18.11.2020 961132
Skyggnisbraut 30
113 Reykjavík
35 myndir
79.900.000
428.878 kr. / m²
18.11.2020 - 21 dag á Fastanum - Fjarlægt þann 08.12.2020
4
Svefnherbergi
2
Baðherbergi
186.3m²
Fermetrar
Tegund
FjölbýliByggingarár
2016Fasteignamat
73.000.000Inngangur
SameiginlegurFastanúmer*
2352680Byggingarnúmer*
1127240Brunabótamat
-Verðmat Fastans
Reiknar verðmat...
Staðsetning
Tenglar
Lýsing
Lýsing á eigninni frá fasteignasölu
Fasteignaland kynnir:
EIGNIN SELDIST Á AÐEINS FJÓRUM DÖGUM. VANTAR FLEIRI SAMBÆRILEGAR EIGNIR Á SKRÁ, MIKIL OG GÓÐ SALA. [email protected]Skyggnisbraut 30, 113 Reykjavík (NÁTTÚRA - ÚTSÝNI - ÚTIVIST)
Um er að ræða einstaklega fallega eign með fjórum svefnherbergjum, á sjöttu hæð (efstu), rétt við rætur Úlfarsfells. Eignin er eina íbúðin á efstu hæðinni og er lyfta upp ásamt góðum stigapalli fyrir framan íbúðina. Útsýni er óhindrað og 41,5 fm svalir í suðurátt. Náttúra og aðgengi til að stunda fjölbreytta útivist er aðeins nokkrum skrefum frá húsinu. Birt stærð séreignar er 186,3 fm skv. Þjóðskrá Íslands. Tvö stæði fylgja í bílageymslu, merkt B25 og B26.
Komið er inn í rúmgóðan stigagang og lyfta (eða stigi) tekin upp á sjöttu hæð. Mjög plássgott er á efstu hæð fyrir framan lyftu á rúmgóðum palli sem skipt er upp í sameign og ytra andyri áður en gengið er inn í íbúðina. Komið er inn í rúmgott andyri með góðum fataskáp. Úr andyrinu skiptist íbúðin í þrjá meginsvæði, snyrtingar/geymsla, svefnsvæði og svo samverusvæði, stofa/borðstofa/eldhús. Fjórða svefnherbergið er inni af stofunni í vesturenda eignarinnar.
Hjónaherbergið er mjög rúmgott (19,5 fm) og með góðu skápaplássi. Hin tvö svefnherbergin (9,2 fm og 10,5 fm) í austurendanum eru bæði með góðum fataskáp. Fjórða svefnherbergið í vesturenda er rúmgott (12,4 fm) með góðum fataskáp.
Baðherbergið er flísalagt í hólf og gólf, rúmgóð sturta og innréttuð þvottaaðstaða með skápum og aðstöðu fyrir bæði þvottavél og þurrkara í vinnuhæð. Einnig er gestasnyrting á gangi við eldhús/stofu sem flísalagt er líka í hólf og gólf.
Eldhúsið er með innréttingu á einum löngum vegg, góðu geymsluplássi og eyju með helluborði ásamt gufugleypi með ljósi. Á eyjunni er setuaðstaða fyrir fjóra. Í eldhúsinu er bakaraofn í vinnuhæð og skúffur í allri neðri innréttingunni og eyjunni. Rúmgott er einnig fyrir eldhúsborð á eldhússvæði. Þar til hliðar er borðstofan og innst á opna svæðinu er góð stofa með gluggum á tvo vegu (suður/vestur).
Samverusvæðið er einstaklega bjart með mörgum gluggum á suðurhlið við svalirnar, svæðið er u.þ.b. 18 metra langt og eru tvær hurðir úr því út á svalir. Svalirnar eru 41,5 fm að stærð, ná með allri sunnanverðri hlið hússins, með timburgólfi og gefa mjög fallegt útsýni á björtum dögum. Tvö stæði fylgja svo í bílageymslu, merkt B25 og B26. Parket er á öllum gólfum utan votrýma þar sem flísalagt er.
Einstaklega vönduð eign með fallegum innréttingum í nýlgegu fjölskylduvænu hverfi við Úlfársdal og stutt í alla þjónustu. Tvö stæði í bílageymslu fylgja eigninni.
Matvöruverslanir eru bæði við Gullhamra og Korputorg, apótek, bakarí, byggingarvöruverslanir, húsgagnabúðir og margt fleira, allt í 5 min keyrsluradíus. Lögregla og sjúkralið eru með útkallstöð í hverfi 113. Nýr grunnskóli og leikskóli (http://www.dalskoli.is) er í hverfinu en einnig eru tveir grunnskólar og þrír leikskólar í sama póstnúmeri, 113. Knattspyrnufélagið Fram er með aðstöðu í hverfinu og bjóða þeir upp á æfingar fyrir allar helstu íþróttagreinar barna og unglinga.
Vegna covid þá er eignin eingöngu sýnd með einkaskoðun. Vinsamlega hafið samband við Hrannar í síma 899 0720 eða [email protected]
Fletta í fasteignalista
Ljósmyndir
Verðmat Fastans
Söguleg þróun á verðmati eignarinnar frá 2006
Þinglýstir kaupsamningar
Á eignum sem deila heimilisfangi og stærð
loading
loading
Stundum hafa eignir ekki verið seldar nógu oft / yfir höfuð siðan 2007. Þá getur þú notað Samanburðinn sem greinir verðsögu sambærilegra eigna úr þinglýstum kaupsamningum
Eigindi auglýsingar
Ítarlegri atriði sem á við um auglýsinguna
Eignanúmer : 961132
Einnota auðkenni fyrir hverja eign.Verð : 79.900.000
Ásett verð eignarinnar í krónum.Brunabótamat : 0
Brunabótamat eignarinnar samkvæmt síðasta mati.Áhvílandi : 0
Heildarfjárhæð áhvílandi á eigninni.Fasteignamat : 73.000.000
Opinbert fasteignamat eignarinnar.Verð á fermetra : 428.878
Verð eignarinnar á hvern fermetra.Fermetrar : 186.3
Stærð eignarinnar mæld í fermetrum.Dagsetning skráningar : 18.11.2020
Dagsetningin þegar að auglýsingin var gefin út.Staða auglýsingar : 08.12.2020
Dagsetningin þegar að auglýsingin var fjarlægð.Skráningardagur : 18.11.2020
Dagsetningin þegar eignin var skráð opinberlega.Póstnúmer : 113
Póstnúmer þar sem eignin er staðsett.Heimilisfang : Skyggnisbraut 30
Fullt heimilisfang eignarinnar.Tegund eignar : fjolb
Tegund eignarinnar, t.d. íbúð, einbýlishús, fjölbýlishús.Byggingarár : 2016
Ár þegar bygging eignarinnar var fullgerð.Herbergi : 5
Heildarfjöldi herbergja í eigninni.Svefnherbergi : 4
Fjöldi svefnherbergja í eigninni.Stofur : 1
Fjöldi stofa í eigninni.Salerni : 2
Fjöldi salerna í eigninni.Inngangur : Sameiginlegur
Lýsing á aðalinngangi eignarinnar.Bílskúr : 1
Hvort eignin hafi bílskúr (satt/rangt).Heitur pottur : 1
Hvort eignin sé með heitum potti (satt/rangt).Verönd : 1
Hvort eignin hafi verönd (satt/rangt).Auka íbúð : 1
Hvort eignin innihaldi auka íbúð (satt/rangt).Sýnileg : 1
Hvort eignin sé sýnileg á vefsíðum eða öðrum miðlum (satt/rangt).Heiti heimilisfangs : Skyggnisbraut
Heiti eignar eða byggingar.Húsnúmer : 30
Húsnúmer eignarinnar.
Fasteignaskrá
Eignir í sömu byggingu og upplýsingar þeirra
010601
Íbúð á 6. hæð
186 m²
Fasteignamat 2025
122.500.000 kr.
Fasteignamat 2024
116.200.000 kr.
Samskiptasaga byggingar
Atriði af fundum Byggingarfulltrúa Reykjavíkur er varðar eignina