarnesvegur 57
Fullt heimilisfang eignarinnar. - Tegund eignar: einb
Tegund eignarinnar, t.d. íbúð, einbýlishús, fjölbýlishús. - Byggingarár: 1944
Ár þegar bygging eignarinnar var fullgerð. - Herbergi: 9
Heildarfjöldi herbergja í eigninni. - Svefnherbergi: 6
Fjöldi svefnherbergja í eigninni. - Stofur: 3
Fjöldi stofa í eigninni. - Salerni: 3
Fjöldi salerna í eigninni. - Inngangur: Sérinngangur
Lýsing á aðalinngangi eignarinnar. - Bílskúr: 1
Hvort eignin hafi bílskúr (satt/rangt). - Heitur pottur: 1
Hvort eignin sé með heitum potti (satt/rangt). - Verönd: 1
Hvort eignin hafi verönd (satt/rangt). - Auka íbúð: 1
Hvort eignin innihaldi auka íbúð (satt/rangt). - Sýnileg: 1
Hvort eignin sé sýnileg á vefsíðum eða öðrum miðlum (satt/rangt). - Heiti heimilisfangs: Laugarnesvegur
Heiti eignar eða byggingar. - Húsnúmer: 57
Húsnúmer eignarinnar.